Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fyrrverandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins og utanríkisráðherra, hefur verið skipuð sendiherra og hættir á þingi. Hún ræddi við Kastljós í tilefni af vistaskiptunum.
Dalatangi er austasta byggða ból landsins og það er hægara sagt en gert að komast þangað yfir vetrarmánuðina, eins og við komumst að.
Það getur verið flókið að fóta sig í lífinu á þrítugsaldri. Um það fjalla sjónvarpsþættirnir Tuttugu og eitthvað, sem hófu göngu sína á RÚV á dögunum. Við ræddum við aðstandendur,.
