10:15
Börnin á vistinni
3. þáttur - „Svona var þetta bara“

Sögur fólks sem þurfti að dvelja barnungt á heimavist fjarri fjölskyldum sínum til þess að stunda grunnskólanám. Fyrir mörg var það þungbær reynsla meðan önnur eiga ljúfar minningar.

Umsjón og dagskrárgerð: Þórgunnur Oddsdóttir.

Heimavistarskólarnir voru barn síns tíma. Nauðsynlegt úrræði til þess að mennta börn til sveita en ekki ákjósanlegasta fyrirkomulagið til þess að sinna tilfinningalegum þörfum þeirra. Í þessum lokaþætti köfum við aðeins ofan í tilfinningarnar en bregðum okkur líka aftur í tímann og heimsækjum Reykjanesskóla í Ísafjarðardjúpi árið 1980 og Hallormsstaðaskóla aldamótaárið 2000.

Viðmælendur: Guðbrandur Árni Ísberg, Halldór Halldórsson, Rúnar Sigþórsson, Berglind Rós Magúsdóttir, Eva Björk Eyþórsdóttir og ýmsir viðmælendur úr stundinni okkar 1980 og 2000.

Umsjón og dagskrárgerð: Þórgunnur Oddsdóttir.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 41 mín.
,