Lögreglumaðurinn Andri Ólafsson snýr aftur í annarri þáttaröð þessara vinsælu íslensku spennuþátta. Reynt er að ráða iðnaðarráðherra af dögum á Austurvelli og Andra er falið að stýra rannsókn málsins sem leiðir hann á kunnugar slóðir norður á landi. Ýmis leyndarmál leynast í sveitunum í kring og þegar starfsmaður jarðvarmavirkjunar finnst myrtur er ljóst að málið er umfangsmeira en það virtist í fyrstu. Leikstjórn: Baltasar Kormákur, Börkur Sigþórsson, Ugla Hauksdóttir og Óskar Þór Axelsson. Aðalhlutverk: Ólafur Darri Ólafsson, Ilmur Kristjánsdóttir og Ingvar E. Sigurðsson. Framleiðsla: RVK Studios. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Uppspretta mengunarinnar finnst uppi á fjalli þar sem eiturefnaúrgangur hefur lekið út í stöðuvatn. Andri og Hinrika reyna að finna tengingu milli morðanna og eiturefnanna. Þórhildi er ekki lengur óhætt í bænum og Laufey frænka hennar tekur að sér að keyra hana til Reykjavíkur til að koma henni í öruggt skjól. En þjóðvegurinn býr yfir ýmsum hættum.
