Í þáttunum Steypiregn kynnir Margrét Kristín Blöndal tónlistarmenn og tónlistarkonur sem hafa átt ríkan þátt í gera heiminn enn betri og fegurri. Í hverjum þætti er einn listamaður tekinn fyrir og verk hans kynnt fyrir hlustendum.
Þættirnir voru áður á dagskrá árið 2014.
Fimmti þáttur:
Enn erum við í samfloti við meistara Scott Walker. Við fylgum honum sem leið liggur í gegnum áttunda ártuginn og göngum með honum í gegnum þykkt og þunnt á þeirri leið.
Tónlistin í þættinum er flutt af honum og félögum hans.
Umsjón: Margrét Kristin Blödal.
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Á þessu ári eru liðin 100 ár frá því að skáldsagan "The Great Gatsby" - "Gatsby hinn mikli" - eftir F. Scott Fitzgerald kom út í Bandaríkjunum árið 1925. Þetta er ein frægasta skáldsaga 20. aldar og þykir lýsa sérlega vel andblæ áranna upp úr 1920. Sagan fjallar um Jay Gatsby, dularfullan auðkýfing sem er alltaf að halda stórveislur. Það er ungur nágranni hans, Nick Carraway, sem segir söguna, en smám saman kemst hann að sannleikanum um fortíð Gatsbys og að ástæðunni fyrir því að hann berst svo mikið á. Í þættinum "Á tónsviðinu" verða lesin brot úr skáldsögunni í þýðingu Atla Magnússonar og leikin lög sem nefnd eru í sögunni, en dægurlög þriðja áratugarins virðast oft hljóma í bakgrunni hennar. Má þar nefna lög eins og "The Sheik of Araby", "Ain´t we got fun" og "It´s three o´clock in the morning". Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Gunnar Hansson.

frá Veðurstofu Íslands.
Að „sampla“ í tónlist merkir að fá að láni hljóðbrot úr eldra lagi. Þessi aðferð hefur tíðkast í rúm fjörutíu ár, sérstaklega í hipphoppi, þar sem bassalínur og hljómar úr eldri diskólögum og fönki voru lengi grunnurinn að tónlistinni sem var rappað við, en er útbreidd í nær allri popptónlist samtímans.
Í þessari þáttaröð segir Atli Bollason sögu þessarar aðferðar - tónklippilistarinnar -
frá árdögum hennar í módernískri tónlist fimmta áratugarins, gegnum hipphopp níunda áratugarins
Velt er upp lögfræðilegum álitamálum, en tónklippilistin hefur reynt mjög á
höfundarréttarlög. Tónklippilistin er einnig sett í samhengi við póstmódernískar kenningar um textatengsl og spurt hvort endurvinnsla af þessu tagi sé leikur að innantómum vísunum
sem endurspegli óhæfi til að fást við eigin samtíma, eða hvort hún komi á hugmyndafræðilegum tengslum við verkin sem á undan fóru í því skyni að varpa nýju, fersku og merkingarbæru ljósi á nútíðina.
Hvernig kallast tónklippilistin á við sambærilegar aðferðir í myndlist og bókmenntum? Hver er munurinn á því að nota þekkt hljóðbrot og óþekkt? Hver er framtíð tónklippilistar þegar hægt er að framleiða „ímynduð hljóðbrot“ í einni svipan með aðstoð gervigreindar?
Metnaður ungra tónlistamanna gerir tónklippilist að sjálfstæðri listgrein. Heilar plötur fara koma út
sem eru aðeins settar saman úr brotum úr annarri tónlist. Danstónlistin kemur fram, þ.á.m. jungle,
grein sem byggist nær öll á nokkurra sekúndna broti úr gömlu sálarlagi frá 1969 sem nefnist
„Amen, Brother“. Lögin sem nota þetta stutta brot skipta þúsundum.
* DJ Shadow, The Avalanches, Steinski, Amon Tobin, Coldcut, trip-hop, jungle
Messa frá Hallgrímskirkju á boðunardegi Maríu (5.sunnudegi í föstu). Nemendur Tónskóla Þjóðkirkjunnar og Listaháskóla Íslands sjá um tónlistarflutning undir stjórn Magnúsar Ragnarssonar.
Sr Eiríkur Jóhannsson predikar og þjónar fyrir altari.
Forspil: Prelúdía í B-dúr BWV 560 J.S. Bach
Kórsöngur Kyrie úr messu í a-moll op. 197 Josef Rheinberger
57 Heiðra skulum vér herrann Krist T: Stefán Torarensen L: Medingen - Walter
Kórsöngur Lofsöngur Maríu Þorvaldur Örn Davíðsson
102 Lofsöngur ómar T: Svein Ellingsen / Sigurbjörn Einarsson L: J.V. Ungland
Eftir predikun
Númer Heiti lags/sálms Höfundar
Kórsöngur Ave María Jaakko Mantyjarvi
289 Í þinni náð T: Kristján Valur Ingólfsson L: John L. Bell
Orgelleikur Kúríró Karl Olgeirsson
Kórsöngur Sanctus úr messu í a-moll op. 197 Josef Rheinberger
Kórsöngur Agnus Dei úr messu í a-moll op. 197 Josef Rheinberger
Kórsöngur Ave verum corpus Arngerður María Árnadóttir
159 Fræ í frosti sefur T: Anders Frostersson / Sigurbjörn Einarsson, L: franskt jólalag
Eftirspil: Toccata í d-moll op. 59/5 Max Reger

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar.
Umsjón: Karitas M. Bjarkadóttir
Í þessum þætti Krakkaheimskviða kynnum við okkur hvað er að gerast í Íran. Mið-Austurlandafræðingurinn Magnús Þorkell Bernharðsson er gestur þáttarins og segir okkur frá landinu, sögu þess og atburðum síðustu vikna.

Karl Th. Birigisson fjallar um sögu Persa eða Írana, frá upphafi til okkar daga.
Þættirnir eru frá árinu 2005.
Annar þáttur af fimm.

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Úrval úr Lestarþáttum vikunnar.

Útvarpsfréttir.

Tónhjólið snýst og snýst og upp koma sögur af tónlist, nýrri og gamalli. Ólíkar stefnur og straumar skjóta upp kolli og líka hljóðfæri, hugtök og túlkunarmöguleikar. Hugað verður að einhverju því sem hæst ber á tónlistarsviðinu í heimi sígildrar tónlistar og djasstónlistar á hverjum tíma.
Í forgrunni í þættinum er strengjaleikur þar sem flytjendur eiga það sameiginlegt að leggja sitt af mörkum til að þenja út hljóðheim hljóðfæranna á sama tíma og þeir standa traustum fótum í hefðinni.
Tónlistin sem hljómar í þættinum er eftir Hildi Guðnadóttur, barokktónskáldið Johann Paul von Westhoff, Keir GoGwilt og Johnny Chang, Judith Hamann og Amy Cimini.
Umsjón hefur Berglind María Tómasdóttir
Verk sem hljóma í þættinum:
Hildur Guðnadóttir, platan Where To From:
Stimm
Erindi
Steps Out Loud
Make Space
Over There
I Hold Close
Melody of Not Knowing
All Along
Fólk fær andlit
Johann Paul von Westhoff - Partíta í d-moll í flutningi Keir GoGwilt, fiðluleikara, af plötunni re: d:
Allemande
Courante
Sarabande
Gigue
Keir Gogwilt og Johnny Chang, fiðluleikarar af plötunni hope lies fallow:
Hope to adjust
Cantigas: Hildegard
Beatific creatures
Judth Hamann, sellóleikari af plötunni Music for Cello and Humming:
Humming Suite, 1.kafli
Amy Cimini, víóluleikari af plötunni See You When I Get There:
Anyone’s Song

Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Komma, strik og skammstafanir voru umræðuefni Marðar Árnasonar í Daglegu máli árið 1984. Þráðurinn er nú tekinn upp að nýju enda hefur reglum um geinarmerki síðan verið breytt. Þó hafa ekki orðið á þeim gagngerar breytingar og Daglegt mál frá 1984 á enn jafn mikið erindi við hlustendur.

Fréttir
Í um 400 ár hafa ábúendur á Loftsstöðum notið sérstakrar verndar Galdra-Ögmundar.
Þau varðveita úr honum annan lærlegginn í lítilli glerkistu undir bókaskáp, og svo lengi sem beinið er á jörðinni ver það þau Tyrkjaránum, sjóskaða, náttúruhamförum og hvers konar mannraunum. En ein er sú vá sem enginn gat séð fyrir…
Þjóðsögur, flókin fjölskyldusambönd og erfðir mætast í þremur þáttum úr smiðju Önnu Marsibil Clausen þar sem uppljóstrað er um rúmlega 70 ára gamalt leyndarmál.
Hafrún býr á Vestri Loftsstöðum með Sigurði manninum sínum, fimm af sjö börnum þeirra, hundinum Tarfi og lærlegg úr 400 ára gömlum galdramanni. En hvaðan kom þetta bein, þessi saga, og er einhver leið að rannsaka það með tilkomu nútíma tækni?

frá Veðurstofu Íslands

Gestur úr Mannlega þættinum talar um bækur.
Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Benedikt Hjartarson bókmenntafræðingur, sem býr á Indlandi, en er á landinu til að fylgja eftir bók, Gáttir, sem kemur út á næstunni og því gripum við hann glóðvolgan og fengum hann til að segja okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Benedikt talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Mother Mary Comes to Me e. Arundhati Roy
Ghost Eye e. Amitav Ghosh
Gabriel García Marquez: Hundrað ára einsemd
Marcel Proust: Í leit að glötuðum tíma
Rainer Maria Rilke: Minnisblöð Maltes Laurids Brigge
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Þátturinn í dag er afmælisþáttur en nú eru Heimskviðuþættirnir orðnir 250. Í tilefni dagsins segjum við sögur fólks sem við þekkjum vel, en gröfum upp hluti sem færri þekkja. Svo kynntumst við fleirum sem ekki eru eins vel þekktir, en ættu kannski að vera það. Við fjöllum um hundakallinn Lars Lökke Rasmussen, badmintonmeistarann Jens Frederik Nielsen, áhrifavald frá Gaza, næsta leiðtoga Norður-Kóreu og mann sem hefur verið kallaður George Clooney seðlabankanna. Það og margt fleira kemur í ljós í þættinum.
Að „sampla“ í tónlist merkir að fá að láni hljóðbrot úr eldra lagi. Þessi aðferð hefur tíðkast í rúm fjörutíu ár, sérstaklega í hipphoppi, þar sem bassalínur og hljómar úr eldri diskólögum og fönki voru lengi grunnurinn að tónlistinni sem var rappað við, en er útbreidd í nær allri popptónlist samtímans.
Í þessari þáttaröð segir Atli Bollason sögu þessarar aðferðar - tónklippilistarinnar -
frá árdögum hennar í módernískri tónlist fimmta áratugarins, gegnum hipphopp níunda áratugarins
Velt er upp lögfræðilegum álitamálum, en tónklippilistin hefur reynt mjög á
höfundarréttarlög. Tónklippilistin er einnig sett í samhengi við póstmódernískar kenningar um textatengsl og spurt hvort endurvinnsla af þessu tagi sé leikur að innantómum vísunum
sem endurspegli óhæfi til að fást við eigin samtíma, eða hvort hún komi á hugmyndafræðilegum tengslum við verkin sem á undan fóru í því skyni að varpa nýju, fersku og merkingarbæru ljósi á nútíðina.
Hvernig kallast tónklippilistin á við sambærilegar aðferðir í myndlist og bókmenntum? Hver er munurinn á því að nota þekkt hljóðbrot og óþekkt? Hver er framtíð tónklippilistar þegar hægt er að framleiða „ímynduð hljóðbrot“ í einni svipan með aðstoð gervigreindar?
Metnaður ungra tónlistamanna gerir tónklippilist að sjálfstæðri listgrein. Heilar plötur fara koma út
sem eru aðeins settar saman úr brotum úr annarri tónlist. Danstónlistin kemur fram, þ.á.m. jungle,
grein sem byggist nær öll á nokkurra sekúndna broti úr gömlu sálarlagi frá 1969 sem nefnist
„Amen, Brother“. Lögin sem nota þetta stutta brot skipta þúsundum.
* DJ Shadow, The Avalanches, Steinski, Amon Tobin, Coldcut, trip-hop, jungle
Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga. Leiðbeinendur: Þorgerður E. Sigurðardóttir og Anna Marsibil Clausen.
Þorsteinn Úlfar Björnsson átti alltaf flókið samband við föður sinn, sem glímdi við mikla áfengisfíkn. Snemma árs 2025, tæplega 19 árum eftir að pabbi hans dó, fékk hann svo fréttir sem breyttu sýn hans á föður sinn varanlega.
Umsjón: Oddur Freyr Þorsteinsson


frá Veðurstofu Íslands
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum:
Beau Soir eftir Claude Debussy. Lisa Batiashvili leikur á fiðlu og Yannick Nézet-Séguin á píanó. Útgefið 2022 á plötunni Secret Love Letters.
Fyrsti þáttur (af þremur), Allegro assai - Andante - Tempo I úr Drei Impromptus aus dem Nachlass D 946 [1828] eftir Franz Schubert. Maria João Pires leikur á píanó. Útgefið 1997 á plötunni Le voyage magnifique.
IV. þáttur, Menuet. Animé - Un peu plus lent - Animé - Un peu plus lent - Plus lent - Animé úr Svítu í gömlum stíl (Suite dans le style ancien), op. 24 í D-dúr eftir Vincent d’Indy. Sinfóníuhljómsveit Íslands leikur, stjórnandi er Rumon Gamba. Útgefið 2015 á plötunni Orchestral works vol. 6.
Sónata fyrir tvö píanó og slagverk eftir Béla Bartók.
Flytjendur: András Schiff og Bruno Canino leika píanó; Zoltan Rácz og Zoltan Váczi leika á slagverk.
Verkið er í þremur þáttum:
1. Assai lento - Allegro molto (13,03 mín.). -
2. Lento ma non troppo (6,42 mín.). -
3. Allegro non troppo (6,41 mín.)
Útgefið á plötunni Sonata no.1 for violin & piano - Duos for 2 violins - Sonata for 2 pianos & percussion.
Lauffall eftir Hjálmar H. Ragnarsson við ljóð Snorra Hjartarsonar. Kristinn Sigmundsson bassi syngur, Jónas Ingimundarson leikur á píanó. Útgefið 1994 á plötunni Fagurt syngur svanurinn : íslenska einsöngslagið.

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Nú er Ódysseifur gestur Alkinosar konungs Fæeka sem lofar honum aðstoð við að komast heim til sín. Ekki gerir kappinn þó uppskátt um hver hann er. Haldin er mikil íþróttakeppni við hirð Alkinosar og nærvera Ódysseifs vekur mikla athygli.

Útvarpsfréttir.
Hulda Geirsdóttir er fyrst á fætur á sunnudagsmorgnum á Rás 2. Hún heyrir í fólki víða um land, fær til sín góða gesti og leikur fjölbreytta tónlist að sínum hætti. Notaleg morgunstund með hlustendum.
Hulda var á mjúkum morgun nótum, heyrði í Guðveigu Eyglóardóttur forseta sveitastjórnar í Borgarbyggð og gusumeistara, lék ljúfa tóna og ræddi við Hilmar Frey Gunnarsson, einn fjölmargra sem flýja þurfti heimabæ sinn Grindavík og byggir sér nú hús í Hafnarfirði eftir erfiða óvissutíma.
Lagalisti:
Ragnheiður Gröndal - Verkamaður.
Aretha Franklin - Do right woman, do right man.
Sting - Little wing.
Mugison - Haglél.
Arlo Parks - Caroline.
Grace Jones - I've seen that face before.
Willie Nelson & Dolly Parton - To the moon and back.
Lloyd Cole and the Commotions - Brand new friend.
Eric Clapton - Lay down Sally.
Stjórnin - Við eigum samleið.
Elly og Vilhjálmur - Fátt er svo með öllu illt.
A-ha - Cry wolf.
Cat Stevens - Lady D'Arbanville.
Stebbi og Eyfi - Pínulítið lengur.

Freyr Eyjólfsson mætir með kaffibollann sinn og grúskar í allskonar tónlist frá ýmsum tímum.

Útvarpsfréttir kl. 11:00 sun.

Útvarpsfréttir.

Á Sportrásinni fylgist Doddi með því sem er að gerast í íþróttalífinu hér heima og erlendis. Helstu íþróttafréttir vikunnar og hvað er framundan með góðri aðstoð íþróttadeildar RUV. Ásamt gæða sunnudags tónlist.
Sportrásin, ekki bara fyrir þá sem hafa gaman af sportinu!

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Útvarpsfréttir.

Fréttir

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Fréttastofa RÚV.

Á sunnudögum opnar Rósa Suðupottinn og býður hlustendum í fjölbreytt tónlistarferðalag þar sem jazz, trip hop, heimstónlist og fleiri stefnur mætast í nútímanum.


Spennandi tónar bergmála um göngugötuna í Mjóddinni. Indírokk, alternative, lo-fi, dreampop og margt annað áhugavert. Verið velkomin í Mjóddina, þar sem hjartað slær.
Umsjón: Björn Þór Björnsson
Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.
Izleifur er mættur aftur, um það bil ári eftir að hann var með verkið Ég á móti mér sem plötu vikunnar á Rás 2. 100&Einn er öðruvísi verk, hugsað heildrænt og ígrunduð skref tekin varðandi ákvarðanir og tón sem gefinn er. Hann settist niður með Atla Má og þar var farið yfir árið sem leið, skrefin og hlustað á plötuna ásamt kynningum.