19:35
Kastljós
Leigubílalöggjöf, nýr formaður LEB og flugfreyjustarfið
Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Ríkisstjórn samþykkti að leggja fyrir Alþingi reglugerð sem felur í sér afturhvarf til hertari reglna um leigubílstjóra. Þorsteinn B. Sæmundsson varaþingmaður Miðflokks fagnar breytingunni og María Rut Kristinsdóttir þingmaður Viðreisnar segir nauðsynlegt að stíga varlega til jarðar í ályktunum um erlent vinnuafl tengt málinu. Björn Snæbjörnsson, nýkjörinn formaður Landssambands eldri borgara kallar eftir stórtækum úrbótum á grunnlífeyri sem haldi fjölda fólks í fátæktargildru.

Flugfreyjustarfið er sívinsælt hér á landi og þúsundir umsókna berast flugfélögum ár hvert.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 25 mín.
Dagskrárliðurinn er textaður.
Bein útsending.
,