
Ævintýri Tulipop er skemmtileg teiknimyndaþáttaröð um litríkan vinahóp sem býr á töfraeyjunni Tulipop.
Í þáttaröðinni er fylgst með vinunum Fredda, sveppa-systkinunum Búa og Gló, Maddý og ekki má gleyma Herra Barra sem er elstur og vitrastur allra á Tulipop. Þau eru öll afar ólík bæði hvað útlit og skapgerð varðar. Á Tulipop búa sterkar kvenpersónur og staðalímyndir fyrirfinnast ekki. Enginn er fullkominn, öllum verður einhvern tíma á í messunni en það sem mestu máli skiptir er kærleikurinn og vináttan. Í hverjum þætti lenda aðalpersónurnar í spennandi ævintýrum og eignast nýja vini.
Ævintýri Tulipop sækir innblástur sinn í íslenska náttúru, sem leikur stórt hlutverk í þáttaröðinni. Virðing fyrir náttúrunni er í fyrirrúmi og markmiðið er að miðla jákvæðum skilaboðum og gleði til barna á öllum aldri.
Óvelkomnir gestir gera vart við sig á höfði Fredda. Það eru Kítlukrútt! Litríkir, loðnir hnoðrar sem kitla svakalega! Vinirnir reyna allt sem í þeirra valdi stendur til að losa Fredda við óværuna en án árangurs. Það er ekki fyrr en Freddi fær ráð hjá Herra Barra sem þau ná að leysa vandamálið....eða hvað?

Róbert og hressu hvolparnir í Hvolpasveitinni eru komin aftur og takast á við ný verkefni og nýja þorpara eins og þeim einum er lagið.

Þriðja þáttaröðin um hina vinsælu Blæju og Hælbein fjölskylduna. Daglegt líf fjölskyldunnar gengur sinn vanagang, en hins vegar er enginn dagur eins þegar Blæja og Bára eiga í hlut.

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
Óveður síðustu daga og Litla hryllingsbúðin í Langholtsskóla.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.

Kveikur er fréttaskýringaþáttur með áherslu á rannsóknarblaðamennsku. Ritstjórn og dagskrárgerð: Ragnhildur Þrastardóttir, Arnar Þórisson, Árni Þór Theodórsson, Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir, Ingvar Haukur Guðmundsson, Jóhann Bjarni Kolbeinsson, Sunna Karen Sigurþórsdóttir og Tryggvi Aðalbjörnsson.

Rithöfundurinn og stærðfræðingurinn Hannah Fry kynnir sér nýjustu tæki og tól í tækniheiminum og skoðar söguna á bak við uppfinningarnar.
Bresk glæpaþáttaröð frá 2025 byggð á sænskum metsölubókum eftir Erik Axl Sund. Röð dularfullra morða á ungum mönnum í Bristol leiðir saman rannsóknarlögreglukonuna Jeanette Kilburn og sálfræðinginn Sophiu Craven. Rannsókn málsins dregur þær á hættulegar slóðir ofbeldis og morða. Aðalhlutverk: Eve Myles, Katherine Kelly og Clara Rugaard. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.

Finnsk heimildarþáttaröð þar sem rannsóknarblaðamaðurinn Riku Rantala rannsakar örlög ungra manna sem hurfu um borð í ferju milli Svíþjóðar og Finnlands. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Heimildarmynd frá 2023 þar sem fylgst er með sálfræðingnum Al Holland undirbúa geimfara hjá bandarísku geimferðastofnuninni NASA fyrir langvarandi dvöl í geimnum.

Umfjallanir um leiki á EM kvenna í körfubolta.
Upphitun fyrir leik Íslands og Portúgal í undankeppni EM kvenna í körfubolta.

Leikir í undankeppni EM kvenna í körfubolta.
Leikur Íslands og Portúgal í undankeppni EM kvenna í körfubolta.

Umfjallanir um leiki á EM kvenna í körfubolta.
Uppgjör á leik Íslands og Portúgal í undankeppni EM kvenna í körfubolta.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.