Vegurinn yfir Öxi
Í þætti dagsins veltum við fyrir okkur Öxi, leiðinni á milli Djúpavogs og Egilsstaða. Hvaða áhrif þessi holótti og gamli malarvegur á líf ungs fólks á Djúpavogi og fjölskyldur þeirra.
Í þessum fyrsta þætti Víðsvegar er ferðinni heitið í Dalabyggð - þar sem við forvitnumst um hvað einkennir sjálfsmynd svæðisins sem og þá miklu ímyndarvinnu sem íbúar hafa verið í síðustu ár. Sú vinna byrjaði af krafti eftir að sveitarfélagið var tekið inn í byggðaþróunarverkefnið Brothættar byggðir.
Viðmælendur: Björn Bjarki Þorsteinsson, Linda Guðmundsdóttir, Bjarnheiður Jóhannsdóttir og Ingibjörg Þóranna Steinudóttir.

Gígja Hólmgeirsdóttir ferðast um landið og kemur víða við – í þéttbýli, dreifbýli, borg og bæjum – og kynnir sér hin ýmsu málefni á hverjum stað.