
Bæn og hugleiðing að morgni dags.
Séra Benjamín Hrafn Böðvarsson flytur.
Í þættinum verður ferðast á fáfarnar en áhugaverðar slóðir vítt og breitt um veröldina. Saga hvers staðar verður rakin og tónlist tengd honum leikin. Í hverjum þætti verður rætt við fólk sem hefur ferðast um viðkomandi land og það segir frá þeim áhrifum sem það varð fyrir af náttúru og menningu. Netfang þáttarins: <a href="mailto:magnusre@ruv.is">magnusre@ruv.is</a>
Umsjón Magnús R. Einarsson. Þættirnir eru einnig á Hlaðvarpi Rúv <a href="http://www.ruv.is/podcast"> HLAÐVARP RÚV</a>
Í þættinum er ferðast á fáfarnar en áhugaverðar slóðir vítt og breitt um veröldina. Saga hvers staðar er rakin og tónlist tengd honum leikin. Í hverjum þætti er rætt við fólk sem hefur ferðast um viðkomandi land og það segir frá þeim áhrifum sem það varð fyrir af náttúru og menningu.
Kjartan Jónsson segir frá sjálfboðastarfi í Kenía.
Umsjón: Magnús R. Einarsson.

Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Tónskáldið Bedrich Smetana hefur verið kallaður faðir tékkneskrar tónlistar og hljómsveitarverk hans, „Moldá“, er alþekkt. Hann fæddist 2. mars 1824 og því eru á þessu ári 200 ár frá fæðingu hans. Í tilefni af því verður þátturinn tileinkaður tónlist hans og einnig samsvarandi þáttur í næstu viku, 14. mars. Í þáttunum verður æviferill Smetana rakinn og flutt verða tónverk eftir hann. Meðal tónsmíða sem fluttar verða í þættinum í dag eru þáttur úr píanótríói sem Smetana samdi árið 1855 til minningar um Bedrisku litlu dóttur sína, einnig verður flutt aría úr hinni vinsælu óperu „Seldu brúðinni" og að lokum hið fræga tónaljóð „Moldá". Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.

Fólk og menning í strandbyggðum á Íslandi.
Umsjón: Pétur Halldórsson.
Fluttur er lunginn úr erindum Sólveigar Ólafsdóttur sagnfræðings og Laufeyjar Steingrímsdóttur næringarfræðiprófessors sem þær fluttu á fundi sem Íslenska vitafélagið hélt í Sjóminjasafninu Víkinni í Reykjavík 22. febrúar 2012. Sólveig fjallaði um þorramatinn sem er í huga þjóðarinnar eitthvað það þjóðlegasta sem um getur. Samt er það svo að hugtakið þorramatur er ekki nema um hálfrar aldar gamalt og sprottið frá framtaki Halldórs Gröndals og félaga sem stofnuðu veitingastaðinn Naustið í Reykjavík laust fyrir 1960. Laufey ræðir um sögu lýsisvinnslu á Íslandi og þau margvíslegu not sem hafa verið fyrir lýsið í aldanna rás. Lýsið var ein dýrmætasta útflutningsvara Íslendinga frá því á fjórtándu öld, aðallega því að það var dýrmætt ljósmeti. En margvísleg hollusta lýsisins og notkun þess sem mýkingarefnis, við matargerð og fleira og fleira hefur gert að verkum að lýsið hefur margoft gengið í endurnýjun lífdaganna sem verðmæt framleiðsluvara. Og ekki síst á síðari árum hefur lýsið sem hollustuvara sótt mjög í sig veðrið enda mikilvægur D-vítamíngjafi.

Veðurstofa Íslands.

Óveðrið 4.-5. febrúar 1968 er eitt versta veður í manna minnum. Í Ísafjarðardjúpi leituðu á þriðja tug togara vars en ísinging hlóðst upp og skipverjar börðu af ísinn fyrir lífi sínu. Tvö skip sukku í hyldýpið og það þriðja strandaði. Eftir sátu fjölskyldur í sárum. Fjallað er um óveðrið, þrautsegju, hetjudáð og sorg en líka um hvað hefur breyst síðan þetta örlagaríka veður dundi á.
Umsjón: Halla Ólafsdóttir og Birgir Olgeirsson.
Sjómenn börðust fyrir lífi sínu í Ísafjarðardjúpi sunnudaginn 4. febrúar 1968. Fárviðri barði á þeim á meðan þeir reyndu vanbúnir tímunum saman að vinna gegn fordæmalausri ísingu sem hlóðst á skipin og ógnaði lífi þeirra. Menn trúðu vart sínum eigin eyrum þegar skipstjóri Ross Cleveland skilaði hinstu kveðju áhafnarinnar áður en hún mætti örlögum sínum.

Guðsþjónusta.
Alþjóðlegur bænadagur kvenna.
Séra Hildur Björk Hörpudóttir og séra Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, þjóna fyrir altari.
Predikun: Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands
Organisti: Keith Reed.
Kvennakórinn KFUK syngur.
Lesarar: Séra Hildur Björk Hörpudóttir, Una Sveinsdóttir, Valgerður Stefánsdóttir, Esther Sveinbjarnadóttir, Kristín Kateri, Bergdís Jónsdóttir, Halla Valgerður Reynisdóttir og Áslaug Haugland.
Fyrir predikun:
Forspil: Ó, þá náð að eiga Jesú eftir Charles C. Converse.
Sálmur 585: Mig dreymdi mikinn draum. Enskt þjóðlag. Texti: Sigurbjörn Einarsson. Útsetning: Keith Reed.
Ave Maria. Lag: G. Gaccini. Latneskur texti: Útsetning: Keith Reed.
Sálmur 724: Enginn þarf að óttast síður. Sænks laggerð af þýsku þjóðlagi. Texti: Lina Sandel, íslenskur texti: Friðrik Friðriksson. Útsetning: Keith Reed.
Eftir predikun:
Allt það sem ég þrái. Reuben Morgan/Hillsong. Texti: Hrönn Svansdóttir.
Sálmur 433: Þú, Guð míns lífs. Lag: Keith Reed. Texti: Matthías Jochumsson.
Eftirspil: Ó, Drottinn Guð er dásemd þína lít ég. Lag eftir Sigurð Pálsson.

Íslenskt lag eða tónverk.
Útvarpsfréttir.
Fátt bendir til þess að samið verði um vopnahlé á Gaza fyrir föstumánuð múslima, sem er í þann mund að hefjast. Bandaríkjaforseti segir forsætisráðherra Ísraels gera meiri skaða en gagn með stríðsrekstrinum á Gaza.
Ekki er ljóst hvað varð til þess að eldur kviknaði í einu elsta húsi Selfoss í gærkvöld. Talið er að engin hafi verið í húsinu.
Ellefu særðust í drónaárásum Rússa í austurhluta Úkraínu í nótt. Tveir féllu í slíkum ásum í gær. Tyrkir vilja að reynt verði að semja um lok stríðsins í Úkraínu.
Fulltrúar EFTA og Indlands undirrituðu í dag nýjan fríverslunarsamning milli ríkjanna. Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra segir að hann hafi mikla þýðingu fyrir viðskipta- og efnahagssamband Íslands við Asíu.
Betri orkunýting til að greiða fyrir orkuskiptum er raunhæf leið -- en stefna stjórnvalda í loftslagsmálum er hins vegar í molum, segir formaður Náttúrverndarsamtaka Íslands.
Frægasta dúkka heims, Barbie, fagnaði sextíu og fimm árum í gær og nálgast eftirlaunaaldur óðfluga -- ekkert útlit er þó fyrir að hún setjist í helgan stein á næstunni.
Þættirnir fjalla um ást Evu Halldóru Guðmundsdóttur og Viktoríu Blöndal á rithöfundinum Guðrúnu frá Lundi, skáldsagnapersónum hennar, lífi þeirra og veröld. Í þremur þáttum ætla þær að skoða bækur hennar og spjalla leikandi létt yfir rjúkandi heitum kaffibollum út um allt land. Umfram allt vilja þær að hlustendur komi sér vel fyrir, fái sér kaffilús og njóti þess að stíga inn í heim Guðrúnar frá Lundi.
Umsjón: Eva Halldóra Guðmundsdóttir og Viktoría Blöndal.
Þættirnir fjalla um ást Evu Halldóru Guðmundsdóttur og Viktoríu Blöndal á rithöfundinum Guðrúnu frá Lundi, skáldsagnapersónum hennar, lífi þeirra og veröld. Í þremur þáttum ætla þær að skoða bækur hennar og spjalla leikandi létt yfir rjúkandi heitum kaffibollum út um allt land. Umfram allt langar þeim að bjóða hlustendum að koma sér vel fyrir, fá sér kaffilús og njóta þess að stíga inn í heim Guðrúnar frá Lundi.
Viðmælendur á þáttunum eru Kristín Sigurrós Einarsdóttir, Karl Jónas Gíslason, Bjarni Harðarson, Erla Hulda Halldórsdóttir, Ragnheiður Kristjánsdóttir, Jón Ormar Ormsson, Ásta Kristín Benediktsdóttir, Halldóra Kristinsdóttir og Ingólfur Sveinsson.

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Úrval úr Lestarþáttum vikunnar.
Tónlist úr ýmsum áttum. Nýjar hljóðritanir Rásar 1 í bland við nýjar plötur íslenskrar og erlendrar tónlistar.
Tónhjólið snýst og snýst og upp koma sögur af tónlist, nýrri og gamalli. Ólíkar stefnur og straumar skjóta upp kolli og líka hljóðfæri, hugtök og túlkunarmöguleikar. Hugað verður að einhverju því sem hæst ber á tónlistarsviðinu í heimi sígildrar tónlistar og djasstónlistar á hverjum tíma.
Steinar Logi Helgason kórstjóri í Hallgrímskirkju er gestur þáttarins að þessu sinni. Hann segir frá tónlistaráhuga sínum og nýrri uppbyggingu kórstarfs í Hallgrímskirkju.
´Tónhjólið skoðar líka sögu Rhapsody in blue eftir George Gershwin sem er hundrað ára um þessar mundir.
Tónlistin í þættinum:
Rachel Podger og Christopher Glynn leika Adagio - molto espressivo þátt úr Vorsónötu Beethovens.
Í umfjöllun um Rhapsody in blue leika verkið Paul Whiteman og hljómsveit hans ásamt höfundinum George Gershwin, banjóleikarinn Bela Fleck og Andre Previn og Sinfóníuhljómsveitin í Pittsburgh. Brot heyrast úr gömlum viðtölum við George og Ira Gershwin.
Tenebrea kórinn undir stjórn Nigels Short syngur Song for Athene eftir John Tavener
The Sixteen syngja Timor et tremor úr fjórum mótettum eftir Francis Poulenc.

Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir, Atli Sigþórsson og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Almenningsgarður einn, miðsvæðis í Reykjavík, hefur frá 2009 heitið Klambratún. Borgarbúar hafa notað þetta nafn frá því á 6. áratugnum en ráðamenn í Reykjavík ákváðu þó að það skyldi heita Miklatún. Gluggað er í sögu þessara nafna og líka orðsins klömbur sem heiti túnsins er rakið til.

Fréttir
Kvöldfréttir útvarps
Rás 1 og Fréttastofa RÚV kynna: Um miðjan desember 2023 bárust þau tíðindi að landlæknisembættið hefði takmarkað starfsleyfi Árna Tómasar Ragnarssonar gigtarlæknis. Hann gæti ekki lengur skrifað upp á tiltekin lyf fyrir sjúklinga sína. Lyfin sem hann ávísaði voru nefnilega sterk lyfseðilskyld morfínlyf. Þeir sem hann ávísaði þeim til voru einstaklingar með alvarlegan og langvarandi fíknisjúkdóm.
Veitti Árni sjúkum líkn eða olli hann tjóni? Veldur landlæknir sjúklingum skaða með því að stíga inn í störf hans? Hvað verður um skjólstæðinga Árna?
Pétur Magnússon fréttamaður kafar í sögu Árna, skjólstæðinga hans og stöðu skaðaminnkunar í íslenska heilbrigðiskerfinu.
Skjólstæðingar Árna Tómasar fengu ávísað Contalgin-töflum. Það eru forðatöflur sem ætlað er að taka inn um munn. Þær eru þannig hannaðar að húð þeirra leysist upp í meltingarveginum sem gerir það að verkum að áhrif lyfsins eru jafnari. En sumir notendur þessara lyfja gleypa þau ekki.
Í þættinum er rætt við Sigurð Örn Hektorsson, Valgerði Rúnarsdóttur, Helgu Sif Friðjónsdóttur, Árna Tómas Ragnarsson, Ólöfu Jónu Ævarsdóttur, Ernu Hinriksdóttur og Andra.
Umsjón: Pétur Magnússon
Tónlist: Gugusar og Annalísa
Ritstjórn og samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir og Anna Marsibil Clausen

Veðurstofa Íslands.

Umsjón: Svanhildur Jakobsdóttir.

Tveir þættir frá 2012 þegar liðin voru tvö hundruð ár síðan eitt frægasta sagnaskáld heimbókmenntanna, breski höfundurinn Charles Dickens, fæddist, 7. febrúar 1812. Fjallað er um sagnagerð Dickens og rætt sérstaklega um íslenskar viðtökur verka hans. Byrjað var að þýða sögur höfundarins á íslensku strax á nítjándu öld og eru margar þeirra til í þýðingum, hin frægasta, Oliver Twist, hefur verið þýdd tvisvar og komið út margsinnis. Aðrar alkunnar sögur eru Davíð Copperfield og Jóladraumur sem til er í tveimur þýðingum. Margar sagnanna hafa aðeins verið gefnar út í útdrætti á íslensku, enda flestar mjög langar frá hendi höfundarins. - Sögur Charles Dickens njóta stöðugra vinsælda, sem marka má af mörgum sjónvarpsþáttum sem gerðir hafa verið upp úr þeim.
Umsjón: Ástráður Eysteinsson.
Tveir þættir sem voru gerðir þegar liðin voru tvö hundruð ár frá því að eitt frægasta sagnaskáld heimbókmenntanna, breski höfundurinn Charles Dickens, fæddist, 7. febrúar 1812.
Fjallað er um sagnagerð Dickens og rætt sérstaklega um íslenskar viðtökur verka hans. Byrjað var að þýða sögur höfundarins á íslensku strax á nítjándu öld og eru margar þeirra til í þýðingum, hin frægasta, Oliver Twist, hefur verið þýdd tvisvar og komið út margsinnis. Aðrar alkunnar sögur eru Davíð Copperfield og Jóladraumur sem til er í tveimur þýðingum. Margar sagnanna hafa aðeins verið gefnar út í útdrætti á íslensku, enda flestar mjög langar frá hendi höfundarins.
Sögur Charles Dickens njóta stöðugra vinsælda, sem marka má af mörgum sjónvarpsþáttum sem gerðir hafa verið upp úr þeim. Umsjónarmaður er Ástráður Eysteinsson.

Gestur úr Mannlega þættinum talar um bækur.
Lesandi vikunnar í þetta sinn var Huldar Breiðfjörð, rithöfundur og handritshöfundur og greinarformaður í ritlist við Háskóla Íslands. Við forvitnuðumst um hvað hann er að gera þessa dagana og svo fengum við auðvitað að vita hvaða bækur hann hefur lesið undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Huldar sagði frá eftirfarandi bókum og höfundum:
When We Cease to Understand the World e. Benjamin Lapatut
Endurminningar Annie Ernaux
GoatMan e. Thomas Thwaites
og svo höfundunum, Þórbergi Þórðarsyni, Brett Easton Ellis og Douglas Coupland.

Þórarinn Björnsson kennari fer víða og spjallar við eldra fólk um lífsstarfið og sitthvað fleira.
Þættirnir voru áður á dagskrá 2006 til 2007.
Þórarinn Björnsson heimsækir Leif Eiríksson, Hrafnistu, Hafnarfirði.
Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga.
Talað er við Halldóru Steinu Biering Garðarsdóttur um lífið með og eftir flogaveiki. En hún greindist með flogaveiki þegar hún var einungis 9 ára gömul. Meðan hún var á barns- og unglingsaldri lét hún veikindin ekki stöðva sig og stundaði íþróttir af fullum krafti, rétt eins og önnur ungmenni. Þegar hún varð eldri fóru veikindin að draga verulega úr lífsgæðum hennar. En það var svo um 20 árum síðar, eða 1999, sem hún var send í aðgerð á Mayo Clinic í Bandaríkjunum. Tilgangurinn var að losa hana við flogaveikina. Í kjölfarið öðlaðist hún algerlega nýtt og betra líf. Við heyrum sögu hennar og hvernig hún svo hefur það í dag, 24 árum eftir að hún fór í þessa miklu aðgerð.
Umsjón: Helgi Valdimar Viðarsson Biering.

Veðurstofa Íslands.

Umsjón: Kristján Kristjánsson.
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Í þessum þætti er áfram fjallað um séra Þórð Jónsson í Reykjadal í Hrunamannahreppi sem sagt var frá í síðasta þætti. Hér segir frá deilum sem hann lenti í við skólapilta í Skálholti en á biskupssetrinu virðist hafa verið alsiða að berja hann og kvelja, gamlan manninn. Síðan segir frá séra Jóni Guðmundssyni sem var um tíma einnig prestur í Reykjadal en hafði áður misst embættið vegna þess að hann kennti prófasti sínum um að hafa eignast barn með kátri ekkju, sem óhætt er að segja að hafi ekki verið eina fjöldina felld.
Umsjón: Illugi Jökulsson.

Útvarpsfréttir.
Umsjón: Atli Már Steinarsson.
Það getur verið að einhver ykkar þarna úti hafið heyrt talað um hjólaskautaat, en þetta tiltölulega óþjála orð er þýðing á enska orðinu “rollerderby”. En það getur líka vel verið að einhver hafi bara aldrei heyrt á þetta fyrirbæri, sem flokkast sem íþróttagrein og er frekar ung sem slík. Ég sá hana fyrst fyrir rúmlega 15 árum á ferðalagi í Bandaríkjunum og vissi ekki mikið þá, en fyrst það er byrjað að stunda þetta hér á landi fannst mér tilvalið að kynna mér málið betur og fékk til mín Guðnýju Jónsdóttur, en hún er ein af stofnendum Rollerderby Iceland, til að segja mér allt um íþróttina, hvaðan hún kemur og hvernig hún fer fram.
Fyrir meiri upplýsingar og fræðslu er hægt að kíkja á rollerderby.is

Jón eigrar um akra tónlistarinnar, léttstígur og viljugur með skemmtilega fróðleiksmola í farteskinu.
Íslensk tónlist spilar yfirleitt stórt hlutverk. Þægilegur og laufléttur morgunþáttur í umsjón frumherja Rásar 2.
Umsjón: Jón Ólafsson
Tónlistarmaðurinn Björgvin Gíslason, féll frá þann 5.mars s.l., og var síðari hluti þáttarins fyrir vikið helgaður honum og hans tónlist. Fyrir utan tónlist af sólóplötum hans og með hljómsveitum eins og Náttúru var leikin upptaka frá tónleikum í Laugardalshöll í sept. 1976 þar sem hann lék með hljómsveitinni Paradís. Annað efni í þættinum var úr ýmsum áttum sem fyrr en Íslendingar voru í stórum meirihluta flytjenda.
Stiklað á stóru í sögu Stax hljóðversins og hljómplötuútgáfunnar á árunum frá 1959 til 1968. Í Stax stúdíóinu voru tekin upp mörg af þekktustu soul lögum suðurríkja Bandaríkjanna á þessum árum með flytjendum á borð við Booker T. & the MG´s, Cörlu Thomas, Wilson Pickett og Otis Redding o.fl. Sagan er í senn saga gleði og sorgar, sigra og ósigra auk þess sem hún er samtvinnuð réttindabaráttu svartra í Bandaríkjunum og stórum atburðum á þeim vettvangi.
Umsjón: Gunnlaugur Sigfússon
Í þessum öðrum þætti af fjórum um sögu Stax hljóðversins og útgáfunnar í Memphis Tennesse heldur Gunnlaugur Sigfússon áfram að rekja sögu Stax. Hann segir meðal annars frá því þegar Otis Redding kemur til sögunnar.
Lagalisti:
Booker T. & The MG´s – Mo-Onions
Booker T. & the MG´s – Boot-leg
Otis Redding – These Armes of Mine
Deanie Parker & The Valadors – My Imaginary Guy
Sam & Dave - I Take What I Want
Rufus Thomas – Walking The Dog
Otis Redding – Pain in my heart
Otis Redding – Mr. Pitiful
David Porter – Can´t See You when I Want To
Sam & Dave – You Don´t Know Like I Know
Otis Redding – I´ve Been Loving You To Long
The Astors – Candy
Carla Thomas – Stop What You´re Doing
Mad Lads – Don´t Have to Shop Around
Wilson Pickett – In The Midnight Hour
Don Covay – See Saw
Otis Redding - What a Wonderful World
Útvarpsfréttir.
Fátt bendir til þess að samið verði um vopnahlé á Gaza fyrir föstumánuð múslima, sem er í þann mund að hefjast. Bandaríkjaforseti segir forsætisráðherra Ísraels gera meiri skaða en gagn með stríðsrekstrinum á Gaza.
Ekki er ljóst hvað varð til þess að eldur kviknaði í einu elsta húsi Selfoss í gærkvöld. Talið er að engin hafi verið í húsinu.
Ellefu særðust í drónaárásum Rússa í austurhluta Úkraínu í nótt. Tveir féllu í slíkum ásum í gær. Tyrkir vilja að reynt verði að semja um lok stríðsins í Úkraínu.
Fulltrúar EFTA og Indlands undirrituðu í dag nýjan fríverslunarsamning milli ríkjanna. Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra segir að hann hafi mikla þýðingu fyrir viðskipta- og efnahagssamband Íslands við Asíu.
Betri orkunýting til að greiða fyrir orkuskiptum er raunhæf leið -- en stefna stjórnvalda í loftslagsmálum er hins vegar í molum, segir formaður Náttúrverndarsamtaka Íslands.
Frægasta dúkka heims, Barbie, fagnaði sextíu og fimm árum í gær og nálgast eftirlaunaaldur óðfluga -- ekkert útlit er þó fyrir að hún setjist í helgan stein á næstunni.

Umsjón: Ýmsir.
Yrsa Sigurðardóttir glæpasagnadrottning er gestur í Sunnudagasögum að þessu sinni. Hún segir frá jólakúlunum sem hún safnar, hvernig hún hlustar á hryllingsmyndir á meðan hún skrifar glæpasögur, verkfræðinni, munnlegu prófi í MR, dvöl sinni í Kanada og ótrúlegu láni þegar minnstu munaði að dóttir hennar lenti í skelfilegu slysi. Slík var heppnin þann dag að hún segist aldrei þurfa að lenda í neinu láni aftur.

Rúnar Róberts í huggulegum helgargír.
Við heyrðum topplagið í Bandaríkjunum á þessum degi, 10. mars árið 1984, sem var lagið Jump með Van Halen. Skoðaði hvað væri um er að vera í vikunni framundan í helstu boltaíþróttunum. Eitís plata vikunnar var War frá 1983 með U2. Nýjan ellismell vikunnar áttu Madness. Lagið heitir Round we go, þá var Eitís 12 tomma vikunnar lagið Relax (New York mix) með Frankie goes to Hollywood.
Lagalisti:
14:00
JÓNFRÍ - Andalúsía.
Olivia Newton-John & ELO - Xanadu.
Harry Styles - Adore You.
Van Halen - Jump. (Topplagið í USA 1984)
Una Torfadóttir - Um mig og þig.
Imagination - Just An Illusion.
ABBA - The Winner Takes It All.
Á móti sól - Til eru tár.
Frankie goes to Hollywood - Relax (New York mix the original 12')(Eitís tólftomman)
Billy Joel - A matter of trust.
Billie Eilish - What Was I Made For.
15:00
Daði Freyr Pétursson - I'm not bitter.
Spandau Ballet - Round and Round.
U2 - New Years Day (Eitís plata vikunnar)
U2 - Sunday Bloody Sunday (Eitís plata vikunnar)
Dua Lipa - Training Season.
Bryan Ferry - Slave To Love.
Prince - Raspberry Beret.
The Dixie Chicks - Landslide (Minning úr tónlistarsögunni)
Tears for fears - Sowing the Seeds of Love
Madness - Round we go (Nýr ellismellur)
Madonna - Like a virgin
Journey - Don't stop believin'

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og í næsta haust eru 30 ár liðið síðan hann fór fyrst í loftið.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson
Í Rokklandi í dag heldur Elvar Freyr Elvarsson áfram að segja okkur sögu bandarísku hljómsveitarinnar Hüsker Dü Í fyrri hluta þáttar dagsins koma Músíktilraunir við sögu – en fyrsta undankvöld af fjórum er i kvöld í Norðurljósum í Hörpu kl. 19.30.
Aldrei fór ég suður kemur við sögu líka, en Músíktilraunir og Aldrei fór ég suður tengjast. Aldrei-stjórinn Mugison og Björgvin Gíslason tengjast líka og þeir koma báðir aðeins við sögu líka – og annað fólk.

Fréttir
Kvöldfréttir útvarps
Tónlistinn er vinsældalisti Íslands. Listinn er samantekt á mest spiluðu lögunum á útvarpsstöðvunum Bylgjunni, FM957, X-inu 977, Rás 2 og K100, sem og á streymisveitum. Listinn er unninn af Félagi hljómplötuframleiðenda og er á dagskrá Rásar 2 alla sunnudaga.
Umsjón: Helga Margrét Höskuldsdóttir.
Vinsælustu lögin á Íslandi vikuna 3. - 10. mars 2024.

Fréttastofa RÚV.

Umsjón: Andrea Jónsdóttir.
Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum. Í þáttunum er eitt ár í íslenskri dægurlagtónlistarasögu tekið fyrir í einu frá árinu 1980 til 2020. Umsjónarmenn: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
Mugison stofnar hljómsveit, Hjálmar hætta við að hætta og Jónas Sig dansar þar sem malbikið svífur. Jakobínarína vekur bjartar vonir, Hljómsveitin Hraun segir ástarasögu úr fjöllunum og Silvía Nótt klórar í bakkann. B.Sig gefur út sína fyrstu og einu plötu, Sometime er með tromp á hendi, Mínus gengur í gegnum breytingar. og Jan Mayen býður upp á gleðireið. Sniglabandið semur lög í samvinnu við hlustendur Rásar 2, Ljótu hálfvitarnir stíga á stokk, Eivör syngur um mannabarn, Stuðmenn fríka út í góðærinu og Magnús Þór syngur um bjartan og sólríkan dag í miðju þunglyndiskasti. Jón Ólafs er á persónulegum nótum, Ný Dönsk er tvítug, Dr. Spock gefur skít í pakkið en stóra spurningin er hvort krúttin séu dauð.
Meðal viðmælenda í 34. þættinum, í seinni hluta umfjöllunar um íslenska tónlistarárið 2007, eru Örn Elías Guðmundsson, Arnar Þór Gíslason, Guðni Finnsson, Svavar Knútur Kristinsson, Bjarki Sigurðsson, Daði Birgisson, Magnús Þór Sigmundsson, Friðþjófur Ísfeld Sigurðsson, Einar Ágúst Víðisson, Ágúst Bogason, Snæbjörn Ragnarsson, Arngrímur Arnarson, Eggert Hilmarsson, Guðmundur Kristinn Jónsson, Jón Ólafsson, Daníel Ágúst Haraldsson, Jónas Sigurðsson, Óttar Proppé, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Gaukur Úlfarsson, Sölvi Blöndal, Gunnar Ragnarsson, Gunnar Örn Tynes, Örvar Þóreyjarson Smárason, Atli Bollason, Hildur Ársælsdóttir, María Huld Markan, Björn Stefánsson og Þorkell Máni Pétursson.
Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
Lagalisti:
Mugison - Pathetic Athem
Mugison - Mugiboogie
Mugison - To the Bone
Mugison - Jesus is a Good name to moan
Hraun - Impossible
Hraun - Clementine
Hraun - Ástarasaga úr fjöllunum
B Sig - You could be my
B.Sig - the Lucky Man
B.Sig - It’s True
Magnús Þór - Bright And Sunny Day
Magnús Þór - Persona Me
Magnús Þór - White Dove
Sniglabandið - Selfoss er
Sniglabandið - Britney fyrsta teik í þættinum
Sniglabandið & Nylon - Britney
Sniglabandið & Egill Ólafs 5 ára syngur Hvers vegna varstu ekki kyrr
Einar Ágúst - Er ást annars vegar (Tim Christiansen)
Einar Ágúst - Hvað er að lokum
Sometime - Heart Of Spades
Ragnhildur Steinunn & Helgi Björnsson - Sumarást (Lee Hazlewood)
Utangarðsmenn - Kyrlátt kvöld við fjörðinn
Jan Mayen - Let It Burn
Jan Mayen - Joyride
Rúnar Júlíusson - Ó Keflavík
Rúnar Júlíusson - Daginn í dag
Stuðmenn – Bíólagið Stórtónleikar Kaupþings
Eivör Pálsdóttir - Mannabarn
Eivör Pálsdóttir - Livandi trö
Ljótu hálfvitarnir - Sonur hafsins
Ljótu hálfvitarnir - Bjór meiri bjór
Hjálmar - Vagga Vagga
Hjálmar - Leiðin okkar allra
Hjálmar - Ferðasót
Jón Ólafsson - Merkilegt
Jón Ólafsson - Skortur á þér
Nýdönsk - Verðbólgin augu
Nýdönsk - Freistingar
Jónas Sig - Þar sem malbikið svífur mun ég dansa
Jónas Sig - Ofskynunarkonan
Jónas Sig - Baráttursöngur uppreisnarklansins
Dr. Spock - Skítapakk
Silvía Nótt - Goldmine
Silvía Nótt - Thank You Baby
Silvía Nótt - The Gospel of Silvía Night
Jakobínarína - I’ve Got A Date With My Television
Jakobínarína - His Lyrics Are Disastrous
Jakobínarína - This Is An Advertisement
Jakobínarína - I’m Villain
Múm - School Song Misfortune
Múm - They Made Frogs Smoke 'Til They Exploded
Amiina - Seoul
Norah Jones - Come away with me
AIR - All I Need
Elton John - Tiny Dancer
Boys In A Band - Secrets To Conceal
The Magic Numbers - Love Me Like You
Mínus - Cat’s Eyes
Mínus - Futurist
Seabear - Libraries
Seabear - I sing I swim