Músíkölsk pör
Allir elska tónlistarfólk. Stundum elskar tónlistarfólk meira að segja hvert annað. Við ræðum við músíkölsk pör úr íslenska tónlistarbransanum, fáum að vita hvað dró þau saman, hvað…
Hljómskálinn snýr aftur, stappfullur af íslenskri tónlist. Í Hljómskálanum er farið vítt og breitt yfir sviðið í tali og tónum auk þess sem tónlistarfólk úr ólíkum áttum vinnur lög sérstaklega fyrir þættina. Unnið er með ólík þemu í hverjum þætti, á borð við mat, hættulega tónlist, ímynd og peninga. Hljómskálinn er í umsjón Sigtryggs Baldurssonar. Honum til halds og trausts er sérstök greiningardeild þeirra Braga Valdimars Skúlasonar og Guðmundar Kristins Jónssonar. Framleiðsla: Stjörnusambandsstöðin.