12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 12. september 2026

Útvarpsfréttir.

Heilbrigðisráðherra hefur þungar áhyggjur af stöðunni innan SÁÁ. Hún óttast að samtökin verði af gríðarlegri fagþekkingu og fylgist grannt með gangi mála.

Hútar hafa náð tökum á ströndinni við Rauðahaf og hertóku þrjár mikilvægar eyjur á Rauðahafi í skyndisókn í gær.

Mikil spenna ríkir í Svíþjóð þar sem þingkosningar verða á morgun. Aðeins munar tveimur prósentustigum á hægri og vinstri blokkunum.

Talið er að veðurfyrirbærið El Nino verði öflugri en nokkru sinni undir lok árs og þó nokkur ríki hafa þegar lýst yfir neyðarástandi.

Atvinnuvegaráðherra segir bagalegt að frumvarp um lagareldi hafi dagað uppi á síðasta þingvetri. Forgangsröðun réði því að málið rataði ekki á þingmálaskrá.

Landverðir stöðvuðu rútu á vegum Arctic Adventures á Þingvöllum vegna olíuleka. Þjóðgarðsvörður segir ámælisvert að rútan hafi verið í notkun þrátt fyrir lekann. Forstjóri fyrirtækisins harma atvikið.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,