07:03
Morgunvaktin
Mikilvægi hafna, Berlínarspjall og þjóðaratkvæðagreiðslan

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Gunnar Tryggvason, hafnarstjóri Faxaflóahafna, var fyrsti gestur þáttarins. Hafnir eru mikilvæg tenging landsins við umheiminn og skip eru stöðugt að koma eða fara með fisk, farm eða fólk.

Arthúr Björgvin Bollason var á sínum stað með Berlínarspjall. Hann sagði frá umræðu í Þýskalandi um þjóðaratkvæðagreiðsluna hér á landi, umfjöllun um Kerecis og um óvenjulega yfirlýsingu kirkjunnar í Sachsen-Anhalt, sem varar við yfirráðum AfD flokksins.

Við fræddumst um það sem brennur á fötluðu fólki í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar með þeim Atla Má Haraldssyni Zebits og Sunnu Dögg Ágústsdóttur frá Átaki, félagi fólks með þroskahömlun. Og svo fóru Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Landskjörstjórnar, og Haukur Brynjarsson, verkefnastjóri hjá Netvís, yfir góð ráð til að vera á varðbergi gagnvart upplýsingaóreiðu.

Tónlist:

Animals - House of the rising sun.

Louis Armstrong - What a wonderful world.

America - A horse with no name.

Louis Armstrong og Ella Fitzgerald - Summertime.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,