
HM í sundi í 50 metra laug í Singapore.

Brot úr Tónaflóði Rásar2 um landið sumarið 2021.

Spurningakeppni sveitarfélaga. Umsjónarmenn eru Sigmar Guðmundsson og Brynja Þorgeirsdóttir. Spurningahöfundur: Ólafur B. Guðnason. Dagskrárgerð: helgi Jóhannesson.
Í þessum þætti keppa við Fjarðabyggðar og Skagafjarðar.
Lið Fjarðabyggðar skipa Jón Svanur Jóhannsson grunnskólakennari og umsjónamaður félagsmiðstöðvar grunnskólans á Eskifirði, Kjartan Bragi Valgeirsson læknanemi og Sigrún Birna Björnsdóttir fræðslustjóri Alcoa Fjarðaráls.
Lið Skagafjarðar skipa Guðrún Rögnvaldardóttir framkvæmdastjóri Staðlaráðs Íslands, Guðný Zoëga fornleifafræðingur á Byggðasafni Skagfirðinga og Sveinn Margeirsson forstjóri Matís.
Íslensk heimildarþáttaröð í fimm þáttum um skipulag og uppbyggingu fimm bæja vítt og breitt um landið. Bæirnir Ísafjörður, Akureyri, Seyðisfjörður, Vestmannaeyjar og Hafnarfjörður eru heimsóttir og stiklað á stóru um sögu þeirra. Umsjón: Egill Helgason og Pétur Ármannsson. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.
Í Sumarlandanum förum við út og suður, vítt og breitt, langt yfir skammt og allt þar á milli. Umsjón: Gísli Einarsson, Guðríður Helgadóttir, Þórgunnur Oddsdóttir, Elsa María Drífudóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Halla Ólafsdóttir, Þórdís Claessen, Jóhann Alfreð Kristinsson og Steiney Skúladóttir. Tónlistarkonan Árný Margrét sér um tónlistina. Dagskrárgerð: Magnús Atli Magnússon, Elvar Örn Egilsson, Jóhannes Jónsson, Björgvin Kolbeinsson og Karl Sigtryggsson. Ritstjóri: Gísli Einarsson.
Við tökum þátt í sjóstangsveiðimóti á Patreksfirði á vegum Sjóstangveiðifélags Reykjavíkur. Þar ber að sjálfsögðu vel í veiði.
Við fræðumst um uppgerð Pálshúss á Ólafsfirði og nýtt hlutverk hússins.
Við förum inn í heillandi heim frímerkjasafnara.
Við tökum þátt í reykköfunaræfingu hjá Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins.
Loks hittum við Reiðhjólabændur í Reykjavík. Það er hópur hjólreiðafólks sem lætur gott af sér leiða með því að gera upp gömul reiðhjól. Hjólin eru gefin börnum sem annars ættu ekki kost á að eignast svona gripi. Í þessu verkefni taka líka þátt hælisleitendur sem vantaði eitthvað við að vera.


Þessar þáttaraðir eru áhorfendum að góðu kunnar, enda eru þættirnir bæði afar fræðandi og skemmtilegir en að þessu sinni fræðumst við um jörðina. Þáttunum er ætlað að hvetja yngri áhorfendur til að verða ábyrgir borgarar og hjálpa þeim að skilja umhverfi sitt, svo þeir geti lagt sitt af mörkum til að vernda það.

Keppni í skapandi þrautum. Skaparar og keppendur hafa 10 mínútur til að klára þraut og taka þátt í Stórhættulegu spurningakeppninni. Þegar tíminn er hálfnaður draga keppendur babb-spjöld. Að sjálfsögðu endar þetta á vænni slímgusu. Dagskrárgerð: Sigyn Blöndal og Sindri Bergmann Þórarinsson.
Við búum til farartæki í Kveikt á perunni! En ætli við getum notað þau í lokin - það kemur í ljós, kannski ferðumst við aftur í tímann - hver veit? En eitt er víst að keppnin hefur aldrei verið meira spennandi. Skaparar og keppendur. Gula liðið: Theodór Snær Björnsson Vigdís Karólína Elíasdóttir Bláa liðið: Viktor Benóný Benediktsson Ólína Stefánsdóttir

Í tilraunastofunni hjá Lísu gerist ýmislegt áhugavert. Ungir krakkar koma í heimsókn og hanna sínar eigin uppfinningar með henni og gera trylltar tilraunir.

Íslenska óperan varð 40 ára á árinu 2020. Að því tilefni lítum við til baka og minnumst góðra stunda.
Þáttaröð þar sem heimur íslenskrar sögu og sagna er kannaður með því að skoða muni sem tengjast sérstökum atburðum í sögu þjóðarinnar. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir og Sigurður Helgi Pálmason. Framleiðsla: Republik.
Getur verið að stórt postulínsmatarstell hafi komið heilt úr Geysisslysinu, þegar flugvélin Geysir brotlenti á Bárðarbungu í Vatnajökli árið 1950?

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Ferða- og matreiðsluþáttur þar sem Kristinn Guðmundsson ferðast með vini sínum, Janusi Braga Jakobssyni, og eldar fyrir hann. Að þessu sinni fara þeir félagar um Austurland þar sem Kristinn þykist vera á heimavelli því faðir hans er fæddur og uppalinn á Eskifirði. Janus er aftur á móti nánast eins og algjör túristi. Þeir hitta alls kyns fólk og lenda í ýmsu skakkaföllum en alltaf lenda þeir á fótunum og fá sér í gogginn.
Kristinn og Janus heimsækja bændur á Vallanesi og fræðast um störf þeirra. Þeir halda síðan inn í Hallormsstaðaskóg og elda dýrindiskvöldverð.

Sænskir þættir þar sem fylgst er með fólki gera upp draumahúsnæðið sitt.

Breskir spennuþættir frá 2024. Þegar tölvuþrjótar taka yfir stjórn næturlestar frá Glasgow til London þurfa tveir ókunnugir einstaklingar – farþegi um borð og starfsmaður hjá netöryggisstofnun – að hjálpast að við að bjarga farþegum lestarinnar og afstýra stórslysi. Aðalhlutverk: Joe Cole og Alexandra Roach. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.

Þriðja þáttaröð þessara pólsku spennuþátta um menntaskólakennarann Pawel Zawadzki. Þegar nemandi deyr í siglingu á vegnum skólans beinast spjótin að skipstjóranum, Bogdan, sem er faðir Pawels. Pawel er sannfærður um sakleysi föður síns en rannsóknin dregur ýmis leyndarmál fram í dagsljósið. Aðalhlutverk: Maciej Stuhr, Katarzyna Dabrowska og Roma Gasiorowska. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Portúgalskir spennuþættir frá 2023. Sagnfræðiprófessorinn Tomás de Noronha er sérfræðingur í dulritun og fornmálum. Þegar hann er fenginn til að ráða dularfull skilaboð hefst atburðarás sem gæti breytt heimssögunni. Þáttaröðin er byggð á samnefndri skáldsögu eftir José Rodrigues dos Santos. Aðalhlutverk: Paulo Pires, Deborah Secco go Ana Sofia Martins. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Leikir í Mjólkurbikar kvenna í fótbolta.
Leikur Breiðabliks og ÍBV í undanúrslitum Bikarkeppni kvenna í fótbolta.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.