18:26
Ísþjóðin með Ragnhildi Steinunni (8 af 8)
Saga Sigurðardóttir

Þættir frá 2011 um ungt og áhugavert fólk sem skarar fram úr á hinum ýmsu sviðum. Skyggnst er inn í líf einnar persónu í hverjum þætti og henni fylgt eftir í sínu daglega lífi. Umsjón: Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir. Stjórn upptöku og myndvinnsla: Eiríkur I. Böðvarsson.

Ragnhildur Steinunn kynnir okkur fyrir ljósmyndaranum Sögu Sigurðardóttur sem þrátt fyrir ungan aldur hefur tekið tískuljósmyndir fyrir stæstu blöð heims. Saga Sigurðardóttir sem ólst upp á Þingvöllum segir Íslenskt landslag hafa kennt sér að taka myndir þegar hún var aðeins átta ára. Hún lauk nýverið BS prófi í tískuljósmyndun í London og segist staðráðin í að ná sem lengst.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 25 mín.
Leyft öllum aldurshópum
  • Dagskrárliðurinn er textaður
  • Endursýnt
,