12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 10. mars 2024
Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Fátt bendir til þess að samið verði um vopnahlé á Gaza fyrir föstumánuð múslima, sem er í þann mund að hefjast. Bandaríkjaforseti segir forsætisráðherra Ísraels gera meiri skaða en gagn með stríðsrekstrinum á Gaza.

Ekki er ljóst hvað varð til þess að eldur kviknaði í einu elsta húsi Selfoss í gærkvöld. Talið er að engin hafi verið í húsinu.

Ellefu særðust í drónaárásum Rússa í austurhluta Úkraínu í nótt. Tveir féllu í slíkum ásum í gær. Tyrkir vilja að reynt verði að semja um lok stríðsins í Úkraínu.

Fulltrúar EFTA og Indlands undirrituðu í dag nýjan fríverslunarsamning milli ríkjanna. Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra segir að hann hafi mikla þýðingu fyrir viðskipta- og efnahagssamband Íslands við Asíu.

Betri orkunýting til að greiða fyrir orkuskiptum er raunhæf leið -- en stefna stjórnvalda í loftslagsmálum er hins vegar í molum, segir formaður Náttúrverndarsamtaka Íslands.

Frægasta dúkka heims, Barbie, fagnaði sextíu og fimm árum í gær og nálgast eftirlaunaaldur óðfluga -- ekkert útlit er þó fyrir að hún setjist í helgan stein á næstunni.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 20 mín.
,