19:40
20 og eitthvað (3 af 6)

Ný íslensk grínþáttaröð eftir Arnór Björnsson, Óla Gunnar Gunnarsson og Vigdísi Hafliðadóttur. Þrjú ungmenni takast á við þær áskorarnir sem fylgja þrítugsaldrinum; háskólann, vinnumarkaðinn, sambandsdrauga, rappara og glataða æskudrauma. Hér mætir íslenskur veruleiki óbeisluðu ímyndunarafli. Þættirnir skarta sex frumsömdum lögum eftir FLOTT. Aðalhlutverk: Arnór Björnsson, Óli Gunnar Gunnarsson og Vigdís Hafliðadóttir. Leikstjóri: Kristófer Dignus. Framleiðsla: Kontent.

Diljá reynir að samtvinna skóla, vini og ástina. Janus reynir að kaupa lauk. Teitur reynir að tala við pabba sinn.

Er aðgengilegt til 27. ágúst 2026.
Lengd: 23 mín.
Dagskrárliðurinn er textaður.
,