
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Í Kilju vikunnar birtist viðtal við Elizu Reid en hún sendir nú frá sér bók sem nefnist einfaldlega Og svo varð ég forsetafrú. Segir frá aðdraganda þess að hún settist að á Bessastöðum og tíma hennar þar. Bókin kemur jafnframt út á ensku í Kanada og Bandaríkjunum. Kristján Jóhann Jónsson ræðir við okkur um Prinsessur og prakkara, en það er safn með nýjum þýðingum hans á sígildum ævintýrum stórsnillingsins H.C. Andersen. Bernd Ogrodnik brúðugerðarmaður segir frá bók þar sem hann blandar frásögn af lífi sínu á Íslandi saman við vangaveltur um lífið og tilveruna - hún nefnist Icelandic Watermelons and a Horse Called Spark. Í Bókum og stöðum förum við vítt og breitt um Strandir og skoðum hið hrikalega landslag þar. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um Piparmeyjar eftir Sigríði Kristínu Þorgrímsdóttur, Myrkravald eftir Evu Björg Ægisdóttur og Jérôme Loubry og Daga mína í Morisaki bókabúðinni eftir Satoshi Yagisawa.