07:03
Morgunútvarpið
Sorphirða í Beiðholti,Bragð,Bjarni Ben,Ronaldo og hvað er í gangi í Cornell háskóla

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Verðbólgan er ekki á niðurleið og það hefur lengi verið ljóst að forsendur kjarasamninga halda ekki. Á ársfundi Samtak atvinnulífsins í dag verður sjónum beint að vinnumarkaðslíkaninu og samkeppnishæfni Íslands. Hvernig sköpum við forsendur fyrir stöðugleika, kaupmætti og samkeppnishæfu atvinnulífi? Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, kemur til okkar og við spyrjum hann að þessu.

Saksóknarar í New York hafa ákveðið að rannsaka að nýju tveggja ára gamalt mál þar sem sjö nemendur við Cornell-háskóla eru sakaðir um hópnauðgun. Lögmaður konunnar segir skólann hafa boðið mönnunum mildari refsingu gegn ritgerðarskrifum. Erla Hlynsdóttir, blaðamaður á Gímaldinu, kemur til okkar og fer yfir þetta mál.

Okkar maður Ísak Aron Jóhannsson, fyrirliði íslenska kokkalandsliðsins, kemur til okkar og segir frá bókinni Bragð, sem er engin venjuleg uppskriftabók. Ísak deilir með lesendum ábendingum og góðum ráðum sem fræða fólk betur um það sem er að gerast í uppskriftunum.

Reykjavíkurborg kannar nú hvort hægt sé að útfæra sorphirðu á betri og hagkvæmari hátt fyrir borgarbúa. Tilraunin felur í sér að sorphirða í Breiðholti verður boðin út og árangurinn mældur. Borgarfulltrúinn Guðný María Jóhannsdóttir segir okkur frá þessu.

Jóhann Páll Ástvaldsson kemur með ólgandi heitan mola úr sportinu og nú er það Ronaldo sem er farinn heim.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 1 klst. 50 mín.
Leyft öllum aldurshópum
    ,