12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 17. október 2024
Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Erindi ríkisstjórnarinnar var komið á endastöð segir forsætisráðherra og hann hefði verið að bregðast með því að þykjast geta leitt stjórnina áfram án sáttar. Formaður Vinstri grænna segir forsætisráðherra óhæfan til að leiða ríkisstjórn.

Úkraínumenn vilja tafarlaust boð um aðild að Atlantshafsbandalaginu og meiri hernaðaraðstoð, sagði forseti Úkraínu á fundi með leiðtogum Evrópusambandsríkja. Hann fulllyrðir að norður kóreskir hermenn eigi að taka þátt í hernaðaraðgerðum Rússa í Úkraínu.

Borgarstjóri boðaði forystu leik- og grunnskólakennara á sinn fund í hádeginu. Ummæli sem hann lét falla um kennara í síðustu viku vöktu mikla reiði innan stéttarinnar.

Metþátttaka er á Arctic Circle ráðstefnunni sem hófst í morgun. Viðskiptum er gert hærra undir höfði en áður.

Mikil eftirspurn er eftir ódýrum íbúðum en þær dýrari seljast síður. Heimili landsins hafa ekki greitt meira í vaxtagjöld í átta ár.

Kílómetragjald á fólksbíla og jeppa verður sex krónur og sjötíu aurar samkvæmt frumvarpi fjármálaráðherra og tæpar 44 krónur af þyngstu bílunum. Mótorhjólamenn gagnrýnir harðlega að sama gjald verði á mótorhjólum og bílum sem eru allt að sautjánfalt þyngri.

Móttaka fyrir þá, sem þurfa aðstoð og eftirfylgd til að draga úr og hætta notkun ávanabindandi lyfja, var opnuð í Reykjavík í morgun. Fólk lendir oft í vanda sem hægt er að fyrirbyggja með öruggri umgjörð segir læknir og einn frumkvöðla verkefnisins.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,