15:03
Perlur

Leikin eru lög með þremur barnakórum frá fyrri tíð. Fyrst syngur kór undir stjórn Guðrúnar Pálsdóttur). Síðan syngja Barnakór Borgarness og Barnakór Barnaskóla Akureyrar, en báðir seinni kórarnir nutu söngstjórnar Björgvins Jörgenssonar.

Einnig er endurfluttur hluti viðtals við Björgvin Jörgensson, kórstjóra, sem Sverrir Kjartansson átti við hann árið 1976. Snýst spjall þeirra um söngför Barnakórs Akureyrar árið 1954 til Noregs.

Umsjón hefur Jónatan Garðarsson.

(Áður á dagskrá 1999)

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 49 mín.
e
Endurflutt.
,