Taka tvö II

Júlíus Kemp

Júlíus Kemp nam kvikmyndagerð við West Surrey College of the Arts í Bretlandi í upphafi tíunda áratugs síðustu aldar. Fyrsta bíómynd hans er Veggfóður frá árinu 1992, sem varð gríðarlegur smellur hér á landi. Aðra bíómynd sína, Blossa/810551 sendi hann frá sér árið 1997. Undanfarin ár hefur Júlíus lagt áherslu á framleiðendahlutverkið og sem slíkur framleitt þrjár bíómyndir í leikstjórn Róberts Douglas, Íslenska drauminn, Mann eins og mig og siðast Strákana okkar. Júlíus hefur einnig fengist við gerð stuttmynda og heimildamynda.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

28. feb. 2019

Aðgengilegt til

19. maí 2026

Taka tvö II

Ásgrímur Sverrisson kvikmyndagerðarmaður ræðir við íslenska kvikmyndagerðarmenn um myndir þeirra. Brugðið er upp völdum atriðum úr myndunum og rætt um hugmyndirnar sem baki þeim liggja.

Þættir

,