16:05
Víðsjá
Roman Signer á Seyðisfirði, Hljóð í ljóði og Tu Ha? Tu Bjö!

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þáttur dagsins er að mestu tileinkaður jazzi, enda Jazzhátíð í Reykjavík að hefjast í kvöld. Við kynnum okkur tvær jazzplötur sem koma út um þessar mundir, útgáfum sem verður fagnað sérstaklega á hátíðinni.

Tilrauna- og rannsóknarverkefnið Tu Ha? Tu Bjö! sendi frá sér plötu um liðna helgi. Hljómsveitin er skipuð tveimur trompetleikurum og tveimur tenór saxófónleikurum; þeim Tuma Torfasyni, Hannesi Arasyni, Tuma Árnasyni og Björgvini Ragnari Hjálmarssyni.

Við fáum líka til okkar í hljóðstofu sellóleikarann og tónskáldið Þórdísi Gerði Jónsdóttur, en hún gaf út plötu með eigin tónsmíðum fyrr í mánuðinum. Platan heitir Hljóð í ljóði og ber nafn með rentu, en lögin samdi Þórdís út frá gömlum og nýjum ljóðum íslensk ljóð þannig að stemning hvers ljóðs var þýdd úr texta yfir tónlist.

En áður en við vindum okkur alfarið í jazzinn heyrum við pistil frá myndlistarrýninum Völu Sigþrúðar- Jónsdóttur, um sýningu Romans Signers í Skaftfelli á Seyðisfirði, sem stendur yfirút septembermánuð.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
,