22:00
Pabbahelgar (4 af 6)

Íslensk þáttaröð um Karen, 38 ára hjónabandsráðgjafa og þriggja barna móður, sem stendur frammi fyrir erfiðum ákvörðunum þegar hún kemst að því að eiginmaður hennar hefur verið henni ótrúr. Hún á erfitt með að fyrirgefa eiginmanninum en það versta sem hún getur hugsað sér eru svokallaðar pabbahelgar. Leikstjórn: Nanna Kristín Magnúsdóttir og Marteinn Þórsson. Aðalhlutverk: Nanna Kristín Magnúsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson. Framleiðsla: Zik Zak kvikmyndir og Ungar kvikmyndafélag. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.

Á meðan Karen leitar í félagsskap, djamm og drykkju, sem leiðir ekkert gott af sér, reynir Matti að finna sig í sínu nýja lífi.

Aðgengilegt til: 14. nóvember 2026
Lengd: 42 mín.
Ekki við hæfi yngri en 16 ára
  • Dagskrárliðurinn er textaður
  • Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
  • Endursýnt
,