08:05
Tónleikur
Haukur Tómasson og kontrabassinn

Tónleikurinn áskilur sér rétt til að fara í allar áttir, ákveðin tónskáld verða tekin fyrir í sumum þáttum, í öðrum eltir þáttastjórnandi ákveðnar tilfinningar, liti eða kenndir. Aðrir tónlistarmenn en tónskáld verða líka til umfjöllunar, flytjendur teknir tali og spurðir spjörunum úr. Einnig verður farið í ferðalög útfrá nöfnum og verkum tónskálda sem eru á dagskrá hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands eða á öðrum vettvangi þau skoðuð í víðu samhengi og leikin önnur verk eftir sömu tónskáld.

Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir

Tónleikurinn beinir sjónum sínum í tvær áttir í dag; annars vegar að Hauki Tómassyni tónskáldi, og hins vegar að kontrabassanum.

Leikin verða tvö verk eftir Hauk Tómasson, það fyrra er Strati sem verður á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands 15. október næstkomandi, hitt er Skíma – konsert fyrir tvo kontrabassa og hljómsveit. Auk þess verða leikin tvö stutt lög þar sem kontrabassinn er í burðarhlutverki; lagið Opnunartími eftir Davíð Þór Jónsson þar sem Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson leikur á kontrabassann; Davíð er þar á píanó og Helgi Svavar Helgason á trommur. Hitt lagið er Minning eftir Tómas R. Einarsson, sem leikur ásamt Olivier Manoury bandeoneon-leikara.

Ekki leyfi fyrir netáhorf eftir útsendingu.
Lengd: 45 mín.
e
Endurflutt.
,