Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Herskáar yfirlýsingar Donald Trump Bandaríkjaforseta um yfirráð yfir Grænlandi hafa skekið Norðurlönd, enda fordæmalaus framkoma af hálfu bandalagsríkis. Hvaða áhrif hefur þetta á Ísland, með annars vegar sitt rótgróna Norðurlandasamstarf, og hins vegar varnarsamning við Bandaríkin. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra er gestur Kastljóss
Skíðasvæðið í Skálafelli verður lokað í allan vetur, annað árið í röð. Til stóð að fara í uppbyggingu og viðhald fyrir nokkrum árum en framkvæmdir sem áttu að vera langt komnar eru ekki enn hafnar, og óljóst hvort verði af þeim yfir höfuð. Kastljós tekur stöðuna á Skálafelli.
24 stærstu bæjarfélög landsins keppa sín á milli í skemmtilegum spurningaleik. Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir stýra þættinum. Dómari og spurningahöfundur er Ólafur Bjarni Guðnason. Útsendingu stjórnar Helgi Jóhannesson.
Að þessu sinni eigast við lið Garðabæjar og Reykjavíkur. Lið Garðabæjar skipa Vilhjálmur Bjarnason, Ólöf Ýrr Atladóttir og Einar Sveinbjörnsson og fyrir Reykjavík keppa Oddur Ástráðsson, Þorsteinn Vilhjálmsson og Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir.
Danskur heimildarþáttur um menn sem verða feður eftir fimmtugt. Fjöldi manna sem eignast börn um eða eftir miðjan aldur hefur þrefaldast á síðustu 30 árum í Danmörku. Þeir hafa kannski ekki jafn mikla orku og áður til að takast á við álagið sem fylgir föðurhlutverkinu en þeir hafa ýmislegt annað að bjóða börnum sínum.
Ebba Guðný sýnir áhorfendum hversu auðvelt það getur verið að elda hollan og næringarríkan mat úr góðu hráefni. Matreiðsluþáttur fyrir alla fjölskylduna með skemmtilegu fræðsluívafi. Dagskrárgerð: Sævar Sigurðsson. Framleiðandi: Anna Vigdís Gísladóttir fyrir Saga Film.
Ebba undirbýr lautarferð og útbýr chiagraut með ávöxtum, hnetublöndu með þurrkuðum ávöxtum, kókoskúlur, kanilsnúða, heitt kakó og tómatsúpu. Gestir Ebbu í Guðmundalundi í Kópavogi eru Embla María Jóhannesdóttir, Hafliði Hafþórsson, Hrafnhildur Freyja Jóhannesdóttir, Jóhannes Páll Jóhannesson, Jóhannes Þór Ágústarson, Jón Sverrir Sigurðsson, Ragnhildur Lilja Ásgeirsdóttir og Sigríður Hanna Jóhannesdóttir.
Sjö döff nemendur frá fjórum Norðurlandanna hefja nám í leiklistarskóla í Stokkhólmi. Í þessum sænsku heimildarþáttum sjáum við þau glíma við verkefni á borð við slæman fjárhag, líkama sinn, sjálfsmynd, rödd og ekki síst tungumálið og svo spurninguna um hvað þarf til að verða góður leikari.
Keppni í skapandi þrautum. Skaparar og keppendur hafa 10 mínútur til að klára þraut og taka þátt í Stórhættulegu spurningakeppninni. Þegar tíminn er hálfnaður draga keppendur babb-spjöld. Að sjálfsögðu endar þetta á vænni slímgusu. Dagskrárgerð: Sigyn Blöndal og Sindri Bergmann Þórarinsson.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Verkföll hefjast í ríflega tuttugu grunn- og leikskólum um mánaðamótin takist ekki að semja á næstu dögum. Fundur í kjaradeilu kennara við ríki og sveitarfélög hófst klukkan fjögur í dag. Ríkissáttasemjari lagði fram innanhússtillögu sem samninganefndir þurfa að samþykkja innan sólahrings. Gestur Kastljós í kvöld er Magnús Þór Jónssyn formaður Kennarasambands Íslands.
Undanfarin sex ár hefur fórboltahlaðvarpið Doctor Football verið eitt vinsælasta hlaðvarp landsins með tugþúsundir hlustenda í hverri viku. Óðinn Svan tók hús á doktornum í Hamraborginni í Kópavogi.
Tónleikakvikmyndin Cornucopia, sem tekin var á samnefndri tónleikaröð Bjarkar, verður frumsýnd um mánaðarmótin, en myndinni er lýst sem sýndarveruleikaveislu. Við kynnum okkur myndina.
Hljómskálinn snýr aftur, fullur langt út úr dyrum af nýjum viðtölum, nýjum andlitum og nýrri íslenskri tónlist. Sigtryggur Baldursson og Una Torfadóttir yfirheyra íslenskt tónlistarfólk og greiningardeildin kryfur bransann til mergjar. Framleiðsla: Stjörnusambandsstöðin.
Við spjöllum við tónlistarfólk sem tengist hafinu á ýmsan hátt. Elst upp við það, eða hreinlega á því. Loks taka óvæntir skipsfélagar, þeir Benni Hemm Hemm og Páll Óskar, nýtt lag saman.
Sannsögulegir úkraínskir dramaþættir frá 2024. Sálfræðingurinn Lydia aðstoðar samborgara sína fyrstu vikurnar eftir innrás Rússa í Úkraínu. Hún ekur þeim í öruggt skjól og hlýðir á átakanlegar sögur þeirra. Aðalhlutverk: Anastasiya Karpenko, Igor Koltovskyy og Nadiya Levchenko. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Dramaþættir frá Bretlandi sem fjalla um hvernig ástin getur bankað upp á þegar fólk á síst von. Þrjár manneskjur sem eiga erfitt með að ná sér eftir að hafa gengið í gegnum erfiðleika vonast til að sjá ljósið við enda ganganna. Aðalhlutverk: Harry Lawtey, Sophia Brown og Andi Osho.