22:10
Maí '68
Maí '68

Í tveimur þáttum er fjallað um stúdentauppreisnina í París árið 1968 en nú eru 50 ár síðan þeir atburðir skóku Frakkland. Frásögnin byggir að verulegu leyti á vitnisburði sjónarvotta. Sagt er frá því hvernig mótmæli stúdenta breyttust á undraskömmum tíma í víðtæka samfélagsádeilu sem lamaði allt Frakkland. Stúdentar yfirtóku háskólana, verkafólk lagði undir sig verksmiðjur og verkföll loguðu um allt landið. Valdinu var sagt stríð á hendur og frjálslegri samfélaghátta krafist. Mótmælagöngur voru haldnar, götubardagar áttu sér stað, pólitísk svartlistaverk skutu upp kollinum og slagorðin báru vott um að ímyndunaraflið hefði verið hafið til valda. Kjörorðið var: „Verið raunsæ, krefjist hins ómögulega“. Unga fólkið hafði fengið nóg af fornum siðaboðum og hvers kyns valdmennsku. Nú átti að gera upp við gamla heiminn og innleiða nýja tíma. Bylting lá í loftinu en uppreisnin var að lokum brotin á bak aftur en ekkert var þó sem áður. Mörk hins mögulega höfðu verið færð út og lífshættir almennings urðu frjálslegri. Allar götur síðan hafa Frakkar talað um fyrir og eftir maí ´68.

Viðmælendur eru :

* Benjamín Magnússon

* Dominique Pledel Jónsson

* Einar Már Jónsson

* Erro

* Friðrik Páll Jónsson

* Gerard Lemarquis

* Ingibjörg Hafstað

* Líney Skúladóttir

* Pétur Gunnarsson

* Sigurður Pálsson

Áður á dagskrá 2018.

Er aðgengilegt til 15. september 2025.
Lengd: 51 mín.
e
Endurflutt.
,