Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.

Bein útsending frá spurningakeppni sveitarfélaga. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Sólmundur Hólm. Spurningahöfundar: Ævar Örn Jósepsson og Jón Svanur Jóhannsson. Dómari: Ævar Örn Jósepsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.

Matgæðingarnir og bræðurnir Adam og James Price ferðast um Bretland og töfra fram kræsingar sem eru vinsælar þar í landi.

Þórhallur Gunnarsson tekur Björgvin Halldórsson söngvara tali í tilefni af sextugsafmæli hans þann 16. apríl 2011. Saman rifjuðu þeir upp tónlistarferil Björgvins í hartnær 45 ár auk þess sem Björgvini var fylgt hvert fótmál á sjálfan afmælisdaginn, en þá hélt hann tvenna tónleika í Háskólabíói fyrir fullu húsi. Umsjón og dagskrárgerð: Egill Eðvarðsson.
Siggi Gunnars stýrir lifandi þætti um dægurmenningu með áherslu á tónlist, sjónvarp og kvikmyndir. Helstu straumar og stefnur, innlit til áhugaverðs fólks og skemmtilegir gestir í myndveri. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson. Stjórn upptöku: Ragnar Eyþórsson.
Í fyrsta þætti Miðstöðvarinnar heimsækjum við Friðrik Dór sem sýnir á sér nýja listræna hlið í fyrsta skipti opinberlega.
Lovísa Rut, útvarpskona á Rás 2, og Sandra Barilli, framleiðandi og skemmtikraftur, kíkja í myndverið og fara yfir stærstu tónlistarviðburði ársins. Hvað á fólk að upplifa í ár?
Þátturinn endar svo á Ágústi Þór Brynjarssyni sem sló í gegn í Söngvakeppninni í fyrra. Við förum í heimsókn á Hrafnagil í Eyjafirði þar sem Ágúst býr og svo flytur hann fyrir okkur nýtt lag ásamt tónlistarkonunni Unu Torfa.


Dana er 9 ára stelpa sem elskar risaeðlur. Líf hennar breytist til frambúðar þegar hún fær gefins handbók um risaeðlur, sem kennir henni ekki aðeins nýja hluti um dýrin, heldur gefur henni ofurkrafta sem gera henni kleift að sjá fyrir sér risaeðlur í raunveruleikanum.
Matilda er metnaðarfullur námsmaður og vill standa sig vel í skólanum. Hana dreymir líka um gott félagslíf, að skemmta sér jafn mikið og vinsælu jafnaldrar hennar - en hvernig fer hún að því? Hún pantar klón af sér á dularfullri vefsíðu og þarf skyndilega að takast á við tvífara sem tekur yfir líf hennar.
Klónið fer sínar eigið leiðir og áttar sig á því hvað það er erfitt.

Fróðlegir danskir þættir þar sem þáttastjórnendur rannsaka matinn sem við borðum dags daglega.

Íslensk tónlistarmyndbönd.
Úr Söngvakeppninni 1986.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Spurningakeppni framhaldsskólanna. Spurningahöfundar og dómarar eru Arnar Gunnarsson, Sigurlaugur Ingólfsson og Vilhjálmur Bragason. Spyrill er Helga Margrét Höskuldsdóttir. Stjórn útsendingar: Sturla Holm Skúlason.
Menntaskólinn í Reykjavík mætir Verzlunarskóla Íslands í úrslitaviðureign Gettu betur. Keppendur frá Menntaskólanum í Reykjavík: Hulda Filippía Andradóttir, Dóróthea Margrét Jakobsdóttir og Davíð Friðriksson Magnus. Keppendur frá Verzlunarskóla Íslands: Dagbjörg Birna Sigurðardóttir, Katla Margrét Jónsdóttir og Ísak Trausti Ingólfsson Lehmann.

Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.
Nýir breskir spennuþættir. Sherlock Holmes rannsakar alþjóðlegt glæpasamsæri og nýtur liðsinnis Ameliu, ungrar bandarískrar konu sem leitar bæði að föður sínum og morðingja móður sinnar. Aðalhlutverk: David Thewlis, Blu Hunt og Ardal O‘Hanlon.

Dönsk dramamynd frá 2006 í leikstjórn Susanne Bier. Jacob rekur barnaheimili á Indlandi sem er á barmi gjaldþrots. Hann fær óvenjulegt tilboð frá dönskum viðskiptamanni sem býður honum veglegan styrk með þeim skilyrðum að hann komi til Danmerkur og verði viðstaddur brúðkaup dóttur hans. Brúðkaupið veldur þáttaskilum í lífi Jacobs og hann neyðist til að taka erfiðar ákvarðanir. Aðalhlutverk: Mads Mikkelsen, Sidse Babett Knudsen og Rolf Lassgård. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.