Vegurinn yfir Öxi
Í þætti dagsins veltum við fyrir okkur Öxi, leiðinni á milli Djúpavogs og Egilsstaða. Hvaða áhrif þessi holótti og gamli malarvegur á líf ungs fólks á Djúpavogi og fjölskyldur þeirra.
Í þætti dagsins flökkum við um Akureyri og spjöllum um matarmenningu staðarins, að fornu og nýju. Allt frá hefðbundnum heimilismat, að bernaissósu og frönskum á milli, yfir í fínni veitingastaði.
Viðmælendur: Inga Þöll Þórgnýsdóttir, Baldvin Sigurðsson, Rakel Elín Garðarsdóttir, Þorgerður Jóhanna Guðlaugsdóttir, Ingibjörg Bergmann, Snæbjörn Bergmann og Reynir Gretarsson.

Gígja Hólmgeirsdóttir ferðast um landið og kemur víða við – í þéttbýli, dreifbýli, borg og bæjum – og kynnir sér hin ýmsu málefni á hverjum stað.