Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Vínill vikunnar er Fascinating Voyage sem Árni Egilsson gaf út 1985, en á henni leikur hann á bassa með tónlistarmönnunum Ray Brown, Jimmie Smith og Pete Jolly. Umsjón: Árni Matthíasson.
Árni Egilsson fæddist í Reykjavík 1939 og fékk snemma áhuga á tónlist. Hann byrjaði að læra á básúnu, sem entist reyndar ekki lengi, og sneri sér síðan að bassaleik sem hefur verið hans hljóðfæri upp frá því. Árni varð snemma mikill jazzáhugamaður og lék til að mynda með KK bandinu í Breiðfirðingabúð 1958 og tók þátt í að stofna Jazzklúbb Reykjavíkur ári síðar.
Að loknu námi við Tónlistarskólann í Reykjavík hélt Árni til náms í Bretlandi og það til Hamborgar, þar sem hann stundaði nám í Staatliche Hochschule für Musik. Í Bretlandi og Þýskalandi lék hann með ýmsum sinfóníuhljómsveitum og kynntist meðal annars hljómsveitarstjóranum kunna Sir John Barbirolli. Samhliða því að stýra Hallé-sinfóníuhljómsveitinni í Manchester var Barbirolli aðalstjórnandi sinfóníunnar í Houston í Bandaríkjunum á árunum 1961 til 1967 og réði Árna til hljómsveitarinnar.
André Previn tók við Houston-sinfóníuhljómsveitinni af Barbirolli og hann og Árni léku mikið saman á næstu árum og áratugum, léku meðal annars saman á Listahátíð í Reykjavík á Listahátíð á Íslandi árið 1974 ásamt söngkonunni Cleo Laine.
Árni flutti til Los Angeles 1969 og býr þar enn. Hann varð fljótlega eftirsóttur í allskyns upptökuvinnu og hefur leikið inn á hundruð hljómplatna. Hann var ekki síður eftirsóttur í upptökur fyrir kvikmyndir og sjónvarp og hefur leikið tónlist fyrir hundruð kvikmynda og grúa sjónvarpsþátta. Það þótti frétt hér heima þegar spurðist að hann léki á bassa í upphafs- og endastefi Dallas-þáttanna sem nutu mikilla vinsælda hér á landi, fyrst í Kanasjónvarpinu frá 1979 og í Ríkisútvarpinu frá 1981. Hann var einnig oft kallaður til að leika sinfóníska tónlist og frumflutti til að mynda tónverkið Niður eftir Þorkel Sigurbjörnsson, fyrsta íslenska konsertinn fyrir kontrabassa og sinfóníuhljómsveit.
Árni starfaði einnig sem kennari og var lengi prófessor í kontrabassaleik við California State-háskólann í Northridge. Á síðustu árum hefur hann líka samið talsvert af tónlist síðustu ár.
Fyrsta plata Árna var Basso Erectus sem kom út árið 1979 en eins og getið er kom Facinating Voyage út 1985 og er önnur plata Árna. Hann gaf hana út sjálfur, eins og áður er getið, en hún var einnig gefin út vestanhafs árið 1991 undir nafninu Basses Loaded.
Meðspilarar Árna á Facinating Voyage eru ekki af verri endanum. Þannig var Ray Brown einn helsti bassaleikari jazzsögunnar, lék til að mynda með Dizzy Gillespie, Art Tatum og Charlie Parker og var lengi í hljómsveit Oscars Peterson.
Á umslagi plötunnar skrifar Árni meðal annars: „Allt frá því ég byrjaði að hlusta á jass hefur Ray Brown verið átrúnaðargoð mitt. Ég á því erfitt með að lýsa tilfinningum mínum þegar hann sagði mér að hann vildi gjarnan spila með mér á þessari plötu, en „algleymi“ eða „ofsakæti“ kemst nálægt því.“
Píanóleikarinn Peter Jolly var vel þekktur og verðlaunaður jazzpíanisti og harmonikkuleikari á vesturströnd Bandaríkjanna en var líka glúrinn lagasmiður. Hann lék meðal annars með Buddy DeFranco, Art Pepper, Red Norvo, Ray Conniff og Herb Alpert.
Trommuleikarinn Jimmy Smith er ekki eins nafntogaður og Brown og Jolly, en lék þó með miklum meisturum eins og Jimmy Witherspoon, Erroll Garner, Benny Carter, Hank Jones, Eddie Lockjaw Davis, Zoot Sims, Jimmy Smith nafna sínum orgelleikara og Kenny Burrell.
Sjálfur leikur Árni á bassa að vanda en beitir boga á meðan Ray Brown plokkar strengi.
Þess má geta að Árni tileinkar plötuna André Previn og þakkar honum fyrir að hafa hvatt sig til að flytja til Los Angeles.
A-hlið plötunnar hefst með laginu Stella By Starlight eftir Victor Young. Þá kemur Body And Soul eftir Johnny Green, It Could Happen To You eftir Jimmy Van Heusen, Blues For Ray eftir Árna, sem samið er til Ray Brown, og Sigrún, sem er Litfríð og ljóshærð eftir Emil Thoroddsen í jazzbúningi.
B-hlið plötunnar hefst með Summertime eftir Hayward og Gershwin. Þar næst kemur I Remember Clifford eftir Benny Golson, þá I Love You eftir Cole Porter, Ástin, sem er útgáfa þeirra félaga á þjóðlaginu „Sofðu unga ástin mín“, og loks My Funny Valentine eftir Rodgers og Hart.
Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Þátturinn var fyrst á dagskrá 15. mars 2014.
Umsjón: Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
Dont try to fool me Jóhann G. Jóhannson í flutningi hans
Við erum tvær úr tungunum Halli og Laddi
Nína og geiri Diddú og Bjöggi
Ástarsorg brunaliðið Ragga gísla
One way ticket Boney M
Lagið Kittý með oxsmá
Careless whisper WHAM
Afmæli Sykurmolarnir
Un Amor Gypsy Kings
Risaeðlan lag Vonin
Þrek og tár Haukur og Erla

frá Veðurstofu Íslands.
Sögur fólks sem þurfti að dvelja barnungt á heimavist fjarri fjölskyldum sínum til þess að stunda grunnskólanám. Fyrir mörg var það þungbær reynsla meðan önnur eiga ljúfar minningar.
Umsjón og dagskrárgerð: Þórgunnur Oddsdóttir.
Heimavistarskólarnir voru barn síns tíma. Nauðsynlegt úrræði til þess að mennta börn til sveita en ekki ákjósanlegasta fyrirkomulagið til þess að sinna tilfinningalegum þörfum þeirra. Í þessum lokaþætti köfum við aðeins ofan í tilfinningarnar en bregðum okkur líka aftur í tímann og heimsækjum Reykjanesskóla í Ísafjarðardjúpi árið 1980 og Hallormsstaðaskóla aldamótaárið 2000.
Viðmælendur: Guðbrandur Árni Ísberg, Halldór Halldórsson, Rúnar Sigþórsson, Berglind Rós Magúsdóttir, Eva Björk Eyþórsdóttir og ýmsir viðmælendur úr stundinni okkar 1980 og 2000.
Umsjón og dagskrárgerð: Þórgunnur Oddsdóttir.

Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Viðmælendur í Vikulokununm 25. apríl voru:
Ágúst Bjarni Garðarsson, ráðgjafi og fyrrverandi þingmaður og bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Hafnarfirði
Áslaug Hulda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Sjúkratryggingum og fyrrverandi bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ
Pétur Markan, bæjarstjóri í Hveragerði
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Tónlist héðan og þaðan
Útvarpsfréttir.
Fólk stofnar heilsu sinni í hættu með því að kaupa ólögleg lyf á netinu, segir forstjóri Lyfjastofnunnar. Hún segir lög brotin með sölu á hunangi með stinningarlyfjum.
Alls er óljóst hvort Bandaríkjamenn og Íranar hittist til friðarviðræðna í Pakistan í dag. Átta vikur eru síðan Bandaríkjamenn og Ísraelsmenn hófu árásir á Íran.
Bæjarstjórn Grindavíkur er staðráðin í að hefja skólastarf í bænum í haust – þvert á álit ríkisstjórnarinnar. Hætta vegna jarðhræringa er enn metin töluverð í bænum en íbúar segja rök um að skólastarf þar yrði hættulegt ekki standast.
Palestínumenn á Vesturbakkanum og hluta Gaza ganga að kjörborðinu í dag og kjósa til sveitarstjórnar. Kjörsókn hefur verið dræm í morgun en rúmlega milljón er á kjörskrá.
Ekkert verður af því að þrír dómarar við Héraðsdóm Reykjavíkur verði kvaddir til vitnis í sakamáli sem háð er í Héraðsdómi Reykjaness. Landsréttur hafnaði kröfu konu sem ákærð er fyrir ærumeiðingar í garð dómara.
Glódís Perla Viggósdóttir og lið hennar Bayern Munchen mætir Barcelona í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í dag. Leikurinn verður sýndur beint á RÚV.
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Það hefur verið ófriðlegt í norðurhluta Nígeríu stærstan hluta aldarinnar, meðal annars vegna uppgangs hryðjuverkasamtakanna Boko Haram. Mannrán, morð og önnur ofbeldisverk hafa verið tíð. Eftir að dregið hafði úr ofbeldisverkum blossuðu þau upp aftur í fyrra, og nú er ástandið verra en nokkru sinni. Margir samverkandi þættir skýra ástæðuna, bæði samfélagslegir og efnahagslegir. Hallgrímur Indriðason fer yfir það.
Læknar án landamæra eru meðal virtustu mannúðarsamtaka heims. Í rúma hálfa öld hafa starfsmenn þeirra lagt líf sitt að veði til þess að koma þeim allra hjálparlausustu meðal okkar til aðstoðar. Samtökin starfa á mörgum af hættulegustu stöðum í heimi og starfsmenn þeirra hraða sér gjarnan í áttina að hörmungum sem aðrir leggja á sig mikið að flýja.
Þessi samtök, sem við heyrum svo oft minnst á í fréttum, eru þekkt fyrir að vera sumpart djarfari en önnur álíka mannúðarsamtök, og veigra sér ekki við því að storka yfirvöldum í þeim löndum sem þau starfa - á meðan önnur samtök starfa þar ekki nema með samþykki yfirvalda. Þessi djarfa nálgun hefur orðið öðrum innblástur og stofnuð hafa verið önnur samtök, með svipaða hugmyndafræði, eins og Blaðamenn án landamæra, Kennarar án landamæra, Lögfræðingar án landamæra og Verkfræðingar án landamæra, svo fáein séu nefnd. En hvernig er að starfa fyrir Lækna án landamæra og hvað er það, sem fær fólk til þess að stofna lífi sínu - síendurtekið - í hættu, til þess að hjálpa öðrum? Oddur Þórðarson ræðir við Íslending sem hefur gert nákvæmlega þetta í heil 10 ár.
Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson
Ólaf Örn Josephsson þekkja flestir væntanlega sem Stafrænan Hákon, en undir því nafni hefur hann gefið út grúa af plötum á síðustu áratugum. Ólafur er þó ekki bara Stafrænn Hákon heldur hefur hann gefið út plötu sem OPandolo, haldið úti Calder með Lárusi Sigurðssyni og starfað í hljómsveitunum Per:Segulsvið, Haugum, S-Fit, Yfirliði, Náttfara og Vogor. Á nýrri plötu Stafræns Hákonar rifjar Ólafur upp gamalt stuð.

Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga. Leiðbeinendur: Þorgerður E. Sigurðardóttir og Anna Marsibil Clausen.
Í gegnum einlæga frásögn deila tvær vinkonur reynslu sinni af ófrjósemi og meðferð í tæknifrjógvun og reyna að varpa ljósi á þá vegferð sem mörg pör þurfa að ganga í gegnum.
Ásdís Magnea Egilsdóttir

Útvarpsfréttir.
Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Við höldum áfram í Póllandi í þætti dagsins. Pólskar bókmenntir á íslensku, við víkkum netið örlítið og lítum á þýðingarsöguna. Pétur Magnússon dagskrárgerðarmaður á rás 1 hefur mikinn áhuga á efninu og nefnir nokkur skáld, bækur og einstök ljóð sem hafa haft áhrif á hann.
Þá fjöllum við líka um nýja þýðingu á bók eftir Olgu Tokarczuk sem hlaut nóbelsverðlaunin í bókmenntum 2019. Hús dags, hús nætur kom út fyrir skemmstu, skáldsaga frá 1998 sem skaut Olgu á stjörnuhiminninn. Árni Óskarsson þýðir en hann þýddi einnig skáldsögu Olgu Drag plóg þinn yfir bein hinna dauðu, við ræðum stuttlega við hann um þýðinguna og heyrum líka brot úr viðtali við Olgu Tokarczuk þegar hún var hér á landi 2006 og Jórunn Sigurðardóttir en bæði hún og Sjón tóku viðtöl við höfundinn.
Viðmælendur: Olga Holownia, Pétur Magnússon, Árni Óskarsson og Olga Tokarczuk.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Pétur Grétarsson ræðir við Sigurð Flosason um nýja plötu hans - Blue Shoes, og eitt og annað sem hann tekst á við í tónlistarlífinu. Meðal annars nýtt starf hans sem söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar.
Tónlistin í þættinum er öll eftir Sigurð:
Ég er - texti eftir Aðalstein Ásberg - Schola Cantorum
The long dark nights - Blue Shoes
Ljósfaðir - frá tónleikum með Mattiasi Nilsson á Djasshátíð Reykjavíkur 2025
The Eleventh hour - titillag plötu með Kaupmannahafnarkvartetti Sigurðar 2011
A small step - Blue Shoes
Gengið á lagið - titillag fyrstu sólóplötu Sigurðar frá árinu 1993

Fréttir
Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Í þættinum er fjallað um stríð Rússneska keisaradæmisins við smáþjóðina Sirkassa í Kákasusfjöllum á nítjándu öld, sem lauk með miklu blóðbaði og því að nær allir Sirkassar voru hraktir af heimahögum sínum.

frá Veðurstofu Íslands
Sveiflutónlist og söngdansar að hætti hússins.
Paul Desmond og hljómsveit leika lögin Take Ten eftir Paul Desmond, síðan koma lögin The One I Love (Belongs To Someone Else), Theme From Black Orhpeus, Samba de Orfeu, Alone Together, Out of Nowhere og Nancy (With the Laughing Face). Kvartett Donny McCaslin flytur lögin Isfahan, Along Came Betty, Tenderly, A Prayer For Francis, Mountain Mama og Exile and Discovery. Tríó Bill Evans leikur lögin Speak Low, I Love You, Cenception, Our Delight, Five og No Cover No Minimum.
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Halldór Laxness skrifaði Ríkisútvarpinu bréf árið 1974, annars annars vegar um þrjá danska hortitti og hins vegar um stefnutilvísanir; og Helgi J. Halldórsson las þau upp í þættinum Daglegu máli.

Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Tryggvi M. Baldvinsson, tónskáld og listrænn ráðgjafi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, segir frá sínu uppáhalds tónverki.
Við heyrum upphafið að Sinfóníu nr. 3 eftir Witold Lutoslawskí.
Esa Pekka Salonen stjórnar Los Angeles Fílharmóníunni.

Í Sagnaslóð er leitað fanga úr fortíðinni. Frásagnir úr sögu þjóðarinnar.
Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson.
Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson
Í þættinum eru tvær sjómannasögur. Hreinn Ragnarsson kennari, Laugarvatni skrifar um upplifun sína af páskaveðrinu 9. apríl 1963 en hann fór á sjó frá Raufarhöfn þennan dag.
Sjómannablaðið Víkingur 71.árgangur 2. tölublað 2009 12 mínútur
Viðtal við Karl Björgvinsson Nausti, Þórshöfn 6,5 mín.
Stefán Stefánsson frá Gerði Vestmannaeyjum skrifar um kyndarastarf sitt á togaranum Bjarnarey sumarið 1951.
Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 55. árganur 2005 12 mínútur
Lesari með umsjónarmanni Bryndís Þórhallsdóttir 16 mín.
Tónlist: Föðurbæn sjómannsins eftir Þórunnar Franz, texti Árelíus Níelsson Söngur Ari Jónsson 2:40 mín.
Fyrst á dagskrá 11. september 2009


frá Veðurstofu Íslands

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.
Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Eurovision 1960-64 og íslensk lög sem hefðu átt að fara í keppnina, ef Ísland hefði verið með í keppninni.
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Viðmælendur í Vikulokununm 25. apríl voru:
Ágúst Bjarni Garðarsson, ráðgjafi og fyrrverandi þingmaður og bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Hafnarfirði
Áslaug Hulda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Sjúkratryggingum og fyrrverandi bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ
Pétur Markan, bæjarstjóri í Hveragerði
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Útvarpsfréttir.
Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.
gestur dagsins var Jón Karl Ólafsson fyrrverandi forstjóri Icelandair sem hefur komið víða við á löngum ferli og grínast með það að hann sé "fyrrverandi fullt!" Jón Karl talaði í fimmu sinni um fimm lífsviðburði sem breyttu öllu og þar kenndi margra grasa allt frá krabbameinsgreiningu til píanónáms með viðkomu í tannlækningum sem urðu að viðskiptafræði.
í síðari hlutanum skoðaði Felix hvað gerðist á deginum
Gísli Marteinn Baldursson og Sandra Barilli leiða hlustendur inn í laugardaginn, taka stöðuna á fólki og fréttum, spila góða tónlist og fá til sín vel valda gesti í skemmtilegt spjall.
Gísli Marteinn og Matti spila góða tónlist, drekka morgunkaffi og fá til sín Gurrý í garðinum til að ræða um ræktun, banana og basiliku.
HLJÓMAR - Tasko Tostada.
Vormenn Íslands - Átján rauðar rósir.
PRINS PÓLÓ - Læda slæda.
GKR - MORGUNMATUR.
Joe Frazier, Herra Hnetusmjör - Ég mynd líka hata mig.
HJÁLMAR og MR. SILLA - Er hann birtist.
Izleifur, GDRN - Síðan þú fórst (ft. GDRN).
Nýdönsk - Eplatré.
Bubbi Morthens - Regnbogans stræti.
EMMSJÉ GAUTI - Malbik.
Bríet - Sólblóm.
SPRENGJUHÖLLIN - Glúmur.
Una Torfadóttir, Ágúst Þór Brynjarsson - Inn í síðustu nóttina.

Útvarpsfréttir.
Fólk stofnar heilsu sinni í hættu með því að kaupa ólögleg lyf á netinu, segir forstjóri Lyfjastofnunnar. Hún segir lög brotin með sölu á hunangi með stinningarlyfjum.
Alls er óljóst hvort Bandaríkjamenn og Íranar hittist til friðarviðræðna í Pakistan í dag. Átta vikur eru síðan Bandaríkjamenn og Ísraelsmenn hófu árásir á Íran.
Bæjarstjórn Grindavíkur er staðráðin í að hefja skólastarf í bænum í haust – þvert á álit ríkisstjórnarinnar. Hætta vegna jarðhræringa er enn metin töluverð í bænum en íbúar segja rök um að skólastarf þar yrði hættulegt ekki standast.
Palestínumenn á Vesturbakkanum og hluta Gaza ganga að kjörborðinu í dag og kjósa til sveitarstjórnar. Kjörsókn hefur verið dræm í morgun en rúmlega milljón er á kjörskrá.
Ekkert verður af því að þrír dómarar við Héraðsdóm Reykjavíkur verði kvaddir til vitnis í sakamáli sem háð er í Héraðsdómi Reykjaness. Landsréttur hafnaði kröfu konu sem ákærð er fyrir ærumeiðingar í garð dómara.
Glódís Perla Viggósdóttir og lið hennar Bayern Munchen mætir Barcelona í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í dag. Leikurinn verður sýndur beint á RÚV.

Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær að hljóma.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Tæplega fimmtíu ára tónlistarferill Bubba Morthens krufinn til mergjar í tali og tónum í tilefni af sjötugsafmælisárinu. Boðið upp á fágætar tónleikaupptökur, viðtöl og umfjallanir um tónlist og texta Bubba sem sumar hverjar hafa ekki heyrst í áraraðir á öldum ljósvakans.
Umsjón: Ásgeir Eyþórsson
Í áttunda þætti eru árin 1993 til 1995 rifjuð upp og þar koma m.a. við sögu Bubba-plöturnar Lífið er ljúft, Þrír heimar og Í skugga Morthens. Í þættinum má m.a. heyra valdar klippur úr útvarpsþáttunum Árið er og Bubbi segir sögur.
Viðmælandi í áttunda þætti er Bubbi Morthens,
Viðtöl: Ásgeir Eyþórsson og Ólafur Páll Gunnarsson.
Lagalisti:
Bubbi - Afkvæmi hugsana minna
Bubbi - Sem aldrei fyrr
Bubbi - Þeir hafa trúðinn en það vantar trúbador
Bubbi - Það er gott að elska
Bubbi - Útsýnið er fallegt
Bubbi - Öldueðli
Orri Harðar - Drög að heimkomu
Bubbi - Lukkan og ég
Bubbi - Leiðin til San Diego
Bubbi - Bíódagar
Bubbi - Þannig er nú ástin
Bubbi - Brotin loforð
Bubbi - Sumar konur
Bubbi - Atvinnuleysið er komið til að fara
Bubbi - Maður án tungumáls
Bubbi - Bleikir þríhyrningar
Bubbi & KK - Söngur kríunnar
Bubbi & Rúnar - Konur og vín
Bubbi & Rúnar - Aulaklúbburinn
Bubbi & Rúnar - Ég sé ljósið
Orri Harðar & Bubbi Morthens - Uppgjörið
Ásgeir Óskars & Bubbi - Langt er liðið
Borgardætur & Borgarsynir - Gott líf
Bubbi - Með blik í auga
Bubbi & Haukur Morthens - Ó borg mín borg
Bubbi - Hvar ertu
Bubbi & Kristjana Stefáns - Þrek og tár

Útvarpsfréttir.

Hvernig hljómaði vikan? Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunar á Rás 2, alla laugardaga frá 16-18. Þær rifja upp vikuna, líta í baksýnisspegilinn og skoða smelli fyrri tíma, spá fyrir um hvaða lög eru líkleg til vinsælda. Skemmtilegt spjall og fróðleikur í bland, en fyrst og fremst frábær tónlist.
Umsjón: Ragga Holm og Vilborg Kristín Þrastardóttir.

Útvarpsfréttir.

Fréttir

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Fréttastofa RÚV.
Tekið er á móti gesti sem fer í gegnum lög sem svör við ákveðnum spurningum. Hvað var fyrsta lagið sem þú hlustaðir á aftur og aftur? Hvaða lag myndiru spila til að loka frábærum degi? Hvert er jarðarfaralagið þitt? Þetta eru nokkrar af þeim spurningum sem poppa upp en svo fylgir einhverskonar æviágrip með í kjölfarið.
Atli Már Steinarsson tekur á móti gesti sem fer í gegnum uppáhaldslög frá mismunandi tímum.
Í næsta þætti Lagalistans á Rás 2 sest Þráinn Kolbeinsson, ljósmyndari og ritstjóri, í stólinn og leiðir okkur í gegnum sinn einstaka lagalista. Við heyrum sögur um tónlistina sem hefur mótað hann í gegnum árin – frá listrænu innsæi til persónulegra augnablika.

Heiða Eiríks og Ingi Þór stjórna Næturvaktinni til skiptis. Þau spjalla við landann og spilar tónlist úr öllum áttum á laugardagskvöldum. Ljúfir tónar, brjálað rokk og óskalög úr öllum landshornum.
