Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Samkvæmt könnun Ferðamálastofu hefur aukist sá fjöldi ferðmanna sem segir að Íslandsferðin hafi hreinlega ekki verið peninganna virði. Ísland er enda orðið dýrasta land í heimi, samkvæmt úttekt Visku stéttarfélags. Rætt við Vilhjálm Hilmarsson, hagfræðing félagsins og Pétur Óskarsson, formann samtaka Ferðaþjónustunnar.
Einar Jón Pálsson er hættur eftir kvartaldar þátttöku í sveitarstjórnarmálum á Suðurnesjum. Hólmfríður Dagný fékk hjá honum góð ráð fyrir nýtt sveitarstjórnarfólk.
Rætt við unga söngvarann Alex Óla, sem er nokkuð reynslumikill í bransanum, einungis 12 ára að aldri.
Spurningakeppni sveitarfélaga frá 2018. Þátttakendur að þessu sinni eru lið frá þeim sveitarfélögum sem komust í úrslit árin á undan eða hafa oftast komist nálægt því. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Sólmundur Hólm. Spurningahöfundur og dómari er Jón Svanur Jóhannsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.
Andri Freyr Viðarsson skoðar hina hliðina á hversdagsleikanum. Hann heimsækir forvitnilega staði, mætir á áhugaverð mannamót, spjallar við sérstakar týpur og prófar óvenjuleg störf. Ekkert er Andra óviðkomandi á flandri sínu um höfuðborgina; málaðir miðaldra rokkarar, falið kúluspilasafn, moskva í miðbænum, skeggjuð kona, fitulaust brúnt fólk, háskólanemar í þykjó, samkynhneigðir söngfuglar og fleira. Dagskrárgerð: Kristófer Dignus. Framleiðandi: Stórveldið ehf.
Andri fer í starfskynningu til fótaaðgerðarfræðings og fær að snyrta misstóru tásurnar á leikonunni Ólöfu Hugrúnu. Andri bregður sér síðan í mjög sérstaka tangótíma sem eru haldnir vikulega á Kringlukránni. Andri kemst aftur í snertingu við þungarokkarann í sér þegar hann skoðar stærsta (og líklega eina) Kiss-safnið á Íslandi. Í kjölfarið fer hann í þvílíkri stemmningu á tónleika með Kiss-eftirhermuhljómsveitinni Meik.
Norskir þættir um líkamstjáningu þar sem teknar eru fyrir ýmsar aðstæður sem fólk verður gjarnan óöruggt í. Fjallað er um hvernig hægt er að vinna með líkamstjáningu til að virka öruggari til dæmis á stefnumótum og í atvinnuviðtölum.
Siggi Gunnars stýrir lifandi þætti um dægurmenningu með áherslu á tónlist, sjónvarp og kvikmyndir. Helstu straumar og stefnur, innlit til áhugaverðs fólks og skemmtilegir gestir í myndveri. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson. Stjórn upptöku: Ragnar Eyþórsson.
Sumarið er farið að banka hressilega á dyrnar með hærri hitatölum og sólardögum en líka stórmyndunum. Ásgeir Kolbeins og Júlía Margrét Einarsdóttir fara yfir bíósumarið í Miðstöðinni að þessu sinni.
Það er ár síðan VÆB-bræðurnir Matthías og Hálfdán stigu á svið í Eurovision. Þeir fylgdu því meðal annars eftir með vel heppnuðum Evróputúr. Við heyrum allt um ævintýri VÆB í þættinum. Og talandi um Söngvakeppnisstjörnur – Diljá Pétursdóttir ætlar af krafti inn í sumarið og frumflytur nýtt lag, Ó, Rómeó, í þættinum.

Dana er 9 ára stelpa sem elskar risaeðlur. Líf hennar breytist til frambúðar þegar hún fær gefins handbók um risaeðlur, sem kennir henni ekki aðeins nýja hluti um dýrin, heldur gefur henni ofurkrafta sem gera henni kleift að sjá fyrir sér risaeðlur í raunveruleikanum.
Matilda er metnaðarfullur námsmaður og vill standa sig vel í skólanum. Hana dreymir líka um gott félagslíf, að skemmta sér jafn mikið og vinsælu jafnaldrar hennar - en hvernig fer hún að því? Hún pantar klón af sér á dularfullri vefsíðu og þarf skyndilega að takast á við tvífara sem tekur yfir líf hennar.
Stór skólaviðburður setur leyndarmál Mathildu í hættu.
Ný íslensk grínþáttaröð eftir Arnór Björnsson, Óla Gunnar Gunnarsson og Vigdísi Hafliðadóttur. Þrjú ungmenni takast á við þær áskorarnir sem fylgja þrítugsaldrinum; háskólann, vinnumarkaðinn, sambandsdrauga, rappara og glataða æskudrauma. Hér mætir íslenskur veruleiki óbeisluðu ímyndunarafli. Þættirnir skarta sex frumsömdum lögum eftir FLOTT. Aðalhlutverk: Arnór Björnsson, Óli Gunnar Gunnarsson og Vigdís Hafliðadóttir. Leikstjóri: Kristófer Dignus. Framleiðsla: Kontent.
Diljá sýnir lokaverkið sitt. Janus sýnir hvernig maður lifir lífinu með núll krónur inni á bankabók. Teitur kynnir nýju kærustuna fyrir fjölskyldu sinni.
Nýir heimildarþættir um Bubba Morthens þar sem farið er yfir 15 vinsælustu lögin hans að mati þjóðarinnar. Rætt er við Bubba auk fjölda samferðamanna hans þar sem lögin og hans helstu tímabil á löngum ferli eru rifjuð upp. Sýnt er áður óséð myndefni og upptökur. Umsjón: Gunnlaugur Jónsson. Leikstjórn: Þór Freysson.
Breskir leiknir þættir frá 2025. Evie og Noa eru forfallnir kvikmyndanördar sem fá útrás fyrir áhugamálið í vikulegum kvikmyndaklúbbi þar til að óvænt flétta kemur klúbbnum í uppnám. Aðalhlutverk: Aimee Lou Wood, Nabhaan Rizwan og Liv Hill.
Bresk gamanmynd frá 2017 í leikstjórn Richards Loncraine. Þegar Sandra Abbot kemst að því að eiginmaður hennar til 35 ára hefur verið að halda við bestu vinkonu hennar, flýr hún til eldri systur sinnar, Bif. Bif lumar á ýmsum ráðum til að hressa Söndru við en þar sem systurnar eru mjög ólíkar þarf Sandra að stíga langt út fyrir þægindarammann sinn. Aðalhlutverk: Imelda Staunton, Celia Imrie, Timothy Spall og Joanna Lumley.
Ævisöguleg kvikmynd um pólska eðlis- og efnafræðinginn Marie Curie sem var brautryðjandi í rannsóknum á geislavirkni við upphaf 20. aldar og var fyrst kvenna til að hljóta Nóbelsverðlaun. Leikstjóri: Marjane Satrapi. Aðalhlutverk: Rosamund Pike og Sam Riley. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
An Icelandic comedy series by Arnór Björnsson, Óli Gunnar Gunnarsson and Vigdís Hafliðadóttir. Three young adults navigate the challenges of their twenties: university life, the job market, ghosts of past relationships and faded childhood dreams. The series features six original songs by the band FLOTT. Starring: Arnór Björnsson, Óli Gunnar Gunnarsson and Vigdís Hafliðadóttir. Director: Kristófer Dignus. Production: Kontent.