17:01
Stundin okkar: Smáseríur 2020
Þessi með blöðruvandamálinu, ofurhetjunum og herklæðunum
Stundin okkar: Smáseríur 2020

Krakkar stýra fjölbreyttum smáseríum í Stundinni okkar í vetur - sem fjalla um ALLT milli himins og jarðar.

Leikin spennusería, fjörug þrauta- og spurningakeppni, girnileg matargerð, glymjandi rokktónlist og friðsamlegt jóga eru meðal þess sem verður á dagskrá í þessum elsta sjónvarpsþætti landsins.

Aðalþáttastjórnendur eru Helena Lapas, Imani Ósk Biallo, Kári Hlíðberg og Tómas Aris Dimitropoulos. Fjöldi annarra krakka kemur fram í þáttunum.

Dagskrárgerð: Eva Rún Þorgeirsdóttir og Ragnar Eyþórsson.

Í þættinum mætast keppa tvö flott lið í þættinum Frímó. Hrannar fer á hugarflug og býr til ofurhetjur og í Víkingaþrautinni þurfa krakkarnir að finna herklæði til að leysa næstu þraut.

Er aðgengilegt til 19. apríl 2026.
Lengd: 24 mín.
Dagskrárliður er textaður.
,