
Tónleikurinn áskilur sér rétt til að fara í allar áttir, ákveðin tónskáld verða tekin fyrir í sumum þáttum, í öðrum eltir þáttastjórnandi ákveðnar tilfinningar, liti eða kenndir. Aðrir tónlistarmenn en tónskáld verða líka til umfjöllunar, flytjendur teknir tali og spurðir spjörunum úr. Einnig verður farið í ferðalög útfrá nöfnum og verkum tónskálda sem eru á dagskrá hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands eða á öðrum vettvangi þau skoðuð í víðu samhengi og leikin önnur verk eftir sömu tónskáld.
Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir
Tónleikurinn beinir sjónum sínum í tvær áttir í dag; annars vegar að Hauki Tómassyni tónskáldi, og hins vegar að kontrabassanum.
Leikin verða tvö verk eftir Hauk Tómasson, það fyrra er Strati sem verður á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands 15. október næstkomandi, hitt er Skíma konsert fyrir tvo kontrabassa og hljómsveit. Auk þess verða leikin tvö stutt lög þar sem kontrabassinn er í burðarhlutverki; lagið Opnunartími eftir Davíð Þór Jónsson þar sem Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson leikur á kontrabassann; Davíð er þar á píanó og Helgi Svavar Helgason á trommur. Hitt lagið er Minning eftir Tómas R. Einarsson, sem leikur ásamt Olivier Manoury bandeoneon-leikara.
Íslendingar eiga Evrópumet og mögulega heimsmet í notkun svefnlyfja.
Árið 2024 fengu um sjö prósent landsmanna uppáskrifuð svefnlyf. Réttlætir ávinningur svefnlyfja aukaverkanirnar? Er langtímanotkun hættuleg?
Dagskrárgerð: Lárus Steinþór Guðmundsson
Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson.
I. hluti: PISA
- Sigrún Jóna Grettisdóttir, kennari í Árbæjarskóla
- Halla Stella Sveinbjörnsdóttir, nemi
- Ómar Örn Magnússon, aðstoðarskólastjóri Hagaskóla
II. hluti: Þingsetning og fjárlög
- Árni Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins
- Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar
- Lilja Dögg Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins
III. hluti: Samskipti Bandaríkjanna og Íslands
- Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands
- Friðjón R. Friðjónsson, varaborgarfulltrúi og áhugamaður um bandarísk stjórnmál

Tónlist héðan og þaðan
Útvarpsfréttir.
Heilbrigðisráðherra hefur þungar áhyggjur af stöðunni innan SÁÁ. Hún óttast að samtökin verði af gríðarlegri fagþekkingu og fylgist grannt með gangi mála.
Hútar hafa náð tökum á ströndinni við Rauðahaf og hertóku þrjár mikilvægar eyjur á Rauðahafi í skyndisókn í gær.
Mikil spenna ríkir í Svíþjóð þar sem þingkosningar verða á morgun. Aðeins munar tveimur prósentustigum á hægri og vinstri blokkunum.
Talið er að veðurfyrirbærið El Nino verði öflugri en nokkru sinni undir lok árs og þó nokkur ríki hafa þegar lýst yfir neyðarástandi.
Atvinnuvegaráðherra segir bagalegt að frumvarp um lagareldi hafi dagað uppi á síðasta þingvetri. Forgangsröðun réði því að málið rataði ekki á þingmálaskrá.
Landverðir stöðvuðu rútu á vegum Arctic Adventures á Þingvöllum vegna olíuleka. Þjóðgarðsvörður segir ámælisvert að rútan hafi verið í notkun þrátt fyrir lekann. Forstjóri fyrirtækisins harma atvikið.
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Vísindamenn spá því að El Niño verði öflugri en nokkru sinni fyrr, nái hámarki fyrir lok árs og valdi methita á heimsvísu á næsta ári. El Niño á sér stað að jafnaði á um fjögurra ára fresti. Þann 30. ágúst bættist Suður-Ameríkuríkið Ekvador á listann yfir þær þjóðir sem hafa lýst yfir neyðarástandi vegna veðurfyrirbærisins. Margir hafa heyrt það nefnt en færri vita hvað það er nákvæmlega. Hallgrímur Indriðason rýnir í það og þær alvarlegu afleiðingar sem gætu fylgt fyrir fjölda fólks.
Svo förum við til Suður-Afríku. Undir lok ágúst voru 40 ár frá því bandaríski tónlistarmaðurinn Paul Simon opnaði augu og eyru vesturlandabúa fyrir afrískri tónlist en líka ógn og ömurð apartheid-tímans í Suður-Afríku. Graceland platan á sér enn sérstakan stað í hjörtum íbúa því hún sýndi hvað Suður-Afríka er fær um, að tónlist Afríku ætti erindi við heimsbyggðina alla og hún hljómar enn á götum suðurafrískra borga - tákn um frelsi og gleði og allt það sem býr í álfunni og íbúum hennar. Við tölum við Suður-afríkumenn. Annan sem ólst upp innan aðskilnaðarstefnunnar og hinn eftir að hún var afnumin 1991. Þau tengja bæði við tónlistina á ólíkan hátt og segja hana lifa góðu lífi í Suður-Afríku í dag, 40 árum eftir að hún var gefin út.
Stjórnendur Lestarinnar, þau Lóa og Kristján, kryfja popplög með Friðriki Margrétar Guðmundssyni, tónskáldi, tónlistarmanni og poppmeinafræðingi.
Drake er hratt og örugglega að jafna sig eftir rappbardagann við Kendrick Lamar fyrir tveimur árum. Í vikunni gaf hann ekki út eina endurkomuplötu heldur þrjár. Friðrik Margrétar Guðmundssson hjálpar okkur að kryfja einn slagara af plötunum þremur, Janice STFU. The Sopranos, Lykke Li og trapp-taktar frá Atlanta eru meðal þess sem poppmeinafræðingurinn veiðir upp úr laginu.
Í þættinum fær Sverrir Norland til sín skemmtilega gesti sem endurhugsa með honum heiminn.
Gestir þáttarins eru Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og Steinar Þór Ólafsson sérfræðingur í samskiptum og markaðsmálum. Áslaug Arna ræðir meðal annars um skrifstofu á ferðalagi vítt og breitt um landið. Umsjónarmaður leggur fyrir hana krefjandi hraðaspurningar - og Steinar Þór, sem hefur mikið pælt í vinnumenningu og vinnustöðum samtímans, deilir með okkur frjóum og skemmtilegum hugleiðingum um hvað gera megi betur.
Umsjón: Sverrir Norland.
Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
„Hér eru engir múmínálfar,“ skrifar listakonan finnsk-sænska Tove Jansson í bréfi til Tuulikki Pietilä konu sinnar þegar hún var að byrja að skrifa bók sem átti að slíta hana frá stóra sköpunarverkinu, Múmíndal og öllum íbúum hans. Dóttir myndhöggvarans kom fyrst út árið 1968 en var að koma út í þýðingu Gerðar Kristnýjar. Bókin samanstendur af 19 smásögum frá sjónarhorni barns og lýsa sögurnar æsku Tove á skáldlegan hátt, tilverunni á listamannaheimili sem er fullt af sköpun, gáska en líka hættum.
Pólski rithöfundurinn og Nóbelshafinn Olga Tokarczuk hlaut í vikunni Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness. Ewa Marcinek, kemur og ræðir við mig um Olgu Tokarczuk, bókmenntir og Pólland.
Viðmælendur: Ewa Marcinek og Gerður Kristný.
Lesari: Guðrún Gunnarsdóttir
Tónlist: Etiovalssi - Jimi Tenor og Blood in the Labyrinth - Boards of Canada
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Pétur Grétarsson ræðir við Þóri Baldursson orgelleikara, píanóleikara, harmonikuleikara, útsetjara og tónskáld.
Þórir segir frá nýjum hljóðritunum sínum sem meðal annars leiða saman 45 ára gamlar upptökur við splunkunýjar upptökur.
Hann segir líka frá endalausri forvitni sinni um tónlist og tækni og frá tónleikum sem hann heldur með hljómsveitinni Gömmum í Austurbæjarbíói í16. október nk.
Tónlistin í þættinum er öll eftir Þóri nema fyrsta lagið, sem er eftir Stefán S. Stefánsson:
Af Niðafjöllum
It all gets back to you
Soft Shue
I can show you better love
Chain
Gammadans
Ár er liðið frá innrás Rússa í Úkraínu. Hvernig tölum við um Rússland og hinn slavneska heim í kjölfar þessara voveiflegu atburða? Eigum við að slaufa rússneskri menningu eða þvert á móti faðma hana að okkur fastar en nokkru sinni fyrr í von um að ná áttum í heimi sem stendur á krossgötum? Kaldastríðsbarn og lúsugur Rússlandsfari kafar ofan í þessar hábölvuðu spurningar með hjálp sérfróðra.
Umsjón: Gunnar Þorri Pétursson.
Rús - þættir um þjóð og menningu á krossgötum
Í tíunda og lokaþætti RÚS tekur umsjónarmaður, Gunnar Þorri Pétursson, saman nokkra þræði í umfjöllun sinni sem stað hefur yfir um þjóð á krossgötum.
Lesari í þættinum, ásamt umsjónarmanni er Ása Helga Hjörleifsdóttir.
Guðni Tómasson veitti aðstoð við dagskrárgerð og samsetningu.
Ár er liðið frá innrás Rússa í Úkraínu. Hvernig tölum við um Rússland og hinn slavneska heim í kjölfar þessara voveiflegu atburða? Eigum við að slaufa rússneskri menningu eða þvert á móti faðma hana að okkur fastar en nokkru sinni fyrr í von um að ná áttum í heimi sem stendur á krossgötum? Kaldastríðsbarn og lúsugur Rússlandsfari kafar ofan í þessar hábölvuðu spurningar með hjálp sérfróðra.
Umsjón: Gunnar Þorri Pétursson.

frá Veðurstofu Íslands
Sveiflutónlist og söngdansar að hætti hússins.
Jónatan Garðarsson valdi.
Söngkonan Abbey Lincoln flytur lögin That's Him, Whe A Woman Loves A Man, Don't Explain, Strong Man, Happiness Is A Thing Called Joe, Porgy og I Must Have That Man. Kvartett Charles Lloyd flytur lögin The Water Is Wide, Go Down Moses, La Llorna, Mirror, Desolation Sound, Monk's Mood og Ruby My Dear. Tríó John Taylor leikur lögin Tramonto, The Bowl Song, Between Moons og Rosslyn.
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir, Atli Sigþórsson og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Þáttur um íslenskt mál og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir.
Nöfn Íslendinga hafa ekki alltaf verið þau sömu, enda heitum við ekki öll landnámsnöfnum enn þann dag í dag, þótt þau tíðkist auðvitað, og séu sum hver algeng. Sum þeirra hurfu reyndar um tíma og voru tekin upp aftur síðar. Fjallað var um tískusveiflur í nafnvenjum, gælunöfn og ólíkar hefðir á Íslandi og í Bandaríkjunum.
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Freyja Gunnlaugsdóttir, klarinettuleikari og skólameistari menntaskóla í tónlist, segir frá sínu uppáhalds tónverki. Christoph Poppen, Manuel Fischer-Dieskau, Wolfgang Meyer og Yvonne Loriod flytja fyrstu þrjá kaflana úr Kvartett fyrir endalok tímans eftir Olivier Messiaen.

Í Sagnaslóð er leitað fanga úr fortíðinni. Frásagnir úr sögu þjóðarinnar.
Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson.


frá Veðurstofu Íslands
Í Litlu flugunni er leikin tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.
Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Meðal þess sem Litla flugan sveimar í kringum eru lög með finnska söngvaranum Olavi Virta, harmonikuleikaranum Gretti Björnssyni og hljómsveit sem og lög með Harmonikutríói Jans Morávek, ásamt fleirum. Þátturinn var fyrst á dagskrá 20. október 2005
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson.
I. hluti: PISA
- Sigrún Jóna Grettisdóttir, kennari í Árbæjarskóla
- Halla Stella Sveinbjörnsdóttir, nemi
- Ómar Örn Magnússon, aðstoðarskólastjóri Hagaskóla
II. hluti: Þingsetning og fjárlög
- Árni Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins
- Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar
- Lilja Dögg Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins
III. hluti: Samskipti Bandaríkjanna og Íslands
- Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands
- Friðjón R. Friðjónsson, varaborgarfulltrúi og áhugamaður um bandarísk stjórnmál

Útvarpsfréttir.
Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.
Uppistandarinn Snjólaug Lúðvíksdóttir hefur vakið athygli fyrir skemmtilegar pælingar um lífið og tilveruna og hún var gestur Felix í Fimmunni. Hún talaði um fimm uppistönd sem breyttu lífinu og þar kenndi sannarlega margra grasa, allt frá fyrsta uppistandinu í London sem reyndist mikið frægðarför yfir í versta uppistand allra tíma í matsalnum í Borgarholtsskóla.
Í síðari hlutanum fjallaði Felix um það sem gerðist á deginum
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson.
I. hluti: PISA
- Sigrún Jóna Grettisdóttir, kennari í Árbæjarskóla
- Halla Stella Sveinbjörnsdóttir, nemi
- Ómar Örn Magnússon, aðstoðarskólastjóri Hagaskóla
II. hluti: Þingsetning og fjárlög
- Árni Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins
- Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar
- Lilja Dögg Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins
III. hluti: Samskipti Bandaríkjanna og Íslands
- Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands
- Friðjón R. Friðjónsson, varaborgarfulltrúi og áhugamaður um bandarísk stjórnmál
Útvarpsfréttir.
Heilbrigðisráðherra hefur þungar áhyggjur af stöðunni innan SÁÁ. Hún óttast að samtökin verði af gríðarlegri fagþekkingu og fylgist grannt með gangi mála.
Hútar hafa náð tökum á ströndinni við Rauðahaf og hertóku þrjár mikilvægar eyjur á Rauðahafi í skyndisókn í gær.
Mikil spenna ríkir í Svíþjóð þar sem þingkosningar verða á morgun. Aðeins munar tveimur prósentustigum á hægri og vinstri blokkunum.
Talið er að veðurfyrirbærið El Nino verði öflugri en nokkru sinni undir lok árs og þó nokkur ríki hafa þegar lýst yfir neyðarástandi.
Atvinnuvegaráðherra segir bagalegt að frumvarp um lagareldi hafi dagað uppi á síðasta þingvetri. Forgangsröðun réði því að málið rataði ekki á þingmálaskrá.
Landverðir stöðvuðu rútu á vegum Arctic Adventures á Þingvöllum vegna olíuleka. Þjóðgarðsvörður segir ámælisvert að rútan hafi verið í notkun þrátt fyrir lekann. Forstjóri fyrirtækisins harma atvikið.
Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær að hljóma.
Nýdönsk - Fullkomið farartæki.
Queen - Bicycle race.
ÞÓRUNN ANTONÍA - So high.
Teitur Magnússon Tónlistarmaður - Gullauga.
MADNESS - Driving In My Car.
SYKUR - Cars and Girls ft. GDRN.
Jón Jónsson Tónlistarm., Herra Hnetusmjör - Las á milli línanna.
SKRIÐJÖKLAR - Hryssan mín blá (LP).
THE CRANBERRIES - Linger.
Lón - Ég lifi í draumi.
Memfismafían - Syngdu.
Ásgeir Trausti Einarsson - Heartbeat.
GEIRI SÆM OG HUNANGSTUNGLIÐ - Rauður bíll (80).
Skítamórall - Fljúgum áfram.
Sycamore tree - All tangled up.
Dagný Halla Björnsdóttir - Finnurðu mig.
Unnur Birna Björnsdóttir, Pálmi J. Sigurhjartarson Tónlistarm. - When the rain has gone.
Hipsumhaps - Meðal mannsins (þjóðsöngurinn).
LADDI - Stebbi stuðari.
Spacestation - Eiturgrá Skóda.
DAVID BOWIE - Starman.
Pónik - Bíllinn minn og ég.
TRAVELING WILBURYS - Handle With Care.
PRINCE - Little Red Corvette.
Tame Impala - Dracula.
R.E.M. - Driver 8.
Harris, Calvin, Jazzy - Satisfy.
Proclaimers - I'm on my way.
Helgi Björnsson - Ég fer á Land Rover frá Mývatni á Kópasker.
SUEDE - She's In Fashion.
STEPPENWOLF - Born To Be Wild.
LENNY KRAVITZ - Fly Away.
Hvernig hljómaði vikan? Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunar á Rás 2, alla laugardaga frá 16-18. Þær rifja upp vikuna, líta í baksýnisspegilinn og skoða smelli fyrri tíma, spá fyrir um hvaða lög eru líkleg til vinsælda. Skemmtilegt spjall og fróðleikur í bland, en fyrst og fremst frábær tónlist.
Umsjón: Ragga Holm og Vilborg Kristín Þrastardóttir.
Þær Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunnar í Vinsældalista Rásar 2.
Lagalisti:
Noah Kahan - The Great Divide
ICEGUYS - 7 9 13
Steinunn Yones & Gnúsi Yones feat. Kraftgalli & Teitur Magnússon - Spóla Til Baka
Creature Of Habit feat. Malen & Birna Eyfjörð - auðnin
Snow Patrol & Kylie Minogue - These Alarms
Baksýnisspegillinn: Justin Timberlake - Sexyback
Martin Garrix & U2 - Fireflies
Queens Of The Stone Age - Easy Street
Ásgeir - Heartbeat
Topp tíu:
10. Temper City - Self Aware
9. Ella Langley - Be Her
8. Bubbi Ég Er - Tilbúinn
7. Fontaines D.C. - Marianne
6. Sycamore Tree - All Tangled Up
5. Disco Bambino & Nile Rogers feat. Sophie Ellis-Bextor - Dancing Without You
4. Peggy Gou feat. Ayra Starr - Wo, man
3. Memfismafían & Björn Jörundur - Ég Kenni Þér Um
2. Kacey Musgraves - I Believe In Ghosts
1. Klara Einars - Ef Hann Myndi

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Fréttastofa RÚV.
Nanna Guðrún sér um réttu tónlistina á meðan þú gerir þig til og kemur þér í gírinn á laugardagskvöldi. Popp- og danstónar í bland við sígild stemningslög senda þig dansandi af stað inn í kvöldið.
Í þessum fyrsta þætti af GMT fengum við að heyra ljúfa gellutóna og eyddum allri óvissu um það hvað skammstöfunin GMT stendur í raun og veru fyrir.

Heiða Eiríks og Ingi Þór stjórna Næturvaktinni til skiptis. Þau spjalla við landann og spilar tónlist úr öllum áttum á laugardagskvöldum. Ljúfir tónar, brjálað rokk og óskalög úr öllum landshornum.
