07:03
Morgunvaktin
Íslenskur iðnaður, dönsk tíðindi og erfingjar sem reyna að snúa aftur

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Við fjölluðum um íslenskan iðnað á eftir. Hann hefur vaxið mjög að umfangi síðustu ár. Iðnrekendur koma saman til Iðnþings á morgun og þar flytur Árni Sigurjónsson, formaður Samtaka iðnaðarins, ávarp í síðasta sinn. Hann er að láta af því embætti. Árni spjallaði við okkur um stöðuna og tækifærin.

Borgþór Arngrímsson sagði okkur tíðindi frá Danmörku. Dönsk stjórnmál komu við sögu enda aðeins örfáar vikur til þingkosninga þar í landi.

Reza Pahlavi, sonur síðasta Íranskeisara, hefur boðið fram krafta sína til að leiða Íran, líði klerkaveldið þar undir lok. Sitt sýnist hverjum um það. En dæmi eru um það úr nútímasögunni að fyrrverandi konungar og krónprinsar snúi aftur úr útlegð og reyni að komast til valda í gömlum konungs- og keisaradæmum, með misjöfnum árangri. Vera Illugadóttir sagði frá.

Tónlist :

Ingibjörg Smith - Við gengum tvö.

Helena Eyjólfsdóttir - Það sem ekki má.

Helena Eyjólfsdóttir - Í rökkurró (Manstu ekki vinur).

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,