Bein

1. þáttur: Lærleggurinn verndar okkur

Hafrún býr á Vestri Loftsstöðum með Sigurði manninum sínum, fimm af sjö börnum þeirra, hundinum Tarfi og lærlegg úr 400 ára gömlum galdramanni. En hvaðan kom þetta bein, þessi saga, og er einhver leið rannsaka það með tilkomu nútíma tækni?

Birt

21. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Bein

Í um 400 ár hafa ábúendur á Loftsstöðum notið sérstakrar verndar Galdra-Ögmundar.

Þau varðveita úr honum annan lærlegginn í lítilli glerkistu undir bókaskáp, og svo lengi sem beinið er á jörðinni ver það þau Tyrkjaránum, sjóskaða, náttúruhamförum og hvers konar mannraunum. En ein er sem enginn gat séð fyrir…

Þjóðsögur, flókin fjölskyldusambönd og erfðir mætast í þremur þáttum úr smiðju Önnu Marsibil Clausen þar sem uppljóstrað er um rúmlega 70 ára gamalt leyndarmál.

,