
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Þegar afi ykkar er búin að þjálfa ykkur sem skrímslaveiðimenn, þá er ekkert annað í stöðunni en að veiða öll skrímslin! Það er þó eitt vandamál, krakkarnir elska skrímslin og vilja helst bara bjarga þeim. Það geta þau gert á meðan afi blundar, eða hvað?
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Gamansamir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það, enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eftir að Eddi strútapabbi hræðir kráku, setur hún á sig hræðilegan graskershaus til þess að hræða hann til baka. Eddi strútapabbi heldur að þetta sé skrímsli og verður dauðhræddur! Hann verður að bjarga börnunum!
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Nýi heimilsfræðikennarinn hún Hrefna, fer með nemendur sína á matreiðsluferðalag um heiminn í allan vetur, þar sem við kynnumst hinum ótrúlegustu réttum frá ýmsum löndum. Matráðsmeistarar eru: Hrefna Hlynsdóttir, Emilía Dröfn Davíðsdótir, Garðar Eyberg Arason, Kría Burgess og Sigurður Hilmar Brynjólfsson.
Að þessu sinni er Hrefna með hrekkjavökuþema í heimilisfræðinni þar sem krakkarnir útbúa þjóðlegan rétt, með hrekkjavökuívafi.
Krakkarnir búa til óhugnalegar ostamakkarónur með blóði og köngulóm.... Nammi!
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Ólafía og Hekla eru uppátækjasamar og forvitnar vinkonur sem stelast til að framkvæma hinar ótrúlegustu vísindalegu tilraunir í skólanum sínum, með misgóðum árangri. Leikarar: Auður Óttarsdóttir og Guðbjörg Marý Eyjólfsdóttir.
Ólafía og Hekla fræðast um sögu hrekkjavökunnar og endurgera eldgos tilraunina úr seinasta þætti, nema með hrekkjavökuþema.
Hekla: Auður Óttarsdóttir
Ólafía: Guðbjörg Marý Eyjólfsdóttir
Sumarliði: Jóhann Axel Ingólfsson
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Dana er 9 ára stelpa sem elskar risaeðlur. Líf hennar breytist til frambúðar þegar hún fær gefins handbók um risaeðlur, sem kennir henni ekki aðeins nýja hluti um dýrin, heldur gefur henni ofurkrafta sem gera henni kleift að sjá fyrir sér risaeðlur í raunveruleikanum.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Þáttaröð frá 2015 úr smiðju Ævars vísindamanns. Í þessari þáttaröð leggur Ævar allt undir. Laufblásara-knúin svifbretti, segulskór og skordýrahamborgari eru bara nokkrar af þeim æsispennandi tilraunum sem koma fyrir. Dagskrárgerð: Ævar Þór Benediktsson og Eggert Gunnarsson
Í þessum þætti skoðar Ævar dýr. Jane Goodall er vísindamaður dagsins, við rannsökum Mantis-rækjuna og syngjum liti sem enginn sér nema hún. Við smökkum orkustangir úr krybbum, skoðum Vitsugu-vespur, setjum rykmaura undir smásjánna og svo ætlar Ævar að heimsækja hest sem kann bæði að telja og mála.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.
Gestir þáttarins eru Hallgrímur Helgason, Kristín Gunnlaugsdóttir og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir.
Berglind Festival fór yfir Fréttir Vikunnar ásamt Sölku Gústafs.
ICEGUYS kíkja í heimsókn og taka lagið!
Magnús Jóhann tók Tokkata og fúga í d-moll eftir Bach í upphafi þáttar.
Frumburður, KUSK og Óviti lokuðu þættinum með laginu Berlín
- Endursýnt
Heimsborgarinn Frímann Gunnarsson ferðast á húsbíl í kringum landið og rýnir af sinni alkunnu snilld í þjóðarsál Íslands, utan höfuborgarsvæðisins. Eftir að hafa gert borgarmenningunni góð skil er komið að landsbyggðinni. Frímann hefur engar væntingar en mun koma með menninguna með sér í farteskinu og leitast við að uppfræða þjóðina og kynna í leiðinni glænýja barnabók sem hann var að ljúka við, Lárus og þankatröllin. Dagskrárgerð: Ragnar Hansson og Gunnar Hansson. Framleiðsla: Ananas ehf.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Þórdís Claessen og Amanda Guðrún Bjarnadóttir. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Björgvin Kolbeinsson, Benedikt Nikulás Anes Ketilsson, Adelina Antal og Hjalti Stefánsson.
Í Landanum í kvöld ætlum við að ferðast með hjálp sýndarveruleika, við kaupum okkur fisk í sjálfssala á Tálknafirði, við förum ríðandi um Njáluslóðir og við skoðum hlaðin hús á Austurlandi.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Heimildarþáttaröð um baráttuna við COVID-19 þar sem fylgst er með störfum þeirra sem stjórnuðu aðgerðum í faraldrinum. Í þáttunum er einblínt á mannlega hlið faraldursins og sagt frá sorgum og sigrum í baráttu þjóðarinnar við að hemja útbreiðslu veiru sem setti heimsbyggðina á hliðina. Leikstjóri: Sævar Guðmundsson. Framleiðendur: Sævar Guðmundsson, Jóhannes Kr. Kristjánsson, Anna Karen Kristjánsdóttir og Brynja Gísladóttir.
Gylfi er orðinn þreyttur og tekur á móti gesti í farsóttarhúsið rétt fyrir klukkan sex á aðfangadagskvöld. Kári og Þórólfur gera lokatilraun til að ná samningi við Pfizer. Bóluefnin koma til landsins og hópur fólks mótmælir þeim.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Skemmtiþáttur frá 2025 um íslenska tungu. Þátttakendur etja kappi í fjölbreyttum leikjum og þrautum. Umsjón: Bragi Valdimar Skúlason og Vigdís Hafliðadóttir. Framleiðsla: Skot í samstarfi við RÚV.
Keppendur eru Birta Sólveig Söring Þórisdóttir, Jakob van Oosterhout, Guðjón Smári Smárason og Jóna Margrét Guðmundsdóttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Afmælisþáttur í tilefni af fimmtíu ára afmæli Landssamtakanna Þroskahjálpar. Gestgjafar úr hópi fólks með fötlun halda upp á tímamótin með fjölskyldu og framámönnum. Þau skemmta áhorfendum með söng og hljóðfæraslætti og fagna þeim sigrum og umskiptum sem orðið hafa í lífi fólks með þroskahömlun frá miðjum áttunda áratug síðustu aldar.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Fjölskyldu- og skemmtiþáttur frá 2018. Jón Jónsson fær til sín hressar fjölskyldur sem etja kappi í bráðfyndnum spurningaleikjum og þrautum. Dagskrárgerð: Rúnar Freyr Gíslason. Upptökustjórn: Þór Freysson.
Sérstakur Hrekkjavökuþáttur Fjörskyldunnar!
Fjölskyldur Merkurgötu og Hrauntúns etja kappi í skuggalegri keppni.
Lið Merkurgötu skipa Ronja, Hugi, Hrafnhildur og Joe.
Lið Hrauntúns skipa Fanný, Perla, Erla og Svanhvít
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Hvernig hugsa helstu listamenn og hugsuðir Svíþjóðar og hvaðan sækja þau sér innblástur og hvatningu? Í þessum þáttum er rætt við sænska meistara um sköpunarferlið, ákvarðanatöku og það hvernig mistök geta leitt til nýrra sigra.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Spennandi spurningaþáttur í beinni útsendingu þar sem baggalúturinn Guðmundur Pálsson og sjónvarpskonan Sigrún Ósk Kristjánsdóttir halda um stjórnartaumana. Fulltrúar bæjarfélaga um allt land spreyta sig á spurningum, glíma við heilabrot og leysa ýmsar þrautir. Hvaða lið stendur uppi sem landsmeistari? Stjórn útsendingar: Sturla Skúlason.
Selfoss mætir Laugum. Keppendur frá Selfossi eru Katrín Aagestad Gunnarsdóttir, Grímur Hergeirsson og Páll Óli Ólason. Keppendur frá Þingeyjarsveit eru Sigurbjörn Árni Arngrímsson, Andri Hnikarr Jónsson og Sigrún Aagot Ottósdóttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt
- Bein útsending
Rómantísk gamanmynd frá 2017 með Reese Witherspoon í aðalhlutverki. Líf nýlega fráskilinnar móður í Los Angeles tekur óvæntum breytingum þegar hún leyfir þremur ungum mönnum að flytja inn til sín. Leikstjóri: Hallie Meyers-Shyer. Meðal leikenda eru Michael Sheen og Candice Bergen.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Dönsk ævintýramynd um stúlkuna Dinu sem er gædd yfirnáttúrulegum hæfileikum og getur séð inn í huga fólks. Þegar krónprins ríkisins Dunark er ranglega sakaður um hryllileg morð er það undir henni komið að hjálpa honum að sanna sakleysi sitt og í leiðinni flækist hún og fjölskylda hennar í hættulega atburðarás. Leikstjóri: Kenneth Kainz. Aðalhlutverk: Rebecca Aisen Sattrup, Peter Plaugborg, Jakob Oftebro og Maria Bonnevie. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Íslensk hrollvekja frá 2023. Ingi er ungur fjölskyldufaðir sem reynir að koma undir sig fótunum eftir að hafa valdið hræðilegu slysi. Hann finnur leigjanda látinn í Airbnb íbúð sinni og þegar hann reynir að púsla fortíð hans saman hefst dularfull atburðarás. Leikstjóri: Arró Stefánsson. Aðalhlutverk: Hjörtur Jóhann Jónsson, Heiðdís Chadwick Hlynsdóttir og Steinþór Hróar Steinþórsson. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson.
Aðhaldsaðgerðir og uppsagnir hjá Reykjavíkurborg eru til umræðu í Vikulokunum í dag. Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi og formaður hagræðingarhóps meirihlutans og Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, mætast í fyrsta hluta þáttarins.
Í öðrum hluta þáttarsins mæta Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og Haraldur Þór Jónsson, sveitarstjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps, til að ræða um auknar álögur á atvinnulíf á Suðurlandi og breytingar á loftbrú.
Í síðasta hlutanum ræða Guðmundur Fylkisson lögreglumaður og Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna um hótanir og ofbeldi í garð lögreglumanna, nýja löggæsluáætlun og sameiningu embætta.
- Bein útsending