Sumartónleikar

Sumardjass frá Svíþjóð

Sýnishorn af því sem Svíar tefldu fram sem gestaþjóð Jazzahead í Bremen fyrr á þessu ári.

Við heyrum í þremur ólíkum hljómsveitum í þessari útsendingu sem Radio Bremen fangaði fyrir okkur á tónleikum hátíðarinnar. Þar á meðal er Hederosgruppen sem nýtur leiðsagnar hljómborðsleikarans Martins Hederos, Bitoi kvartettinn sem bassaleikarinn Cassius Lambert leiðir og tríóið sem hefur leikinn. Píanótrío Joels Lyssarides sem nýtur samleiks við bassaleikarann Alon Near og trommuleikarann Rasmus Svensson Blixt.

Öll lögin eru eftir píanistann Lyssarides.

Joel Lyssarides (1993) - Bortom Bergen

Joel Lyssarides (1993) - Mahabalipuram

Joel Lyssarides (1993) - Life in between

Joel Lyssarides (1993) - Rags shargi

Næst heyrum við áhugavert framlag hljómsveitarinnar Bitoi. Þetta er óvenjulegur kvartett í djassheiminum. Þrjár söngkonur og rafbassi Cassiusar Lamberts, sem einnig semur alla tónlist hópsins og texta, sem eru á tilbúnu tungumáli.

Auk bassaleikarans Lamberts heyrum við í söngkonunum Alexöndra Shabo, og systrunum Lydiu og Ellu Cronberg.

Cassius Lambert (1996) - Fly, fly

Cassius Lambert (1996) - HAI

Cassius Lambert (1996) - SE-RU-MA

Cassius Lambert (1996) - TI-RI-MA

Cassius Lambert (1996) - KE-TO-RO

Cassius Lambert (1996) - PA-SI-PA

Cassius Lambert (1996) - SEKOMITSE

Lokalag Bitoi kvartettsins var Sekomitse - og var eins og öll hin eftir bassaleikarann Cassius Lambert,. Auk hans heyrðum við í söngkonunum Alexöndra Shabo, og systrunum Lydiu og Ellu Cronberg. Gríðarlega áhrifamiklir tónleikar þessa listafólks á Jazzahead í Bremen vorið 2026. Hér var sungið á uppdiktuðu tungumáli sem Cassius Lambert hefur búið til fyrir hópinn og notar fuglahljóð sem grunn.

Nýjasta plata Bitoi heitir Sirkulu og kom út árið 2025. Hún er td fáanleg á Bandcamp.

Síðasti hópurinn sem við heyrum sinni af framlagi Svía til stóru evrópsku jazzstefnunnar heitir í höfðuðið á hljómboðrsleikaranum Martin Hederos - Hederosgruppen, þó aðrir meðlimir kvartettsins leggi líka til tónsmíðarnar. Fyrsta lagið er tam eftir trompetleikarnn Emil Strandberg sem blæs ásamt saxófónleikaranum Andreasi Sjögren. Það er svo trommarinn Konrad Agnas sem er fjórði maður á sviðinu

Emil Strandberg (1980) - Luftskepp

Martin Hederos (1972) - Kniven

Emil Strandberg (1980) - Molustoden

Josef Kallerdahl (1979) - It's a shame

Andreas Sjögren (20th cent.) - Här kommer en dikt jag skrer inatt

Konrad Agnas (1990) - Bismillah bebop

Martin Hederos lék á hljómborð, Emil Strandberg á trompet, Andreas Sjögrená saxófón og bassaklarinett og Konrad Agnas á trommur.

Þriðja hljómsveitin af þremur sænskumsem við fundum til í sumardjassröðina, en eins og áður kom fram var Hederosgruppen meðal þeirra hljómsveita sem Svíar tefldu fram þegar þeir voru gestaþjóð Jazzahead í Breman á Þýskalandi vorið 2026.

Birt

25. ágúst 2026

Aðgengilegt til

24. sept. 2026

Sumartónleikar

Þættir

,