14:00
Kúrs - 17. júní
Kúrs - 17. júní

Íslands þúsund ár - hvar er stemmingin á 17. júní?

Eins og nafnið gefur til kynna fjallar þessi þáttur um elskulegan þjóðhátíðardag okkar Íslendinga, 17. júní. Í honum deilir Þorbjörg Arna nokkrum léttum pælingum um fögnuð þjóðhátíðardaga og kryfur sérstaklega hvað sé eiginlega að frétta af hátíðarhöldum okkar Íslendinga í kringum 17. júní? Þetta viðfangsefni varð fyrir valinu þar sem umsjónarmaður hefur undanfarin ár búið bæði í Noregi og Hollandi og dáðst að því hversu hátíðlega þessar þjóðir halda upp á sína þjóðhátíðardaga. Hún hefur saknað þess mjög að halda upp á stórhátíðir eins og 17. maí í Noregi og Koningsdag í Hollandi og veltir fyrir sér af hverju henni finnst 17. júní ekki haldinn jafn hátíðlegur af hinum almenna Íslendingi.

Umsjón: Þorbjörg Arna S. Jónasdóttir.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 28 mín.
,