Andraland

Þáttur 4 af 5

Andri fer í starfskynningu til fótaaðgerðarfræðings og fær snyrta misstóru tásurnar á leikonunni Ólöfu Hugrúnu. Andri bregður sér síðan í mjög sérstaka tangótíma sem eru haldnir vikulega á Kringlukránni. Andri kemst aftur í snertingu við þungarokkarann í sér þegar hann skoðar stærsta (og líklega eina) Kiss-safnið á Íslandi. Í kjölfarið fer hann í þvílíkri stemmningu á tónleika með Kiss-eftirhermuhljómsveitinni Meik.

Frumsýnt

13. júní 2013

Aðgengilegt til

2. júní 2025
Andraland

Andraland

Andri Freyr Viðarsson skoðar hina hliðina á hversdagsleikanum. Hann heimsækir forvitnilega staði, mætir á áhugaverð mannamót, spjallar við sérstakar týpur og prófar óvenjuleg störf. Ekkert er Andra óviðkomandi á flandri sínu um höfuðborgina; málaðir miðaldra rokkarar, falið kúluspilasafn, moskva í miðbænum, skeggjuð kona, fitulaust brúnt fólk, háskólanemar í þykjó, samkynhneigðir söngfuglar og fleira. Dagskrárgerð: Kristófer Dignus. Framleiðandi: Stórveldið ehf.

Þættir

,