Vegurinn yfir Öxi
Í þætti dagsins veltum við fyrir okkur Öxi, leiðinni á milli Djúpavogs og Egilsstaða. Hvaða áhrif þessi holótti og gamli malarvegur á líf ungs fólks á Djúpavogi og fjölskyldur þeirra.
Í þetta skiptið liggur leiðin í Austur-Húnavatnssýslu, svæði sem nú samanstendur af tveimur sveitarfélögum: Húnabyggð og Sveitarfélaginu Skagaströnd. Við ætlum að kynna okkur tónlistarlífið á svæðinu. Hvað einkennir það? Hvernig hefur það þróast á undanförnum árum? Hvernig er aðgengi að tónlistarmenntun?
Viðmælendur: Skarphéðinn Húnfjörð Einarsson, Hugrún Sif Hallgrímsdóttir og Eyþór Franzson Wechner.

Gígja Hólmgeirsdóttir ferðast um landið og kemur víða við – í þéttbýli, dreifbýli, borg og bæjum – og kynnir sér hin ýmsu málefni á hverjum stað.