23:05
Lestin
The Penguin, andlát Liam Payne, 10 ára plötubúð, fyrsti gjörningurinn
Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Kristján Guðjónsson

Popp og pólitík

Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Kristján Guðjónsson

Karítas M. Bjarkardóttir, blaðamaður Krakkafrétta, var harmi slegin þegar hún fékk fregnir af því að Liam Payne, meðlimur bresku strákahljómsveitarinnar OneDirection, væri látinn. Sveitin, sem lagði upp laupana árið 2016, er ein af söluhæstu hljómsveitum í heimi, og á sér enn marga, trygga aðdáendur. Fréttir bárust af því í gærkvöldi að Liam hefði fallið til jarðar úr hótelherbergi í Argentínu. Við hringdum í Karítas til þess að fá meiri upplýsingar um Liam,

Tara og Silla eru gjörningatvíeyki sem hafa verið að gera gjörninga saman síðan 2017.

Þær ásamt Juan Pablo, sem búsettur er í Belgíu, munu halda gjörningakvöld í Ásmundasal á morgun. Þar munu 5 gjörningalistamenn á stokk og endurflytja með sínum hætti, sinn fyrsta gjörning. Planið er að roðna saman.

Brynja Hjálmsdóttir er að horfa á nýja þætti úr DC Comics heiminum, The Penguin sem koma úr smiðju HBO. Hinn írski Colin Farrel fer með aðalhlutverkið og þykir nær óþekkjanlegur sem Mörgæsarmaðurinn.

Við fögnum 10 ára afmæli plötubúðarinnar og útgáfunnar Reykjavík Record Shop á Klapparstíg. Við ræðum við nýjan eiganda búðarinnar, Jóhann Ágúst Jóhannsson, sem lét gamlan draum rætast og keypti plötubúð á dögunum.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
e
Endurflutt.
,