Ævintýri Tulipop

Óskatré

Norðuljósin senda frá sér dularfullt fræ sem lendir á Hauskúpuhæð, hjá Herra Barra, og upp vex töfraóskatré. Óskirnar vefjast ekki fyrir Fredda, Gló og Maddýju, þau vita upp á hár hvers þau ætla óska sér. Búi á hins vegar erfitt með gera upp hug sinn. Óskir hinna þriggja hafa slæmar afleiðingar í för með sér og Búi, sem á enn eftir óska sér, bjargar málunum.

Frumsýnt

23. júní 2025

Aðgengilegt til

23. júní 2026
Eingöngu aðgengilegt á Íslandi
Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Ævintýri Tulipop

Ævintýri Tulipop

Ævintýri Tulipop er skemmtileg teiknimyndaþáttaröð um litríkan vinahóp sem býr á töfraeyjunni Tulipop.

Í þáttaröðinni er fylgst með vinunum Fredda, sveppa-systkinunum Búa og Gló, Maddý og ekki gleyma Herra Barra sem er elstur og vitrastur allra á Tulipop. Þau eru öll afar ólík bæði hvað útlit og skapgerð varðar. Á Tulipop búa sterkar kvenpersónur og staðalímyndir fyrirfinnast ekki. Enginn er fullkominn, öllum verður einhvern tíma á í messunni en það sem mestu máli skiptir er kærleikurinn og vináttan. Í hverjum þætti lenda aðalpersónurnar í spennandi ævintýrum og eignast nýja vini.

Ævintýri Tulipop sækir innblástur sinn í íslenska náttúru, sem leikur stórt hlutverk í þáttaröðinni. Virðing fyrir náttúrunni er í fyrirrúmi og markmiðið er miðla jákvæðum skilaboðum og gleði til barna á öllum aldri.

Þættir

,