Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur að segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Þáttur frá 20. nóvember 2016: Við heimsækjum hönnuði og hugum að svokölluðum sprotum í atvinnulífinu. Á Akureyri er verið að setja upp Fab-lab útibú hjá Verkmenntaskólanum. Fiskiðnaðurinn reynir stöðugt að létta störfin með vélvæðingu og föt þarf að hanna með ýmislegt í huga.
Dagskrárgerð: Dagur Gunnarsson, Þórgunnur Oddsdóttir, Ágúst Ólafsson og Sunna Valgerðardóttir.
Umsjón með endurliti: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Vínilplata vikunnar er platan Til hvers..? með þjóðlagasveitinni Lítið eitt. Platan er seinni stóra plata sveitarinnar og um leið síðasta plata hennar og kom út árið 1975.
Þjóðlagasveitin Lítið eitt var upphaflega stofnað sem tríó snemma árs 1970 í Hafnarfirði og vakti fljótt athygli og koma víða fram. Hún gaf út fjögurra laga plötu árið 1972 og stóra plötu ári síðar. Þá skipuðu sveitina Berglind Bjarnadóttir, Jón Árni Þórisson, Gunnar Gunnarsson og Steinþór Einarsson. Á þessum árum naut sveitin mikilla vinsælda og kom víða fram, meðal annars í skemmtiþáttum í sjónvarpinu. Eftir að önnur plata sveitarinnar kom út árið 1973 hætti hún að koma fram. Hún tók síðan upp þráðinn á vormánuðum 1975 og tók í kjölfarið upp plötuna Til hvers..? sem var ein af fyrstu plötunum sem tekin var upp í Hljóðrita í Hafnarfirði.
Á plötunni eru eftirfarandi lög:
A-hlið
1. Til hvers..?
2. Konungurinn í Thule
3. Þá var ég ungur
4. Háar öldur
5. Minningar
B-hlið
1. Kyrrð
2. Herinn
3. Annabel Lee
4. Til draumsins
5. Karlinn úti á klöppinni
6. Vor
Umsjón: Stefán Eiríksson


Umsjón: Kristján Kristjánsson.


frá Veðurstofu Íslands.

Í þáttaröðinni fjallar Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður um fyrstu fótboltamennina frá gömlu Júgóslavíu sem komu til Íslands á árunum 1989-1992 til að spila fótbolta og settust svo hér að. Framleiðandi: Þorgerður E. Sigurðardóttir. Hljóðmynd: Jón Þór Helgason.
Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson
Fótboltamennirnir sem komu til Íslands frá gömlu Júgóslavíu árið 1992 og næstu ár á eftir voru flestir að flýja stríð sem geysuðu í heimalandi þeirra á meðan Júgóslavía var að liðast í sundur. Margir þeirra komu frá Bosníu, en í Bosníustríðinu sem hófst árið 1992 var gríðarlegt mannfall. Í þessum þætti er stríðið til umfjöllunar og Balkanbræður segja frá sinni upplifun af hörmungunum sem hefur markað þá fyrir lífstíð. Rætt er við Goran Kristófer Micic, Luka Lúkas Kostic, Val Ingimundarson, Izudin Daða Dervic, Ejub Purisevic, Milan Stefán Jankovic, Zoran Daniel Ljubicic og Salih Heimi Porca.


Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.

Tónlist héðan og þaðan

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Ítrekuð ummæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta um yfirtöku á Grænlandi hafa ekki aðeins valdið stjórnmálamönnum þar áhyggjum. Almenningur er líka uggandi, og þó að Trump hafi nú útilokað að beita valdi til að taka yfir Grænland er fólk enn í óvissu um framhaldið. Hallgrímur Indriðason fjallar um þetta en hann kom frá Grænlandi í síðustu viku. Hann segir okkur frá því hvernig Grænlendingum líður, talar við Grænlending sem býr hér á landi og Íslending sem býr á Grænlandi.
Við tölum líka við handboltaþjálfara í Færeyjum sem segir okkur frá ótrúlegum uppgangi handboltans þar, en Færeyingar fjölmenntu til Osló þar sem landsliðið þeirra vann sinn fyrsta leik á stórmóti. Þeir komast ekki áfram í milliriðil en hátt í sjö þúsund Færeyingar fylgdu liðinu. Að lokum fjöllum við svo um drama í Beckham fjölskyldunni. Fjölskylduerjur fræga fólksins er nokkuð sem við höfum alla jafna skautað fram hjá í þessum þætti, en okkur langaði samt aðeins að staldra við, reyna að skýra hvað þarna er í gangi og kannski ekki síður af hverju allir stærstu fréttamiðlar heims eru að fjalla um þetta.
Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson
Gunnhildur Hauksdóttir notar raddir til að skapa list, fléttar saman teikningum, pendúlum og kórum sem hún setur saman til að syngja teikningarnar og hugmyndirnar. Hún leggur áherslu á það að hún sé ekki að búa til tónlist, segist enda ekki kunna neitt í tónlist, en sé að búa til áferð með röddum.
Lagalisti:
Óútgefið - Kór fyrir einn
Óútgefið - Tvíeyrna
Five Drawings - Fimm teikningar
Óútgefið - jäkälä
Óútgefið - Úr hjarta í stein
Óútgefið - Rottukór
Óútgefið - Skýjakór

Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga. Leiðbeinendur: Þorgerður E. Sigurðardóttir og Anna Marsibil Clausen.
Í þessum þætti verða tengsl ungmenna og foreldra á Íslandi skoðuð. Nýleg skýrsla Unicef sýnir að foreldrar tala minna við börnin sín á Íslandi í samanburði við aðrar þjóðir. Hvernig er tengslum foreldra og barna þeirra á Íslandi háttað, hvaða ástæður liggja að baki og hvernig má styðja betur við foreldra eru spurningar sem varpað er fram í þættinum og leitast verður við að svara.
Umsjón: Marta Goðadóttir

Veturinn 2009-2010 fékk Ævar Kjartansson Pál Skúlason, heimspeking og fyrrverandi háskólarektor, til liðs við sig til þess að fjalla um grunnhugmyndir í okkar samtíma. Í fyrsta þættinum spjölluðu þeir um eðli hugmynda almennt en fengu síðan til sín fræðimenn á ýmsum sviðum til þess að ræða hugmyndina um þjóðina, ríkið, samfélagið, hamingjuna, frelsið svo eitthvað sé nefnt.
Verður stöðnun í málþroska á unglingsárunum?
Hrafnhildur Ragnarsdóttir prófessor í þroska- og málsálfræði verður gestur í þættinum Heimur hugmyndanna. Umsjón: Ævar Kjartansson og Páll Skúlason

Útvarpsfréttir.

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Við byrjum á umfjöllun um Vónbjørt Vang ljóðskáldi frá Færeyjum sem hlaut bókmenntaverðlaun norðurlandaráðs fyrir ljóðabókina Svarta orkídeian. Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir þýðandi og sú sem stýrir fornbókabúðinni Kanínuholan sagði mér frá skáldskap Vónbjørt í haust en von er á íslenskri þýðingu frá Móheiði á sigurbókinni.
Við hlerum líka bókaklúbba fræga fólksins, það er enginn frægur með frægum nema hann sé með bókaklúbb og nýti hann til góðs og ills. Það eru stundum ekki beint bókmenntahvatar þar á bakvið.
Í lokin förum við út á flugvöll þar sem er alveg sérstök bókmenning. Hvaða bækur eru í flugvallabókabúðum og hvernig endurspegla flugvellir ástand nútímamannsins? Sjöfn Asare bókmenntafræðingur og rithöfundur fór yfir það með mér síðla sumars.
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Pétur Grétarsson ræðir við Inga Bjarna Skúlason píanóleikara um tónlist hans, nýjar plötur, áhrifavalda og ýmislegt fleira.
Tónlistin í þættinum:
Impulsive - Ingi Bjarni Skúlason - Fragile Magic
Escaped - Ingi Bjarni Skúlason - Hope
Passing Dream - Moscow Arts Trio
Subtle Living Equations - Craig Taborn - Daylight Ghosts
Hope - Ingi Bjarni Skúlason - Hope

Fréttir

frá Veðurstofu Íslands
Sveiflutónlist og söngdansar að hætti hússins.
Stórsveit króatíska útvarpsins leikur lögin Muskrat Ramble, Laura, St. Thomas, I Got Rhythm og West Side Story. Duke Pearson og hljómsveit hans flytja lögin After The Rain, Sweet Honey Bee, Ready Rudy?, Sudel, Gaslight og Big Bertha. Steve Kuhn tríóið leikur lögin Wisteria, Permanent Wave, Pastorale, A Likely Story, Promises Kept, Dark Glasses og Good Lookin' Rookie.

Í Sagnaslóð er víða leitað fanga. Sagt er frá mönnum og málefnum fyrri tíma. Umsjónarmenn: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson
Þættir frá vetrinum 2008-2009
Á seinni hluta 19 aldar var Svaðastaðaheimilið talið eitt efnaðasta heimili landsins; þá bjuggu þar 3 systkyni og voru 4 ættliður búandi á jörðinni. Í þessum þætti segir þeim Jóni og Rannveigu Þorkelsbörnum. Jóni varð allt að fé og þótti vægur við skuldunauta. Á tíræðisaldri stóð Rannveig Í heybandi og fór á grasafjalla. Lesari Sigríður Kristín Jónsdóttir
Umsjón: Jón Ormar Ormsson


frá Veðurstofu Íslands

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.
Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Litla flugan leikur lögin sem Ragnar Bjarnason hljóðritaði árið 1971 og komu út á fyrstu stóru plötunni sem hann gerði.

Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.

Miðnæturfréttir.

Útvarpsfréttir.

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.



Gísli Marteinn Baldursson og Sandra Barilli leiða hlustendur inn í laugardaginn, taka stöðuna á fólki og fréttum, spila góða tónlist og fá til sín vel valda gesti í skemmtilegt spjall.


Útvarpsfréttir.

Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær að hljóma.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Rapparinn og plötusnúðurinn Ragga Holm á Rás 2 alla laugardaga með tónlistarþáttinn Smell. Frábær upphitun fyrir kvöldið!

Útvarpsfréttir.

Fréttir

Farið yfir vinsælustu lög Rásar 2 þessa vikuna.
Umsjón: Hulda G. Geirsdóttir.

Fréttastofa RÚV.

Tekið er á móti gesti sem fer í gegnum lög sem svör við ákveðnum spurningum. Hvað var fyrsta lagið sem þú hlustaðir á aftur og aftur? Hvaða lag myndiru spila til að loka frábærum degi? Hvert er jarðarfaralagið þitt? Þetta eru nokkrar af þeim spurningum sem poppa upp en svo fylgir einhverskonar æviágrip með í kjölfarið.
Jelena Ciric segist fást við hljóð og orð, hvað það þýðir nákvæmlega komumst við að í þættinum þar sem við rekjum sögu hennar og hlustum á lögin sem hún mætti með. Þar kennir ýmissa grasa, serbnesk þjóðlagatónlist, töffarar frá 2003 og Dido svo eitthvað sé nefnt.

Heiða Eiríks og Ingi Þór stjórna Næturvaktinni til skiptis. Þau spjalla við landann og spilar tónlist úr öllum áttum á laugardagskvöldum. Ljúfir tónar, brjálað rokk og óskalög úr öllum landshornum.
