18:25
Veröld sem var
Ship og hoj

Þáttaröð í sex hlutum þar sem fjallað er um sameiginlegar minningar íslensku þjóðarinnar á léttan og nýstárlegan hátt. Umsjónarmennirnir Margrét Blöndal og Felix Bergsson leggjast í fullkomlega óvísindalega mannfræðirannsókn til að reyna að skilja íslensku þjóðina betur. Að þessu sinni skoða þau ýmsa þætti í íslensku mannlífi sem flestir þekkja. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.

Í þættinum fjalla Bergsson og Blöndal um það rómantískasta sem fyrirfinnst á Íslandi: sjómennskuna. Við sögu koma óskalög sjómanna, ástir og ævintýr, brimhljóð og veðragnýr og að sjálfsögðu síldin - en einnig Morthens-bræðurnir sem gerðu sitt besta til að eyðileggja glansmyndina.

Er aðgengilegt til 07. desember 2026.
Lengd: 27 mín.
e
Endursýnt.
Dagskrárliðurinn er textaður.
,