Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Eldgos hófst norðan Grindavíkur á tíunda tímanum í morgun. Þetta er áttunda eldgosið á Sundhnúksgígaröðinni en aðdragandi gossins var lengri en við höfum átt að venjast í síðustu gosum. Freysteinn Sigmundsson jarðeðlisfræðingur fór yfir atburðin og framhaldið í Kastljósi kvöldsins.
Þó svo að ferðamenn streymi hingað til lands og sumum þyki þeir hreinlega of margir eru svæði víða á landsbyggðinni sem þurfa að hafa mikið fyrir því að fá til sín ferðamenn. Óðinn Svan fór á rúntinn á Norðurlandi og ræddi við fólk í greininni.
Það þarf 100 lúðrasveitarleikara og 5 tungumál til að flytja nýjasta verk íslenska dansflokksins sem nefnist Hringir Orfeusar og annað slúður. Við kíkjum á æfingu.

24 stærstu sveitarfélög landsins keppa sín á milli í skemmtilegum spurningaleik. Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir stýra þættinum. Dómari og spurningahöfundur er Ólafur Bjarni Guðnason. Útsendingu stjórnar Helgi Jóhannesson.
Lið Dalvíkurbyggðar og Reykjavíkur eigast við í átta liða úrslitum.

30 ára ferill Spaugstofunnar og þeirra sem stóðu á bak við hana rakinn í upprifjun á gömlu sjónvarpsefni, viðtölum við mennina á bak við þættina og fjölmarga aðra sem tengdust þeim, birtust í þeim eða voru fórnarlömb þeirra. Umsjón: Gísli Marteinn Baldursson. Dagskrárgerð: Eiríkur Ingi Böðvarsson.
Guðjón Friðriksson og Egill Helgason leiða áhorfendur um söguslóðir í Kaupmannahöfn. Borgin við Sundið var um aldaraðir hin eiginlega höfuðborg Íslands. Þangað leituðu Íslendingar til náms, starfa og fræðiiðkana, en Kaupmannahöfn var líka miðstöð verslunar Íslendinga. Við kynnumst Íslandskaupmönnum, stúdentum, sérvitringum, skáldum og stjórnmálamönnum, en líka fólki sem fór til Hafnar að afla sér iðnmenntunar eða einfaldlega til að freista gæfunnar. Víða í borginni leynast sögur af Íslendingum. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.
Egill og Guðjón halda áfram göngu sinni um hverfin umhverfis Amalienborgarhöll og fara á slóðir íslenskra listamanna í Konunglega leikhúsinu og Listaakademíunni. Þeir líta inn á einn af uppáhaldsveitingastöðum Jóns Sigurðssonar og kynnast nokkrum af Íslandskaupmönnunum sem verða á vegi þeirra í þáttunum.

Danskur þáttur þar sem rætt er við ungt fólk sem þjáist af fælni og fjallað um hvaða áhrif fælnin hefur á daglegt líf þeirra.
Caroline er 23 ára og er haldin fælni við að kasta upp. Fælnin hefur náð stjórn á lífi hennar og hún á erfitt með ýmsar hversdagslegar athafnir þar sem hún óttast stöðugt að komast í snertingu við sýkla sem gætu orðið þess valdandi að hún kasti upp.

Heimildarþættir frá BBC þar sem Chris Packham fær fólk á einhverfurófi til að sýna hvernig hugur þess virkar og aðstoðar það við að tengjast fjölskyldu sinni og vinum á nýjan hátt.

Sænskir þættir um matarsóun og hvernig hægt er að sporna gegn henni. Þáttastjórnendurnir Anna Lundberg og Paul Svensson kynna áhorfendur fyrir óvæntum uppskriftum að dýrindis réttum sem búnir eru til úr hráefni sem annars hefði verið hent.


Þættir um óteljandi ævintýri Strumpanna og Kjartans galdrakarls sem fara hér á kostum í Strumpabæ.

Háværa ljónið Urri og félagar ferðast í gegnum frumskóginn. Á leiðinni lenda þau í skemmtilegum ævintýrum og þurfa að takast á við áskoranir og leita lausna í sameiningu.

Gamansamir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það, enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi strútapabbi verður hræddur þegar eitt barna hans setur hraðvirka vél á go-kart bílinn sinn og hann vill stoppa hana þar sem hún getur meitt sig. En fyrst verður hann að ná henni.

Mörgæsirnar Haddi og Bibbi haga sínu lífi eftir F-unum þremur. Fjör, fiskur og félagsskapur.

Jasmín og Jómbi eru góðir vinir sem elska tónlist. Saman njóta þau tónanna sem óma um Hljómbæ.

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt. Umsjón: Ari Páll Karlsson, Embla Bachmann, Gunnar Hrafn Kristjánsson og Kolbrún María Másdóttir. Handrit og ritstjórn: Ari Páll Karlsson.

Vikinglottó-útdráttur vikunnar.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Í Kilju vikunnar fjöllum við um glæsilega bók þar sem er rakin saga hins ævintýralega flugfélags Loftleiða í máli og myndum. Við eigum spjall við höfund bókarinnar, Sigurgeir Orra Sigurgeirsson. Rebekka Sif Stefánsdóttir og Katrín Lilja Jónsdóttir segja okkur frá Lestrarklefanum þar sem þær eru í ritstjórn. Þetta er öflugur og skemmtilegur vettvangur þar sem fjallað er um bókmenntir í rituðu máli og töluðu. Skáldið Vala Hauksdóttir kemur í þáttinn, hún sigraði í keppninni um Ljóðstaf Jóns úr Vör í fyrra en hefur nú gefið út sína fyrstu bók sem nefnist Félagsland. Við förum í Önundarfjörð í dagskrárliðnum Bókum og stöðum og þar verða meðal annarra á vegi okkar Brynjólfur biskup Sveinsson, Auður Jónsdóttir og Ólafur Kárason. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um Rétt áðan eftir Illuga Jökulsson, Hús dags, hús nætur eftir Olgu Tokarczuk og Bældar minningar eftir Angelu Marsons.

Stuttir finnskir þættir um prjónaskap. Eva Pursiainen byrjaði líkt og margir aðrir að prjóna í kórónuveirufaraldrinum. Í þáttunum skoðar hún hvers vegna hálfgert prjónaæði hefur gripið um sig í heiminum á síðustu árum og fjallar um ýmis jákvæð áhrif þess að prjóna.
Þýsk leikin þáttaröð frá 2022. Árið 1920 flytur hin unga Vicky Maler frá æskuheimili sínu á landsbyggðinni til Berlínar þar sem hún fær vinnu í frægri stórverslun og kynnist ástinni í fyrsta sinn. Aðalhlutverk: Naemi Florez, Ludwig Simon og Alexander Scheer. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Nýjustu fréttir og íþróttir kvöldsins. Alla mánudaga til fimmtudaga.

Veðurfréttir

Heimildarþáttaröð frá BBC um ævi, störf og ástir mexíkósku myndlistarkonunnar Fridu Kahlo.
Rómantísk gamanþáttaröð frá 2023 byggð á skáldsögu eftir Henry Fielding, The History of Tom Jones, a Foundling. Þættirnir segja frá Tom Jones, efnalitlum ungum manni, sem verður ástfanginn af nágrannakonu sinni, Sophiu. Mikill munur á samfélagslegri og fjárhagslegri stöðu þeirra veldur því að fjölskyldur þeirra reyna að stía þeim í sundur en mun ástin sigra að lokum? Aðalhlutverk: Sophie Wilde, Solly McLeod og Shirley Henderson. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt. Umsjón: Ari Páll Karlsson, Embla Bachmann, Gunnar Hrafn Kristjánsson og Kolbrún María Másdóttir. Handrit og ritstjórn: Ari Páll Karlsson.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.