12:40
Heimskviður
255 - Skálmöld í Nígeríu og Læknar án landamæra á ófriðarsvæðum

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Það hefur verið ófriðlegt í norðurhluta Nígeríu stærstan hluta aldarinnar, meðal annars vegna uppgangs hryðjuverkasamtakanna Boko Haram. Mannrán, morð og önnur ofbeldisverk hafa verið tíð. Eftir að dregið hafði úr ofbeldisverkum blossuðu þau upp aftur í fyrra, og nú er ástandið verra en nokkru sinni. Margir samverkandi þættir skýra ástæðuna, bæði samfélagslegir og efnahagslegir. Hallgrímur Indriðason fer yfir það.

Læknar án landamæra eru meðal virtustu mannúðarsamtaka heims. Í rúma hálfa öld hafa starfsmenn þeirra lagt líf sitt að veði til þess að koma þeim allra hjálparlausustu meðal okkar til aðstoðar. Samtökin starfa á mörgum af hættulegustu stöðum í heimi og starfsmenn þeirra hraða sér gjarnan í áttina að hörmungum sem aðrir leggja á sig mikið að flýja.

Þessi samtök, sem við heyrum svo oft minnst á í fréttum, eru þekkt fyrir að vera sumpart djarfari en önnur álíka mannúðarsamtök, og veigra sér ekki við því að storka yfirvöldum í þeim löndum sem þau starfa - á meðan önnur samtök starfa þar ekki nema með samþykki yfirvalda. Þessi djarfa nálgun hefur orðið öðrum innblástur og stofnuð hafa verið önnur samtök, með svipaða hugmyndafræði, eins og Blaðamenn án landamæra, Kennarar án landamæra, Lögfræðingar án landamæra og Verkfræðingar án landamæra, svo fáein séu nefnd. En hvernig er að starfa fyrir Lækna án landamæra og hvað er það, sem fær fólk til þess að stofna lífi sínu - síendurtekið - í hættu, til þess að hjálpa öðrum? Oddur Þórðarson ræðir við Íslending sem hefur gert nákvæmlega þetta í heil 10 ár.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 40 mín.
,