Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Í Kastljósi er rýnt í stöðu íslensku flugfélaganna og rætt við Snorra Jakobsson greinanda hjá Jakobsson Capital og Magdalenu Önnu Torfadóttur viðskiptablaðamann á Morgunblaðinu. Sífellt fleiri börn fæðast í nikótínfráhvörfum hérlendis sem má að öllum líkindum tengja við stóraukna notkun á nikótínpúðum síðustu ár. Formaður ljósmærðafélagsins segir þetta minna á þá tíma þegar það var algengt að konur reyktu á meðgöngu. Handhafi kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs segir trúnaðarsamtöl milli karlmanna of sjaldgæf. Hann ræðir verðlaunamyndina SEX síðar í þættinum.
Breskur gamanmyndaflokkur um lækninn Martin Ellingham sem er fær læknir en með afbrigðum klaufalegur í mannlegum samskiptum. Meðal leikenda eru Martin Clunes, Caroline Catz og Ian McNeice.
Danskir þættir um kökubakstur og eftirréttagerð. Mette Blomsterberg útbýr kræsingar.
Þáttaröð í tíu hlutum um íslenskar kvikmyndir allt frá fyrri hluta 20. aldar til samtímans. Í hverjum þætti er ákveðið tímabil tekið fyrir, fjallað um kvikmyndir þess tímabils og sýndir valdir hlutar úr þeim. Rætt er við á annað hundrað kvikmyndagerðarmenn, leikara og kvikmyndasérfræðinga um verkin og margvíslega fleti íslenskrar kvikmyndagerðar. Leikstjóri: Ásgrímur Sverrisson.
Íslenska kvikmyndavorið ríkti um og upp úr 1980. Aðdraganda þess má rekja um tuttugu ár aftur í tímann. Hann leiddi til stofnunar Kvikmyndasjóðs, sem lagði grunninn að samfelldri framleiðslu íslenskra kvikmynda. Litið er meðal annars á myndirnar Morðsaga, 79 af stöðinni, Land og synir, Óðal feðranna, Hrafninn flýgur, Með allt á hreinu, Nýtt líf, Atómstöðin og Á hjara veraldar.
Í þáttaröðinni ræðir Eva María Jónsdóttir við konur sem hafa rutt brautina í einhverjum skilningi. Konurnar hafa bæði fengist við störf sem teljast hefðbundin karlastörf, fetað hina hálu braut stjórnmálaframa og komið fram með nýjungar á markaði eða í listum. Þær lýsa á mjög fjölbreyttan hátt glímu sinni við starfið, almenningsálitið og löngun til að stækka eigin hugmyndaheim. Dagskrárgerð: Eiríkur Ingi Böðvarsson.
Í miðju doktorsnámi fékk Kristín Jóhannesdóttir hugmynd að listaverki sem hún varð að gera og úr varð kvikmyndin Á hjara veraldar. Síðan hefur hún starfað sem leikstjóri þó oft hafi gefið á bátinn. En ástríðan hefur haldið henni við efnið í tæp 40 ár. Kristín segir hér sögu sína sem brautryðjandi í kvikmyndagerð.
Þættir frá 2014 þar sem íslenskar hljómsveitir og tónlistarmenn flytja lög í myndveri RÚV. Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson og upptöku stjórnaði Helgi Jóhannesson.
Sometime, Young Karin, ADHD og Gæðablóð.
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Þórdís Claessen, Hafsteinn Vilhelmsson, Elsa María Guðlaugs - Drífudóttir og Amanda Guðrún Bjarnadóttir. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Elvar Örn Egilsson, Hjalti Stefánsson og Björgvin Kolbeinsson.
Í Landanum í kvöld ætlum við að fjalla um rauðbirkin tré, við verslum í Hríseyjarbúðinni, við fylgjumst með mannfólkinu breytast í slím og við skoðum gamla muni á háalofti Kvennaskólans.
Keppni í skapandi þrautum. Skaparar og keppendur hafa 10 mínútur til að klára þraut og taka þátt í Stórhættulegu spurningakeppninni. Þegar tíminn er hálfnaður draga keppendur babb-spjöld. Að sjálfsögðu endar þetta á vænni slímgusu. Dagskrárgerð: Sigyn Blöndal og Sindri Bergmann Þórarinsson.
Það er hrekkjavökuþema í Kveikt´á perunni í þessum þætti og við skerum út haus á Drakúla, sem týndi sínum. Gula liðið: Birna Björg Gunnarsdóttir Bjarki Hrafn Magnússon Bláa liðið: Grímur Chunkuo Ólafsson Sirrý Inga Sigurðardóttir
Hvernig ætli sumir hlutir sem við erum mjög vön hafi verið fundnir upp? Stórfurðulegu steinaldarmennirnir sýna okkur sínar misheppnuðu tilraunir.
Nýi heimilsfræðikennarinn hún Hrefna, fer með nemendur sína á matreiðsluferðalag um heiminn í allan vetur, þar sem við kynnumst hinum ótrúlegustu réttum frá ýmsum löndum. Matráðsmeistarar eru: Hrefna Hlynsdóttir, Emilía Dröfn Davíðsdótir, Garðar Eyberg Arason, Kría Burgess og Sigurður Hilmar Brynjólfsson.
Krakkarnir læra að elda spænska tortillu.
Stuttir þættir þar sem við kynnumst merkiskonum mannkynssögunnar. Sumar eru frægar, aðrar eru óþekktar en allar eru þær töffarar og eldhugar.
Hvað ætli gerist þegar hin og þessi skordýr bíta fólk og stinga? Sebastian Klein ferðast um sveitir Danmerkur og lætur bíta sig, brenna og stinga til að komast að því.
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt. Umsjón: Ari Páll Karlsson, Embla Bachmann, Gunnar Hrafn Kristjánsson og Kolbrún María Másdóttir. Handrit og ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
Íslensk tónlistarmyndbönd.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Íþróttafréttir.
Veðurfréttir.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Norsk heimildarþáttaröð um Noman, sem er múslimi af pakistönskum uppruna og samkynhneigður. Hann leitar svara við því hvers vegna sumir hata fólk eins og hann og hvers vegna hann skammast sín oft fyrir að vera sá sem hann er.
Nýir finnsk-sænskir heimildarþættir um kvenlega fegurð og öldrun. Þáttastjórnandinn Eva Kela leit áhyggjur kvenna af því að eldast hornauga en nú þegar hún er sjálf komin yfir fertugt og farin að finna aldursmerki á eigin skinni áttar hún sig á því hversu sterk áhrif fegurðarstaðlar hafa á hana. Hún ræðir við konur komnar yfir fertugt sem veita innsýn inn í breytt útlit sitt og líðan.
Sannsöguleg bresk þáttaröð frá 2023 um leitina að raðmorðingjanum sem kallaður er kviðristan frá Yorkshire. Sögur fórnarlamba hans og vinnubrögð lögreglunnar eru í forgrunni. Yfir þúsund lögregluþjónar tóku þátt í leitinni sem stóð yfir frá 1975 til 1981 og varð rannsóknin til þess að breska lögreglan breytti verklagi sínu til frambúðar. Aðalhlutverk: Jack Deam, Kris Hitchen og Lee Ingleby. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Nýjustu fréttir og íþróttir kvöldsins. Alla mánudaga til fimmtudaga.
Veðurfréttir
Önnur þáttaröð þessara íslensku dramaþátta. Benedikt Ríkharðsson snýr aftur í stjórnmál eftir að hafa tekið sér leyfi frá embætti forsætisráðherra vegna geðhvarfa. Hann kemur auga á ýmis konar ranghugmyndir stjórnkerfisins um samfélagið sem honum reynist erfitt að fá breytt enda brennimerktur vegna fordóma í garð geðsjúkdóma. Aðalhlutverk: Ólafur Darri Ólafsson og Aníta Briem. Leikstjórn: Arnór Pálmi Arnarson og Katrín Björgvinsdóttir.
Jólin nálgast og auknar áhyggjur af geðheilsu Benedikts valda spennu heima fyrir. Steinunn sem er ólétt og áhyggjufull reynir að styðja hann. Þegar dregur að fæðingu þarf Benedikt að gera upp við sig hvað hann vill.
Viðvörun: Í þessum þætti er fjallað um sjálfsvíg. Hann getur valdið vanlíðan hjá áhorfendum.
Ef þú ert með sjálfsvígshusanir og þarft einhvern að tala við, hafðu samband við Hjálparsíma Rauða krossins 1717, netspjall 1717.is eða Píeta samtökin í síma: 552 3318.
Fyrir stuðning í sorg hafið samband við Sorgarmiðstöð í síma 551 4141 eða sorgarmidstod@sorgarmidstod.is
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt. Umsjón: Ari Páll Karlsson, Embla Bachmann, Gunnar Hrafn Kristjánsson og Kolbrún María Másdóttir. Handrit og ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.