11:03
Mannlegi þátturinn
Heimildarmyndir um Leiðtogafundinn í Höfða og bók Matthildar um hamfarirnar í Grindavík

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Stríð og Friður í Reykjavík er heimildarmynd í þremur hlutum um leiðtogafund Reagan og Gorbachev í Reykjavík árið 1986. Íslensk stjórnvöld höfðu aðeins tólf daga til stefnu þegar ljóst varð að Reykjavík ætti að hýsa fundinn og Reykjavík umbreyttist á örfáum dögum. Árni Þór Jónsson leikstjóri myndarinnar fór með okkur í tímaferðalag fjörutíu ár aftur í tímann og við rifjuðum upp þennan merkilega tíma og viðburð og allt havaríið í kringum hann.

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hlaut á dögunum Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026. Matthildur Yrsa var ellefu ára þegar náttúruhamfarirnar í Grindavík, heimabæ hennar, hófust. Í bókinni segir hún sögu sína í samstarfi við verðlaunahöfundinn Þórunni Rakel Gylfadóttur, lýsir síðasta deginum í Grindavík, tilraunum til að lifa eðlilegu lífi þrátt fyrir jörðin skylfi undir fótum hennar, fyrirvaralausum flótta fjölskyldunnar og afleiðingum þess að vera rifin upp með rótum á viðkvæmum aldri og þurfa að fóta sig í nýjum aðstæðum. Við ræddum við Matthildi, móður hennar Valgerður Jennýjardóttur og Þórunni Rakel í dag.

Tónlist í þættinum:

Ammæli / Sykurmolarnir (Sykurmolarnir)

Moscow Moscow / Strax (Jakob Frímann Magnússon)

Perfidia / Linda Ronstadt (Alberto Dominiques)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 50 mín.
Leyft öllum aldurshópum
    ,