12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 25. ágúst 2026

Útvarpsfréttir.

Tveir hafa látist í Stuðlagili á tveimur árum, þrátt fyrir mikla uppbyggingu til að bæta öryggi við ferðamannastaðinn. Karlmaður sem féll í Jöklu fannst látinn í gærkvöld.

Kínverjar segja boðaðar viðskiptaþvinganir Bandaríkjamanna, gegn öllum ríkjum og fyrirtækjum með tengsl við Íran, ólöglegar. Bæði ríkin hóta að grípa til ráðstafana til að verja hagsmuni sína.

Sonur Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur, þingmanns Flokks fólksins, er í gæsluvarðhaldi grunaður um aðild að andláti föður síns. Fjölskyldan óskar eftir friði til að syrgja.

Réttarhöldum yfir Líbíumanni sem er sakaður um aðild að Lockerbie-málinu hefur verið frestað í þriðja sinn. Ný sönnunargögn komu fram á föstudag í þessu 37 ára máli.

Forsætisráðherra brást við gagnrýni grunnskólakennara á stjórn menntamála á opnum fundi í gær með því að segja menntamálaráðuneytinu ganga gott til. Kennarinn sagði menntamálin aldrei hafa verið í verri höndum.

Skólastjóri leik- og grunnskóla Grindavíkur segir dásamlegt að heyra í nemendum aftur í skólanum. Hann var settur í morgun.

Í vikunni hefja á fimmta hundruð börn skólagöngu. Í skólabyrjun þyngist umferð iðulega og ökumenn eru beðnir að vera sérstaklega vakandi fyrir ungum gangandi og hjólandi vegfarendum.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,