16:05
Páll Óskar og Sinfó
Páll Óskar og Sinfó

Hljóðritun frá tónleikum Páls Óskars Hjálmtýssonar með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Eldborg 16. ágúst 2024

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Anthony Weeden hljómsveitarstjóri

Páll Óskar Hjálmtýsson einsöngvari

Páll Óskar Hjálmtýsson (f. 1970) er sjálfmenntaður söngvari og hefur verið áberandi sem ein skærasta poppstjarna Íslands í rúm 30 ár. Eftir hann liggja fjölmargar upptökur, sólóplötur og samstarfsverkefni með öðrum tónlistarmönnum en plötur hans hafa selst í bílförmum og troðfullt er á tónleika hans og dansleiki.Samstarf hans við tónlistarmanninn Jóhann Jóhannsson gaf af sér ríkulegan ávöxt á fyrstu fjórum sólóplötum Páls Óskars. Af sólóplötum hans má nefna Palli (1995), Seif (1996), Deep Inside (1999), Ef ég sofna ekki í nótt (2001) og Ljósin heima (2003), sem hann gerði ásamt Moniku Abendroth hörpuleikara. Hann gerði plöturnar Milljón á mann (1994) og Þetta er nú meiri vitleysan (2001) ásamt Milljónamæringunum, Stereo (1998) ásamt hljómsveitinni Casino og umturnaði Eurovision árið 1997 með laginu „Minn hinsti dans“.

Samstarf hans við tónlistarmanninn Jóhann Jóhannsson gaf af sér ríkulegan ávöxt á fyrstu fjórum sólóplötum Páls Óskars. Af sólóplötum hans má nefna Palli (1995), Seif (1996), Deep Inside (1999), Ef ég sofna ekki í nótt (2001) og Ljósin heima (2003), sem hann gerði ásamt Moniku Abendroth hörpuleikara. Hann gerði plöturnar Milljón á mann (1994) og Þetta er nú meiri vitleysan (2001) ásamt Milljónamæringunum, Stereo (1998) ásamt hljómsveitinni Casino og umturnaði Eurovision árið 1997 með laginu „Minn hinsti dans“. Ómælt er það starf sem hann hefur sinnt í þágu réttindabaráttu hinsegin fólks. Þegar dansplatan Allt fyrir ástina kom út árið 2007 sló hún öll hans fyrri met – og jafnvel annara íslenskra poppara í leiðinni. Henni var afar vel tekið, bæði af gagnrýnendum og almenningi, og samstarf hans við upptökustjórann og lagahöfundinn Örlyg Smára hefur reynst mjög gjöfult. Þá ber að nefna þátt lagahöfundarins Trausta Haraldssonar, en bæði hann og Örlygur Smári hafa samið mörg þekktustu lög Palla gegnum tíðina. Á plötunni voru m.a. smellirnir „Allt fyrir ástina“, „International“, „Betra líf“ og „Er þetta ást?“. Páll Óskar kom fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands á stórtónleikum í Háskólabíói árið 2010 og í Hörpu 2011 við frábærar undirtektir. Færri komust að en vildu og náði upptaka frá tónleikunum metsölu. Auk þess hefur hann sungið með sveitinni við önnur tilefni s.s. á jólatónleikum og á tónleikum árið 2020 sem var sjónvarpað beint á RÚV. Nú vinnur Páll Óskar að plötu með tónlistarmanninum Benna Hemm Hemm og fá tónleikagestir Sinfóníuhljómsveitar Íslands forsmekkinn af því samstarfi á tónleikunum í Eldborg í kvöld.

Bakraddir: Gísli Magna Sigríðarson Ingibjörg Fríða Helgadóttir Rósa Guðrún Sveinsdóttir

Forleikur Úts.: Þórir Baldursson

Galið gott - Dolce vita Lög: Victor Guðmundsson / Trausti Haraldsson Texti: Páll Óskar Hjálmtýsson Úts.: Ingvar Alfreðsson

Spurningar Lag og texti: Birnir Sigurðarson, Páll Óskar Hjálmtýsson, Þormóður Eiríksson Úts.: Viktor Orri Árnason

Undir álögum Lag og texti: Benni Hemm Hemm og Páll Óskar Hjálmtýsson Úts.: Haraldur Vignir Sveinbjörnsson

Elskar þú mig ennþá? Lag: Sveinn Marteinn Jónsson, Egill Ragnarsson, Jonny Cole Texti: Páll Óskar Hjálmtýsson Úts.: Ingvar Alfreðsson

Betra líf Lag: Örlygur Smári, Niclas Kings, Daniela Vecchia Texti: Páll Óskar Hjálmtýsson Úts.: Haraldur Vignir Sveinbjörnsson

Söngur um lífið Lag: Boudleaux Bryant Texti: Þorsteinn Eggertsson Úts.: Þórir Baldursson

Ást við fyrstu sýn Lag og texti: Magnús Þór Sigmundsson Úts.: Haraldur Vignir Sveinbjörnsson

Þú komst við hjartað í mér Lag: Sveinbjörn Bjarki Jónsson (Toggi) Texti: Páll Óskar Hjálmtýsson Úts.: Þórir Baldursson

Hlé

Einn dans Lag: StopWaitGo Texti: Páll Óskar Hjálmtýsson Úts.: Viktor Orri Árnason

Er þetta ást? Lag: Jón Andri Sigurðarson, Trausti Haraldsson, Páll Óskar Hjálmtýsson Texti: Páll Óskar Hjálmtýsson, Brynhildur Björnsdóttir Úts.: Haraldur Vignir Sveinbjörnsson

Stanslaust stuð Lag: Jóhann Jóhannsson, Sigurjón Kjartansson, Páll Óskar Hjálmtýsson Texti: Páll Óskar Hjálmtýsson Úts.: Haraldur Vignir Sveinbjörnsson

Ljúfa líf Lag: Gunnar Þórðarson Texti: Þorsteinn Eggertsson Úts.: Þórir Baldursson

Allt fyrir ástina Lag: Örlygur Smári, Niclas Kings, Daniela Vecchia Texti: Páll Óskar Hjálmtýsson Úts.: Samúel Jón Samúelsson

International Lag: Örlygur Smári, Niclas Kings, Daniela Vecchia Texti: Páll Óskar Hjálmtýsson Úts.: Samúel Jón Samúelsson

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 43 mín.
,