10:15
Takk fyrir lánið
Tónklippilist sem eigið listform

Að „sampla“ í tónlist merkir að fá að láni hljóðbrot úr eldra lagi. Þessi aðferð hefur tíðkast í rúm fjörutíu ár, sérstaklega í hipphoppi, þar sem bassalínur og hljómar úr eldri diskólögum og fönki voru lengi grunnurinn að tónlistinni sem var rappað við, en er útbreidd í nær allri popptónlist samtímans.

Í þessari þáttaröð segir Atli Bollason sögu þessarar aðferðar - tónklippilistarinnar -

frá árdögum hennar í módernískri tónlist fimmta áratugarins, gegnum hipphopp níunda áratugarins

Velt er upp lögfræðilegum álitamálum, en tónklippilistin hefur reynt mjög á

höfundarréttarlög. Tónklippilistin er einnig sett í samhengi við póstmódernískar kenningar um textatengsl og spurt hvort endurvinnsla af þessu tagi sé leikur að innantómum vísunum

sem endurspegli óhæfi til að fást við eigin samtíma, eða hvort hún komi á hugmyndafræðilegum tengslum við verkin sem á undan fóru í því skyni að varpa nýju, fersku og merkingarbæru ljósi á nútíðina.

Hvernig kallast tónklippilistin á við sambærilegar aðferðir í myndlist og bókmenntum? Hver er munurinn á því að nota þekkt hljóðbrot og óþekkt? Hver er framtíð tónklippilistar þegar hægt er að framleiða „ímynduð hljóðbrot“ í einni svipan með aðstoð gervigreindar?

Metnaður ungra tónlistamanna gerir tónklippilist að sjálfstæðri listgrein. Heilar plötur fara koma út

sem eru aðeins settar saman úr brotum úr annarri tónlist. Danstónlistin kemur fram, þ.á.m. jungle,

grein sem byggist nær öll á nokkurra sekúndna broti úr gömlu sálarlagi frá 1969 sem nefnist

„Amen, Brother“. Lögin sem nota þetta stutta brot skipta þúsundum.

* DJ Shadow, The Avalanches, Steinski, Amon Tobin, Coldcut, trip-hop, jungle

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 39 mín.
,