Ævintýri Tulipop

Sundlaugarpartý

Maddý ákveður halda sundlaugarpartý og er harðákveðin í því allt í partýinu skuli vera bleikt, þar með talin laugin í garðinum hennar. Gló kemur henni til aðstoðar og býr til bleika baðbombu fyrir laugina. Maddý er hæstánægð með útkomuna þar til í ljós kemur baðbomban hefur ekki aðeins litað laugina hennar bleika...heldur alla Tulipop eyjuna!

Frumsýnt

23. júní 2025

Aðgengilegt til

23. júní 2026
Eingöngu aðgengilegt á Íslandi
Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Ævintýri Tulipop

Ævintýri Tulipop

Ævintýri Tulipop er skemmtileg teiknimyndaþáttaröð um litríkan vinahóp sem býr á töfraeyjunni Tulipop.

Í þáttaröðinni er fylgst með vinunum Fredda, sveppa-systkinunum Búa og Gló, Maddý og ekki gleyma Herra Barra sem er elstur og vitrastur allra á Tulipop. Þau eru öll afar ólík bæði hvað útlit og skapgerð varðar. Á Tulipop búa sterkar kvenpersónur og staðalímyndir fyrirfinnast ekki. Enginn er fullkominn, öllum verður einhvern tíma á í messunni en það sem mestu máli skiptir er kærleikurinn og vináttan. Í hverjum þætti lenda aðalpersónurnar í spennandi ævintýrum og eignast nýja vini.

Ævintýri Tulipop sækir innblástur sinn í íslenska náttúru, sem leikur stórt hlutverk í þáttaröðinni. Virðing fyrir náttúrunni er í fyrirrúmi og markmiðið er miðla jákvæðum skilaboðum og gleði til barna á öllum aldri.

Þættir

,